Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 2

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 2
MÉ •' | \ Éfc 'MI MÉ itia Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Hönnun, setning og umbrot: | I \t \ \ Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 92-11114. Leturval sf. ís< 1 \ i, Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri, Filmu- og plötugerð: 1 1 ( \ f Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri, Myndróf Birgir Guðnason, Vilhjálmur Þórhallsson Prentun: 1. TÖLUBLAÐ -51. ÁRGANGUR og Hjálmar Stefánsson. Prentstofa G: Benediktssonar Meðáí efnts Bláa lónið í Svarts- engi og hugsanlegir framtiðarmöguleikar. Suður- nesialiðin hara örugga forystu í körfu- boltanum. Úr sögu bifreiðanna - fróðleggrein eftir Guðmund B. Jónsson. Enn um Faxa fimmtugan. Helní Hólm: Persafíóastriðtð Pessa dagana er okkur fátt eins ofarlega í huga og átökin vid Persaflóa. Þótt viö hér á Islandi séum fjarri átökunum, þá er eins og við séum í miðri at- burðarásinni, því hin sívakandi augu sjónvarpsvélanna sýna okkur stöðugt, hvað er aö gerast. Flestum er kunnugt um, að átökin við Persaflóa hófust með því, að herir Saddam Hussein í írak réðust inn í Kuwait og hertóku landið. Viðbrögö ann- arra þjóða urðu flest á einn veg og var innrásin víðast hvar fordœmd. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að fá Iraka til að fara frá Kuwait, þá hélt Saddam sínu striki. Það var síðan vissulega sögulegur viðburður, að Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna samþykkti að heimila stríðsaðgerðir gegn írak. Hvort það er upphafið að einhvers konar alheimslögreglu mun framtíðin ein skera úr um. Enginn getur á þessari stundu sagt fyrir um það, hversu lengi þetta stríð muni standa yfir, það gœti staðið í nokkra mánuði, eöa um árabil. Hitt er víst, að eftirleikurinn mun vara í mun lengri tíma, því eins og sagt hefur ver- ið, þá eru engir sigurvegarar í stríði — aðeins fórnarlömb. Þegar Faxi kom fyrst út veturinn 1940, þá haföi seinni heimstyrjöldin staðið yfir í eitt ár. I fyrstu árgöngum blaðsins má glögglega lesa sér til um, að stríð- ið hafði margs konar afleiðingar í för með sér. Jafnvel hér uppi á íslandi, sem þó var aðeins í litlum mœli vettvangur hildarleiksins, mátti sjá miklar breytingar. I dag, hálfri öld síðar, eru þjóðir heims enn að fást við að leysa þau vandamál sem stríðið skapaði. Að vísu er Berlínarmúrinn fallinn og Þýskaland hefur sameinast, en í mörgum löndum eru vandamálin enn óleyst. Nœgir í því sambandi að nefna sjálfstœðisbaráttu Eystrasaltsríkjanna. Forsíðumyndín sem smn i Faxa og hinum ýmsu félögum á Suðurnesjum sem hann tekið þátt í. Forsíðumyndin er tekin afHeimi Ijósmyndara. Það er einlœg von okkar allra, að átökin við Persaflóa fái sem fyrst farsœlan endi. Ef svo veröur ekki, þá er sú hœtta fyrir hendi, að allt fari úr böndum. Nú þegar er áhrifa stríðsins farið að gœta á daglegt líf víða um heim og það þarf í raun ekki mikið til að átökin magnist með skelfilegum afleiðingum. Við íslendingar hljótum að hvetja til þess, að sem fyrst verði komið á vopnahléi til þess, að hœgt verði að vinna að friðsœlli lausn sem allir aðilar geti sœtt sig við. 2 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.