Faxi - 01.02.1986, Page 36
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ VÍÐIR
Laugardaginn 22. febrúar héldu
Víðismenn í Garði árshátíð.
Venjulega þætti slíkt ekki í frásög-
ur færandi, en í þetta sinn var um
að ræða 50 ára afmælishátíð og
slíkt telst ætíð til tíðinda.
Það mun hafa verið í maímánuði
1936, að nokkrir unglingsstrákar
stofnuðu knattspyrnufélagið
Víði. Þeir höfðu stundað spark
um nokkurt skeið úti á Gerða-
bletti og þótti nú tími til kominn
að koma skipan á hlutina. Fyrsti
formaður var Jónas Guðmunds-
son frá Rafnkelsstöðum og vara-
formaður Þorsteinn Gíslason frá
Sólbakka. Það var ekki létt verk
fyrir unglinga að halda félags-
starfi gangandi, á tímum harðrar
lífsbaráttu og fárra tómstunda.
Fyrstu árin voru ekki áfallalaus
og sviplegt fráfall Þorsteins árið
1939 varð félaginu óbætanlegt.
En mjór er mikils vísir. Víðis-
nafnið var vel til fundið, því víðir-
inn er ein harðgerasta og lífseig-
asta jurt íslenskrar flóru og þrátt
fyrir áföll þung og mörg mögur ár,
reis Víðir úr öskutónni. Um stöðu
félagsins nú þarf ekki að fjölyrða.
Meðal íslenskra knattspyrnuliða
er Víðir , ,litli risinn“ og saga liðs-
ins hin síðari ár er ævintýri likust.
Flestum þykir með ólílúndum að
1100 manna byggðarlag geti teflt
fram jafn öflugu knattspyrnuliði.
í Garðinum stendur Víðir nú
styrkum rótum og í skjóli hans
dafnar mikið félagsstarf.
Það er margs að minnast og
mörgum skal þakka á svo merk-
um tímamótum sem 50 ára af-
Sigurdur Ingvursson flytur rœdu
kvöldsins.
Ellert B. Schram, formadur KSÍ.
Finnbogi Bjömsson, oddviti
Gcrdahrcpps.
Sigrún Oddsdóttir, form. Kvcnfé-
lagsins GEFN.
Sigurður Jóhannsson, formaður
Reynis.
Lórus Ásgeirsson frá Lýsi hf.
Ellert Eiríksson sveitarstjóri
Jónína Ásmundsdóttir frá
klúhbi Víóiskvenna.
Jóhann Jónsson.
Ágúst Matthíasson.
Sjóslysaannáll Kc 11 avíkur
Fanney til að aðstoða bátinn. Kom
þá í Ijós, að dráttarútbúnaður var
enginn í Fanney, hann var í Faxa-
borgu. Fanney hélt þó af stað um kl.
8 á fimmtudagskvöldið. Milli kl. 4 og
5 síðdegis sama dag, tókst báti
nokkrum í Reykjavíkurhöfn, að
miða Bj. Ól. út. Hann var þá grunnt
undan Þormóðsskeri við Mýrar.
Hafði bátinn rekið hratt undan vest-
an veðrinu. Enskömmusíðarfórvél
hans í gang og var þegar haldið til
Keflavíkur.
Bjarni Ólafsson var á reki í 12
tfma á flóanum, án þess að aðstoð
baerist. Vegna þessa atburðar urðu
blaðaskrif út af lélegri gæslu á
Faxaflóa.
Bjarni Ólafsson var 35 lesta eik-
arbátur. Smíðaður á ísafirði 1944. í
FRAMIiALD AF BLS. 67
bátnum var 16 ára gömul vél, af
gerðinni Wickmann 90—120 hest-
öfl. Ef til vill var aldurinn skýring á
bilun vélarinnar. En ef að er gáð,
sést, að á þessum árum voru vélar-
bilanir í bátum mjög tíðar. Eigandi
Bj. Ól. var Albert Bjarnason.
(Mbl. 19.9. 1947: „Kellavíkurbátur
á hrakningum í tæplega 12 klst. á
Faxaflóa14).
Framhald í næsta blaði
M/b Bjarni Ólafsson GK 200 full-
smíðadur idrslok 1944 íSkipasmíða-
stöð Marsellíusar Bernharðssonar,
ísajirði. Þórhallur Vilhjúlmsson var
skipstjóri ábátnum fyrstu árin en síð-
an var hann undir skipstjórn Gunn-
laugs Karlssonar um árabil.
72 FAXI