Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 6

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 6
Þegar komið er til Sandgerðis, þá liggur leidin f ram hjá þessu stórfallega listaverki sem reist var á eitthundrað ára afmæli Miðneshrepps. Verkið ber nafnið Alög og það er listakonan Steinunn Þórarinsdóttir sem er höf- undur þess. Ljósm. HH. haldinn í hinu ágæta íþróttahúsi bæjarins. I boösbréfi sem allir bæj- arbúar fengu frá hreppsnefndinni segir m.a.: „Af hverju að breyta hreppi í bæ? Enginn aukakostnaöur felst í því fyrir sveitarfélagið að verða bæjar- félag. Hins vegar falla í ákveðnum tilvikum niður kvaðir, svo sem rekstrarþátttaka í Bókasafni Kefla- víkur. Umfjöllun og upplýsingar í opinberum stofnunum og fjölmiðl- um er oftast meiri og nákvæmari þegar um bæjarfélög er að ræða. Öll samskipti, framsetning og kynning er auðveldari og árangursríkari hjá bæjarfélögum, ekki sist þegar nafn þess fer saman við þann stað sem þekktastur er í byggðinni. Þá er það einnig löngu tímabært að íbúar sveitarfélagsins verði bæjarbúar, enda hefur íbúafjöldi Miðneshrepps gefið tilefni til þess í mörg ár. Breytingin hefur ekki áhrif á stöðu eða samskipti sveitarfélagsins við íbúana inn á við, að öðru leyti en því að sett verður á stofn þriggja manna bæjarráð, sem er fljótvirkari afgreiðslustofnun á erindi íbúanna en hreppsnefnd. Hreppsnefnd verð- ur bæjarstjórn, oddviti verður for- seti bæjarstjórnar, sveitarstjóri breytist i bæjarstjóra og aðrir starfs- menn hreppsins verða bæjarstarfs- rnenn." Fyrsti bæjarstjórnarfundurinn Dagskrá hins fyrsta fundar var í stuttu máli sem hér segir: Sigurður Bjarnason, aldursforseti hreppsnefndarmanna, setti fundinn og stýrði honum. Síðan fór fram kjör í hin ýmsu störf og var Sigurður Bjarnason kjörinn forseti bæjar- stjórnar og Óskar Gunnarsson vara- forseti. Annar varaforseti var kjör- inn Sigurður Þ. Jóhannsson. Þá voru Pétur Brynjarsson og Reynir Sveins- son kjörnir skrifarar bæjarstjórnar. Til vara: Ólafur Gunnlaugsson og Sigurður Þ. Jóhannsson. Eftirtaldir voru kjörnir í bæjarráð: Sigurður Þ. Jóhannsson, Ólafur Gunnlaugsson og Reynir Sveinsson. Til vara voru kjörnir þeir Pétur Brynjarsson, Sig- urður Þ. Jóhannsson og Óskar Gunnarsson. Þá var og samþykkt, að veita fulltrúa lista er ekki á full- trúa í bæjarráði, rétt til setu þar með málfrelsi og tillögurétti. Þegar þessar kosningar voru yfir- staðnar voru lagðar fram og sam- þykktar tvær tillögur er varða skipulag í hinum nýja kaupstað. Var önnur um íbúöarbyggingar fyrir aldraða við Suðurgötu, en hin var um skipulag framtíðarútivistar- svæðis ofan við bæinn í grjótnámi sem þar, en þaðan hefur verið tekið mikið grjót í hina ágætu höfn þeirra Sandgerðinga. Að þessu loknu var fundi slitið og hófst nú hátíðarsam- koma er mæltist vel fyrir hjá hinum mikla fjölda er viöstaddur var þenn- an merkisfund. Hálíöarsamkoma Bæjarstjórinn, Stefán Jón Bjarna- son, stýrði samkomunni og kynnti bæði þá gesti er til máls tóku og einnig þá listamenn er fluttu ýmis ágæt atriði. Þeir sem fram komu voru Blásarasveit tónlistarskólans undir stjórn Odds Björnssonar, kirkjukór Hvalsnessóknar undir stjórn Önnu Maríu Guðmundsdótt- ur og einsöngvaranrir Ingibjörg Hjördís Einarsdóttir og Lilja Haf- steinsdóttir. Undirleikari þeirra var • Frank Herlufsen. Fjölmargir gest- anna tóku til máls og færðu hinum nýja kaupstað árnaðaróskir og full- trúar nágrannasveitafélaganna færöu bænum góöar gjafir. Þá flutti séra Hjörtur Magni Jóhannsson hugvekju. Hátíðinni lauk siðan með því að bornar voru fram veitingar og stóðu þá hinir nýju bæjarfulltrúar svunt- um skrýddir og skáru gestunum vænar sneiðar af mikilli afmælis- tertu sem bökuð var af Valgeirsbak- arí í Njarðvík. Fórst þeim það verk vel úr hendi og var efalaust góð vís- bending um gott og þróttmikið starf í Sandgerði í framtíðinni. Eftirtaldar gjafir hlaut bæjar- stjórnin, en þar aö auki var íþrótta- salurinn skrýddur blómum sem til samkomunnar bárust. Frá Grindavík — borðfáni á stöng. Frá Vatnsleysustrandarhreppi — málverk eftir Hrein Guðmundsson. Frá Njarðvík — málverk eftir Sig- ríði Rósinkars. Frá Keflavík — áritað eintak af verkinu Keflavík i byrjun aldar. !) Frá Gerðahreppi — málverk eftir Gunnlaug Blöndal. Faxi þakkar Pétri aðstoðina og vill jafnframt færa íbúum Sandgerðis óskir um bjarta framtið. H.H, Yií þegar barnið ykkar er hœtt að nota snuð!!! Hefur nokkuð gleymst að láta fagmann taka myndir af barninu á þessu skemmtilega tímabili sem aldrei kemur til baka. Munið þið ekki eftir gömlu myndunum af ykkur sjálfum, þegar þið voruð á þessum aldri. Kannski voru þœr teknar af Heimi Ijósmyndara — ég er enn ífullu jjöri og tilbúinn að mynda börnin ykkar í dag. Myndatökur í lit og svart/hvítu að ykkar óskum. Pantið tíma í síma 14930 eða 11890. UOSmmASTOFA SVDIRHESJA HAFNARGÖTU 79 KEFLAVÍK 6 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.