Faxi - 01.01.1990, Page 27
Keflavík og Njarðvík
eignast Landshöfnina
Mikið hefur verið um að vera hjá
starfsmönnum Landshafnar Kefla-
víkur og Njarðvíkur að undanförnu.
Fyrst ber að nefna, að þann 28. des-
ember sl. var Landshöfnin afhent
bæjarstjórnum Keflavíkur og Njarð-
víkur til eignar á nýjan leik, en það
var árið 1946 sem hafnirnar í Kefla-
vík og Njarðvík voru teknar yfir af
ríkinu.
Aðdragandinn að þessari athöfn
er í stuttu máli sá, að á árinu 1984
voru samþykkt ný hafnalög á Al-
þingi sem fólu m.a. í sér, að ríkinu
var heimilað að afsala sér lands-
höfnunum þremur, þar á maðal
Landshöfninni í Keflavík og Njarð-
vík. Þegar svo lögin um verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga voru sam-
þykkt á síðasta ári, þá var þetta
skref stigið til fulls. Undanfarna
mánuði hafa svo þessi eigendaskipti
verið til umfjöllunar, því margs
þurfti að gæta við þessa viðamiklu
breytingu. Náðist að gera samning
milli aðila rétt áður en nýju lögin
tóku gildi þann 1. janúar 1990.
Faxi fékk hafnarstjórann, Pétur
Jóhannsson, i stutt viðtal til að for-
vitnast um þessi viðskipti hafnanna.
Við báðum Pétur að segja okkur frá
því helsta sem um var samið við rík-
ið.
„Það sem gerist er, að bæirnir
sameiginlega fengu öll hafnar-
mannvirki, tæki og lausafjármuni
hafnanna til eignar. Þetta fá þeir
skuldlaust, ef undan er skilið lán
vegna fasteignakaupa frá árinu
1987, u.þ.b. tvær milljónir. Þá var
um það samið, að óhafið framlag á
fjáraukalögum 1989, 11,7 milljónir
verði notaðar til nýframkvæmda á
árinu 1990. Einnig að bætur fáist úr
hafnabótasjóði, kr. 3 milljónir,
vegna hafnargarðsins í Keflavík.
Þessu til viðbótar fengum við nýja
lóðsbátinn skuldlausan. (sjá nánar
hér á eftir — innskot)"
Samkvæmt upplýsingum Péturs
eru helstu eignir hafnanna sem hér
segir:
Skrifstofuhúsnæði að Víkurbraut
11 ásamt verkstæði í kjallara svo og
hafnarvigtin.
Hús það er Fiskmarkaður Suður-
nesja starfar nú í að Vatnsnesvegi 7.
Bryggjuvarðarskúr í Njarðvík.
Vitinn á Vatnsnesi.
Öll hafnarmannvirkin í Keflavík
og Njarðvík með tilheyrandi raf-
mangs- og vatnslögnum og skúrum.
Lóðir í Keflavík að Víkurbraut
1—11 og í Njarðvík allur Bakkastíg-
urinn, austari hluti Brekkustígs og
Sjávargatan að sunnanverðu. Einn-
ig svæðið á Fitjum sem markast að
norðanverðu af Sjávargötu og vest-
anverða af Reykjanesbraut og að
sunnan af Seylubraut.
Allt stórstraumsfjöruborð frá
Stakki og að Ytri-Skor á Stapa til-
heyrir einnig höfninni.
Samstarfssamningur milli
bœjarfélaganna
Bæjarstjórnir Njarðvíkur og
Keflavíkur hafa gert með sér samn-
ing um sameiginlegan rekstur hafn-
anna. Það verður sjálfstætt fyrir-
tæki með sjálfstæðan fjárhag sem
mun sjá um reksturinn á þeim.
Starfsmenn hafnarinnar sem áður
störfuðu hjá ríkinu munu nú starfa
hjá hinu nýja fyrirtæki og verða þeir
félagar í Starfsmannafélagi Suður-
nesjabyggða. I dag vinna sjö manns
við höfnina, þ.e. hafnarstjórinn Pét-
ur Johannsson hafnsögumennirnir
Jóhann Pétursson og Ibsen Angan-
týsson (sem jafnframt eru hafnar-
verðir í Keflavík), vigtarmennirnir
Þórhallur Helgason og Guðmundur
Þorvaldsson og hafnarverðirnir
Karl Sigurbergsson og Meinart Nils-
sen.
Hvað á nýja höfnin að heita?
í dag eru menn að velta fyrir sér
nafni á höfnina, en þegar blaðið fór
í prentun, þá lá það ekki fyrir. Verð-
ur skýrt frá því síðar.
Ný hafnarstjórn hefur tekið til
Star/smenn hafnarinnur í Ke/lavfk og Njarðvík. Aftari röð frú vinstri: Mrhallur
Helgason, (iudmundur l>orvaldsson, Karl Sigurbergsson og Meinart Nilssen.
Sitjundi frú vinstri: .lóhunn IVtursson, l’étur Jóhannsson og Ihsen Angantýsson.
FAXI 27