Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 5
..Rosmhvalanesshreppi I Gull-
hringu- og Kjósarsýslu skal skipt í 2
hreppa, þannig að innri hreppurinn
nái yfir Keflavík, Leiru, Inn- og Ut-
Garð allt að landamerkjum milli Út-
skála og Kirkjubólshverfis og nefn-
ist sá hreppur Rosmhvalanesshrepp-
ur, en hinn hreppurinn nái frá
greindum landamerkjum suður að
syðri landamerkjum Stafnes við
Osabotna og heiti Miðneshreppur,
með þessum landamerkjum: frá
Litluflös, er liggur fast sunnan
Garöskagaflös í fjöru beint sem sjón-
hending ræður eptir fornaldar garð-
vegi uppí svonefndan Draughól á
Skaganum, þaðan að Skálareykjarj-
ett, þaðan sjónhending aö Kölku á
Háleyti, þaðan að Gömluþúfu sunn-
antil á Háaleyti, þaðan aö Beinhól;
þaðan í sjó eptir Djúpavog við Ósa-
botna."
Hefur því Miöneshreppur sam-
kvæmt framansögðu verið við lýði í
rúma öld og var þess reyndar
minnst á veglegan hátt á aldaraf-
mælinu.
Aðdragandi og
undirbúningur
Faxi kannaði aðdraganda þess, að
hreppurinn tók sér kaupstaðarrétt-
indi og það varð úr, að við fengum
Brynjar Pétursson, kennara og nú-
verandi bæjarstjórnarmann, til að
spjalla við okkur um máliö og gef-
um við því honum orðið.
,,Sú umræða hefur verið nokkuð
lengi í gangi, að það væri orið tíma-
bært að breyta Miðneshreppi í kaup-
stað. Fyrir kosningarnar í fyrra voru
einnig flestir flokkarnir með þetta á
sinni stefnuskrá og þegar núverandi
meirihluti D og K lista tók til starfa,
þá var gert um þetta samkomulag."
,,Huernii> fór undirbúniní>urinn
fram, ekki hefur hann uerid lítill?"
„Jú, hann var allnokkur. Hrepps-
nefndin skipaði undirbúningsnefnd
og áttum viö Reynir Sveinsson sæti
í henni, ásamt því að Stefán Jón
Bjarnason, sveitarstjóri, var okkur
til fulltingis. Við byrjuðum á að fara
yfir allar samþykktir um starf sveit-
arstjórnarinnar og gera tillögu um
breytingar á þeim. Það kom mér
ntikið á óvart, hversu mikill frum-
skógur það reyndist vera, því alls
staðar þarf að skírskota til viðkom-
andi laga og reglna."
,,Huada skilyröi þurfti hreppurinn
oð uppfylla til ad geta ödlast þessi
réttindi?"
,,Nú, einu skilyrðin eru raunveru-
lega þau, að íbúafjöldinn þarf að
vera eitt þúsund og þarf að hafa ver-
iö það í undanfarin tvö ár. Hvað
Þetta snerti, þá höðfum við uppfyllt
betta í mörg undanfarin ár, en íbúa-
fjöldinn er nú tæp þrettánhundruð."
Það kom fram í máli Péturs, að
nndirbúningsnefndin hafði veg og
vanda af undirbúningi hins fyrsta
Bæjarstjórnarfundar. Var öllum íbú-
nm bæjarins svo og ýmsum gestum
Boðið til fundarins, en liann var
Mikill fjöldi blóma barst Sandgerðingum í tilefni dagsins. Bæjarstjórinn, Stefán Jón Bjarnason í ræðustól.
Kirkjukór Hvalsnessóknar flutti nokkur lög á hátíðinni. Vid þao tækifæri vígði kórinn þó nýju búninga
sem hér sjást.
Reynir Sveinsson. bæjarfulltrúi, tekur sig vel út sem tertuflensari. Finnbogi Björnsson, oddviti Gerðahrepps,
þiggur væna sneið úr höndum nágranna sinna.
FAXI 5