Faxi - 01.02.1986, Page 39
Frá aðaljundi Hradfrystihúss Grindavíkur 1. febrúar sd., sem telja má tima-
móta fund þar sem liðlega helmingur eignarinnar er nií í höndum utanbœjar-
manna. lin tilkoma þeirra gefur vonir um ájramhaldandi rekstur og bœttan
hag fyrirtœkisins.
Tímamótafundur
Grímur haföi fyrrum verið
sýslumaöur í Kjósasýslu og síðar
lögréttumaður. Hann bjó fyrst á
Kirkjubóli á Miðnesi, síðar í Ytri-
Njarðvík og síðast í Keflavík.
A meðan hann bjó í Ytri-Njarð-
yík varð hann velgjörðarmaður
Hallgríms Péturssonar, tók hann
þátt í því að liðsinna Hallgrími,
þegar hann kom frá Kaupmanna-
höfn vorið 1637, félaus og vinafár
með konuefni sitt Guðríði, en þau
komu út í Keflavík. Grímur tók
Guðríði inn á heimili sitt og fæddi
hún þar fyrsta barn þeirra Hall-
gríms þá um sumarið, en I lall-
grímur hefur sennilega unnið hjá
kaupmanninum í Keflavík. Hall-
grímur lenti í fjársektum og
reyndi Grímur að efna til sam-
skota handa honum og ritaði um
það bréf 19. maí 1638, en fyrir
hréf þetta var Grímur dæntdur
fjölmælismaður og bréfið nefnt
lygabréf, og á Alþingi 1639 var
hann dæmdur í 20 dala sekt.
Aðrir bændur sem vitað er um
að búið hafi hér eru:
Árið 1681 var það Jón Brands-
s°n samkvæmt innheimtubók
> > Stríðshjálparinnar' ‘.
Árið Í696 var það Eyjólfur
Sjarnhéðinsson, þar er þá einnig
Snorri Karlsson sem verður að
horga skatt.
Við manntal árið 1703 býr þar
Halldór Magnússon 52 ára. Aðrir
1 heimil voru:
Hallgerður Árnadóttir kona
hans 42 ára frá Stóra Hólmi í
læiru Jakobssonar.
Jakob Halldórsson sonur þeirra
22 ára.
Þorbjörg Nikulásdóttir dóttur-
harn þeirra 3 ára, fædd að Stóru
Vogum þar sem foreldrar hennar
Auðbjörg Halldórsdóttir og Niku-
lás Þóroddsson voru húshjón.
Guðríður Þorsteinsdóttir vinnu-
kona 32 ára og Gunnhildur Þor-
geirsdóttir tómthúskona 52 ára.
Árið 1706 býr Hallgerður þar
ekkja, og
1707-1708 býr sonur þeirra
Jakob þar.
Árin 1709 til 1719 býr þar Einar
hihppusson og
1720 til 1724 Eyjólfur Bjarn-
héðinsson.
1725 til 1729 býr þar Árni Þor-
gilsson, og
1729 en það ár virðist vera tví-
Þýli þar, því skattgreiðendurnir
eru þá tveir og til 1733 býr þar
hlagnús Gíslason.
Arin 1734—1736 er sagöur búa
Par Magnús Jónsson, gæti verið
sá sami Magnús og fyrr er nefnd-
Þr og hér væri rangt föðurnafn, og
árin 1747 til 1750 en það er síð-
asta árið sem skattmanntal þetta
nær yfir, býr þar Matthías Helga-
son.
Árið 1740 gaf Ehr. Drese land-
fógeti út tilskipun þar sem sýslu-
menn voru tilkvaddir ásamt 6
bændum úr hverjum hreppi til að
skoða hús og helstu skemmdir á
konungsjörðum, og var það gert
hér í Rosmhvalaneshreppi 31. maí
1740.
í Keflavík var þá einn meðal
bær og lítið kot.
Þegar bændamanntal er tekið
1762 býr þar Hannes Höskulds-
son fæddur að Hörgslandi í Vest-
ur-Skaftafellssýslu um 1716 og
kona hans Gróa Eiríksdóttir. Með
þeini í heimili er dóttir þeirra 10
ára, tveir drengir á fátækrafram-
færi 11 og 14 ára og einn þurfa-
maður 71. árs.
Hannes hefur verið talinn síðasti
bóndinn í Keflavík, en svo mun
ekki vera, því laugardaginn 14.
júní 1766 eru eftir sýslumannsins
fyrirmælum athuguð „uppskrif-
uð og úttekin kóngsjörðin Kefla-
vfk, sent Hannes Höskuldsson
viðskilur, en Nikulás Halldórsson
viðtekur.“
Þessi Nikulás Halldórsson sem
mun vera síðasti bóndinn hér í
Keflavík, og var hann síðar bóndi
að Litlahólmi í Leiru frá 1783, en
þá fer fram úttekt á þeirri jörð.
Þegar húsvitjað er í nóv. 1789,
en það er elsta húsvitjun í Ut-
skálasókn, er heimilisfólk á Litla-
hólmi: Nikulás Halldórsson, 54
ára, Sigríður Erlendsdóttir, kona
hans 48 ára, og 5 börn þeirra:
Steinunn 21 árs, Vigfús 22ja ára,
Jón 16 ára, Erlendur 9 ára og
Guðrún 8 ára. Nikulás andaðist
úr , ,kölduflögu“ 31. maí 1791.
Mér er ókunnugt um aíkomendur
hans.
Þegar húsvitjun er gerð í desem-
ber 1789 eru skráðir 2 kaupntenn
í Keflavík þeir Christen Adolph
Jacobæus 22 ára og Ole Gislesen
Vaage 25 ára, þar eru auk þess í
heimili Níels Larsen beykir 50 ára
og kona hans og 7 hjón þar af ein
í húsmennsku auk lausafólks, og
var fólksfjöldi alls 35 manns.
Hinn 27. júní 1792 var sam-
kvæmt fyrirskipan Ólafs stift-
amtmanns frá 3. desember 1791
háð söluþing í Reykjavík af Sig-
urði Péturssyni sýslumanni, þar
sem hann bauð til kaups 24 kon-
ungsjarðir á Miönesi.
Jörðin Keílavílt var þar á meðal.
Mat hannar var í landsskuld 4 1/6
hndr. og 1 1/4 vættir, en ekkert
kúgildi.
Þar var jörðin slegin kaupmann-
inum í Keflavík Christen Adolph
Jacobæusi fyrir 50 ríkisdali.
Hraðfrystihús Grindavíkur,
sem stofnað var 14/7 1941 var al-
menningshlutafélag — stofnendur
voru um 100 frá flestum heimilum
í Grindavík, sem áttu afkomu
sína undir sjósókn og fiskiðnaði.
Það hefur því á vissan hátt verið
eins og óskabarn byggðarlagsins,
enda lengst af langstærsti vinnu-
veitandi verkafólks á staðnum. í
seinni tfð hefur það átt í harðri
samkeppni við öflug útgerðarfyr-
irtæki um aflann. Færri aðkomu-
bátar sækja nú Suðurnesjaver-
stöðvarnar en oft áður og er því
minna framboð af fiski.
Útflutningar fiskjar í gámum og
kvótakerfi koma líka við sögu
hraðfrystihúsanna, sem ekki fá
nægt hráefni til að halda uppi
æskilegri vinnu og framleiðslu-
magni sem staðið getur undir
miklum kostnaði húsanna. Mörg
hraðfrystihús hafa því orðið að
hætta starfsemi.
Hraðfrystihús Grindavíkur hef-
ur um nokkurt skeið átt í
greiðsluörðugleikum. Vaxtakerfið
á þar drjúgan þátt í. Til að létta þá
byrði varð að auka eigið fé og var
því auglýst eftir auknu hlutafé eða
sölu hússins að öðrum kosti. Við
þá athugun kom í ljós að 4 Hafn-
firðingar höfðu áhuga á að gerast
hluthafar. Þeir gerðu félaginu boð
sem fallist var á og eiga þeir nú
56% hlutafjárins.
Formlega var gengið frá þessum
málum á aðalfundi Hraðfrysti-
húss Grindavíkur hl’. 1. febrúar
sl.
Þessir nýju félagar eru Ólafur
Magnússon skipatæknifræðingur
og verður hann formaður félags-
stjórnar, Birgir Guðmundsson,
útgerðartæknir, verður .frarn-
kvæmdastjóri, Þorsteinn Máni
Árnason, vinnur hjá Stefni hf.,
sem annast fiskútfiutning og Þor-
leifur Björnsson, sem er skipstjóri
og togaraútgerðarmaður.
Allir þekkja þessir nýju félagar
því vel til þessa atvinnuvegar og er
þess vænst að reynsla þeirra megi
verða Hraðfrystihúsi Grindavíltur
til framdráttar i lramtíðinni. J.T.
Þessir 4 Ilafnjiröingar gengu til lids við Grindvíkinga um rekstur Hraðfrysti-
húss Grindavíkur h.f. Þeir eru talid frá vinstri: Ólafur Magnússon, Þorleifur
Björnsson, Birgir Guðmundsson og Þorsteinn Máni Árnason.
Ljósm. J.T.
75 FAXI