Faxi

Årgang

Faxi - 01.02.1986, Side 31

Faxi - 01.02.1986, Side 31
Vélskipið Keflvíkingur GK 400 var 70 lonna bdíur. Var hann um árabil,,flaggskip" Kefiavíkurflotans, eign Samvinnuútgerðarfélags Keflavíkur, byggdur í Innri-Njarð- vik og bljóp af stokkunum 29. febrúar 1940. stjóri á Hólmsbergi var Gísli J. Hall- dórsson, Keflavík, en á Keflvíkingi Páll Kr. Maríusson frá Reykjavík. (Sjó- og verslunardómsbók Gull- bringu- og Kjósarsýslu 1941—1956. Bls. 393—398. bjóðskjalasafn.) Skipstjóri drukknar af v.b. Huldu Miðvikudaginn, 26. febrúar 1947, er v.b. Hulda frá Keflavík, var í róðri féll skipstjórinn, Einar Guð- bergur Sigurðsson, fyrir borð og drukknaði. Einar hafði farið aftur á bátinn um stund og fengið háseta stýrið á meðan. Verið var að huga að netatrossum. Þegar skipverja fór að lengja eftir Einari var farið að leita hans. Ekkert kom í Ijós er bent gæti til afdrifa hans. Talið var að Einar hafi fengið aðsvif og fallið út- byrðis. Einar Guðbergur var með um- svifameiri formönnum f Keflavík á þessum árum og því var fráfall hans enn sviplegra. Hann var mikill áhugamaður um ýmis hreppsmál, sérstaklega því sem laut að sjávar- útvegi. Einar varð formaður hafnar- nefndar Keflavíkur í ársbyrjun 1942 og gegndi því starfi til dauðadags. Hann var óþreytandi við að sinna þeim málum og ófá voru spor hans áfundi þingmana, bankastjóra, ráð- herra og annarra embættismanna, til að leita stuðnings við mesta hagsmunamál Keflvíkinga: Fram- hald hafnargerðar. Á því valt fram- tiðargengi byggðarlagsins. Einar Guðbergur var Keflvíking- ur, fæddur 22. september 1892. Eins og þá tíðkaðist fór hann korn- ungur á sjó, og 14 ára stóð hann við færið á kútter Keflavík, sem Duus- verslun átti. Foreldrar Einars voru Guðný Ólafsdóttir og Sigurður Jón Klemenzson. En Einar naut föður síns skamma stund, hann fór fljót- lega til Vesturheims, og kom ekki til íslands eftir það. Einar varð því Einar Guðbergur Sigurðsson, skipstjóri og útgerðarmaður. snemma að sjá um sig sjálfur. 1914 réðst hann til Einars í Garðhúsum í Grindavík og var með báta fyrir hann um árabil. Varð hann aflasæll formaður. En litlir bátar Grindvík- inga nægðu ekki athafnaþrá hans. Hann hóf eigin útgerð í Keflavik. Átti fyrst Hafurbjörn. Báturinn slitnaði upp 1924, rak á land og brotnaði. 1925 keypti Einar v.b. Arnbjörn Ólafsson, 20 lesta bát, og var með hann í 16 ár. 1939 hætti Einar sjó- mennsku, en fór aftur á sjó í febrúar 1947. Hann var þá með v.b. Huldu, sem hann hafði keypt frá Svíþjóð sumarið 1946. Kona Einars (1917) var María Guðmundsdóttir. Börn þeirra: Guðrún, gift Birni Magnússyni, vélsmið í Keflavík. Gunnar, átti Jóhönnu JÚIÍusdóttur. Ingimar, lögfræðingur, starfsmaður hjá Landsambandi ísl. útvegs- manna. Átti Þórunni Rafnar frá Ak- ureyri. (Faxi, mars, 1947: ,,Eitt slysið enn“. Vísir 27. febr. 1947: ,,Formaður drukknar af skipi sínu“. Reykjanes, mars, 1947: Minningar- orð um E.G.S. eftir Alfreð Gíslason. Faxi, febr. 1956, bls. 14: MVJ.: Minningar frá Keflavfk.) V.b. Hólmsberg sekkur við Grímsey Að morgni laugardagsins, 23. ágúst 1947, um kl. hálf 9, er Hólms- berg GK 395, frá Keflavík var á síld- veiðum við Grímsey, kviknaði eldur ( vélarrúmi bátsins. Varð eldurinn ekki hefur. Sjöstjarnan frá Vest- mannaeyjum, sem þarna var nær- stödd, bjargaði áhöfninni, báðum nótabátunum og nótinni. Engin síld var komin í Hólmsbergið er eldurinn kom upp. Báturinn sökk að nokkr- um tíma liðnum án þess að björgun hans yrði við komið. Hólmsberg GK 395 var eign sam- nefnds hlutafélags í Keflavík. Bátur- inn var 63 lestir, tréskip, smíðaður í Noregi 1920, endurbyggður 1943. í bátnum var þriggja ára gömul vél af gerðinni Ruston-diesel, 136 hest- öfl. Hólmsberg var um tíma í ferðum á milli Reykjavíkur og Akraness, sem leiguskip, líklega á árunum 1945—46. (Mbl. 24. ágúst 1947: ,,Hólmsberg brann og sökk við Grímsey í gær“. A baksíðu Alþýðublaðsins 23. ágúst s.á., er stutt frótt um atburðinn.. bar er báturinn kallaður Iiólmsborg, sem að sjálfsögðu er rangt). V.b. Bjarni Ólafsson í hrakningum Aðfaranótt miðvikudagsins, 17. sept. 1947, er v.b. Bjarni Ólafsson GK 200, frá Keflavík, var að rek- netaveiðum í Faxaflóa, skall á mikið óveður. Báturinn hélt þegar til lands, en á leiðinni bilaði vélin. Bátsverjar gerðu SVFÍ þegar við- vart. Reyndi félagið, að ná sam- bandi við m.s. Faxaborgu, sem þá annaðist gæslu í flóanum. En Faxa- borg var þá við vöruflutninga úti á landi og hvergi nærstödd. Árang- urslausar tilraunir voru gerðar til að ná sambandi við fleiri skip. Loks náðist í togarann Helgafell. En þar sem dýptarmælar skipsins voru bil- aðir, treysti skipstjórinn sér ekki til að aðstoða bátinn. Kom þá Mummi GK, frá Sandgerði, til aðstoðar. Á meðan reyndi skipstjóri Helgafells að miða Bjarna Ólafsson út, en gekk illa, þar sem engin miðunar- stöð var í bátnum. Allan fimmtudag- inn 17. sept., reyndu skipverjar á Bjarna Ólafssyni, að staðsetja bát- inn í gegnum talstöð með aðstoð Mumma. Á sama tíma var unnið að því í Reykjavík að fá síldarleitarskipið FRAMHALD Á BLS. 72 ALLT FYRIR FERMINGUNA 1 Uye.’itaítjafza’i Ufiáta’i <=H cmiízcLX iBCóm (BCá’iliamCa’i ‘LP’izntum á íe.’ujízttu’i. CPjij CCu m á íáCmatjæCu’i. NESBÓK Hafnargötu 54 - Sími 3066 í*. v r-»v> mP' ' r y A fcnnmqaraaqmn 67 FAXI

x

Faxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.