Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 4
Bæjarstjórn Sandgerðis. Aftari röð frá vinstri: Stefán Jón Bjarnason, bæjarstjóri, Sigurður I*. Jóhannsson, Pétur Brynjars-
son, Ólafur Gunnlaugsson og Reynir Sveinsson. Fremri röð frá vinstri: Óskar Gunnarsson, Sigurður Bjarnason og Sigurjón
Jónsson. Ljósm. Heimir.
Þann 3. desember 1990 var Miöneshreppur formlega gerdur að kaupstað og
hlaut hann nafnið Sandgerði. Þessi dagur var ekki valinn af tilviljun, heldur
vildi hreppsnefndin tengja þennan merka atburð við annan atburð sem gerðist
3. desember árið 1886. Þann dag varð Miðneshreppur til á nokkuð sögulegan
máta. Þá var þáverandi Rosmhvalanesshreppi skipt upp í tvo hreppa og hlaut
annar þeirra nafnið Miðneshreppur en hinn hét áfram Rosmhvalanesshreppur.
Segir svo í bréfi landshöfðingja um þessa skiptingu:
4 FAXI