Faxi - 01.01.1990, Qupperneq 23
lega. — það skal tekið fram, að
kostnaður við útgáfu þessa blaðs
(pappír og prentun) er mjög mikill.
Verður því að hafa verð þess nokk-
uð hátt, til þess að standast kostnað-
inn. Um gróðafyrirtæki er því ekki
að ræða.“
Allar götur síðan hefur Faxi skipt
sér sem minnst af pólitiskum erjum,
ef frá eru talin nokkur blöð á árinu
1945 er Reykjanesið deildi stundum
á Faxa.
Að sönnu hefur rúm Faxa þó verið
léð undir pólitísk má), t.d. í hrepps-
nefndarkosningunum 1942, þegar
þeir þrír listar sem buðu fram fengu
hluta blaðsins til afnota.
Fljótlega eftir að útgáfa blaðsins
var komin á nokkuð öruggan
grundvöll komu út 10 tölublöð
hvert. Hélst svo þar til á árinu 191 a
að út komu átta blöð og hefur verið
síðan.
í fyrsta tölublaði Faxa, sem út
kom 21. desember 1940, er þetta
efni: Ávarp til lesenda eftir Valtý
Guðjónsson, „Eigum við að stunda
íþróttir?" Hugvekja um íþróttir og
útiveru eftir Pál S. Pálsson, Minning-
arorð um þá, sem fórust með vél-
bátnum Eggert frá Keflavík, eftir
Ragnar Guðleifsson. „Kvikmyndir"
eftir Hallgrím Th. Björnsson, og
jólahugvekja eftir sr. Eirík Brynjólfs-
son. Slíkar jólahugverkjur hafa síð-
an verið fastur liður í jólablaði Faxa.
Þeim er sammerkt að allar eru þær
eftir presta, en hvernig væri nú að
breyta svolítið til, og lofa leikmanni
að skrifa þá næstu að liðnu ári?
Um efni Faxa mætti annars skrifa
langt mál. í stuttu máii hefur Faxi
gegnt því hlutverki sem útgefendur
settu sér í upphafi. Allur sá mikli
fróðleikur sem þar er saman kom-
inn á einn stað gerir það, að Faxi er
eitthvert merkasta tímarit sem út
hefur komið á landi hér. Efni Faxa
spannar bókstaflega yfir allt sem
Suðurnesjum við kemur. Ég hygg að
ekkert annað blað hafi komist nær
því að verða blað allra Suðurnesja-
manna. Faxi er örugglega mörgum
íbúa Skagans aufúsugestur. Annars
er það líkt með Faxa og Þjóðólfi
gamla, sem Jón Guðmundsson gaf
út á öldinni sem leið, að Faxi er blað
allra Suðurnesjamanna, en Þjóðólf-
ur var að sögn nær því en nokkurt
annað íslenzkt blað fyrr og síðar, að
vera blað allra landsmanna.
Að vísu hefur stormurinn nætt um
stofn þann sem vaxið hefur upp af
Faxa, og í upphafi var honum spáð
snöggum aldurtila. En með harð-
fengi og eindæma dugnaði hefur
Faxamönnum tekist að halda tíma-
ritinu úti í tæpa fjóra áratugi. Geri
aðrir betur! Blaðaútgáfa er ekki
auðveld og verður víst seint gróða-
vegur. Því verður útgáfa blaðsins
seint metin eins og skyldi.
Eðlilega hafa Faxa-menn sjálfir
lagt mest allra af mörkum í blaðið.
En þó misjafnlega mikið. Er ljóst að
fáeinir einstaklingar hafa borið
Skúli Mugnússon
blaðið uppi, og mættu hinir, sem
minna heyrist frá einnig leggja orð í
belg.
Hallgrímur Th. Björnsson skrifaði
t.d. geysi mikið í Faxa meðan hann
var ritstjóri og sparaði sér ekki spor-
in. Magnús Gíslason, núverandi rit-
stjóri, hefur einnig skrifað töluvert.
í hans tíð hefur orðið mest útlits-
breyting á blaðinu er farið var að lit-
prenta það. Magnús sinnir töluvert
leiklist og er auk þess fréttaritari
Dagblaðsins á Suðurnesjum. Einnig
hefur hann skrifað töluvert í Suður-
nesjatíðindi þó það sé á fárra vit-
orði. Rétt er að benda á að vinna rit-
stjóranna er eingöngu unnin í stop-
ulum tómstundum frá brauðstritinu.
Af einstökum félagsmönnum sem
skrifað hafa mest í blaðið má nefna
þá Jón Tómasson, Ragnar Guðleifs-
son, Guðna Magnússon og Valtý
Guðjónsson.
Guðni og Ragnar hafa einkum
skrifað afmælis- og minningargrein-
ar. Eru flestar þeirra töluvert efnis-
miklar og margar merkilegar heim-
ildir. Guðni hefur einnig skrifað
þætti úr sögu Reglunnar á Suður-
nesjum. Eru það hinar fróðlegustu
greinar og upphaf að félagsmála-
sögu byggðanna.
Ekki er hallað á neinn þó bent sé
á að Marta Valgerður Jónsdóttir er
sú sem mest hefur skrifað í blaðið af
utanfélagsmönnum. Eru greinar
hennar í rúmlega tólf árgöngum
stórmerkilegt framlag til íslenskrar
persónusögu. Þær einar gera Faxa
alla tíð eftirsóttan þegar ausa skal af
sagnabrunni Suðurnesja. Er annars
skaði að greinarnar skuli ekki sér-
staklega hafa verið gefnar út í bók.
Slíkt verk þyrfti vel fær ættfræðing-
ur að taka að sér, því ekki fer fram
hjá að sumt þarf að leiðrétta, eins og
gengur.
Marta var því vel að þeim heiðri
komin, er bæjarstjórn Keflavíkur
sæmdi hana heiðursskjali á 75 ára
afmæli hennar fyrir hið merka
framlag hennar til Suðurnesjasögu.
FRAMHALD Á BLS. 30
SAMABYRGÐ ISLANDS
Á FISKISKBPUM
LÁGMÚLA 9 SÍMI 81400
P.O. BOX 5213
STOFNSETT
1909
SAMÁBYRGÐIN TEKST Á HENDUR EFTIRFARANDI:
Slysatryggingar
Afla- og veiðarfæratryggingar
Ábyrgðartrygging útgerðarmanna og skipshafna
Farangurstrygging fiskiskipa
Endurtrygging fiskiskipa undir 100 smálestum
Trygging skipa yfir 100 smál.
Aldurslagasjóður fiskiskipa
Nýsmíðatryggingar og
ábyrgðartryggingar fyrir
skipasmíðastöðvar
Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftirtaldir
umboðsmenn vorir veita allar nauðsynlegar
upplýsingar varðandi tryggingar þessar og
taka á móti tryggingarbeiðnum:
VÉLBÁTAFÉLAGIÐ GRÓTTA, REYKJAVÍK
BÁTATRYGGING BREIÐAFJARÐAR
VÉLBÁTAÁBYRGÐARFÉLAG ÍSFIRÐINGA
VÉLBÁTATRYGGING EYJAFJARÐAR, AKUREYRI
SKIPATRYGGING AUSTFJARÐA, HÖFN
VÉLBÁTATRYGGING REYKJANESS, KEFLAVÍK
FAXI 23