Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 7
VIÐAUKI VIÐ
AÐALSKIPULAG GRINDAVÍKUR
Fimmtudaginn 24. janúar s.l. hélt bæjarstjórn Grindavíkur
fund í Festi til aö kynna viðauka viö aðalskipulag Grindavíkur
sem hún hefur látiö vinna. Var fundurinn vel sóttur, bæði af
heimamönnum og öðrum er lengra voru aö komnir. Skipulag-
iö er unnið af Árna Þorvaldi Jónssyni, ungum arkitekt er fyr-
ir skömmu hefur lokið námi sínu í Frakklandi. Árni er Grind-
víkingur, en hann er sonur fyrrverandi sóknarprest, Jóns
Árna Sigurössonar. Haföi hann m.a. unnið viö skóla sinn
verkefni sem byggöust á möguleikum þeim er Grindvíkingar
ráða yfir í sambandi við heilsuver í námunda við Bláa lónið
í Svartsengi.
Þaö var Jón Gunnar Stefánsson,
bæjarstjóri Grindavíkur, er stjórnaði
þessum kynningarfundi, en Árni
fylgdi tillögunni úr hlaöi. Máli sínu
til frekari skýringar sýndi Árni ljós-
myndir, uppdrætti og efni á glærum.
Fer hér á eftir yfirlit um megin-
drætti tillögunnar.
Gildandi aðalskipulag fyrir
Grindavík var samþykkt árið 1984.
Þegar það var unnið voru menn enn
aö uppgötva Bláa lónið og eigin-
leika jarðsjávarins í því. Hugmyndir
voru óljósar um hvað væri í raun
hægt að gera úr þessu fyrirbrigði og
því ekki talið aðkallandi að skipu-
leggja landnotkun þar í kring.
Um 1988 var mönnum orðin Ijós
nauðsyn þess aö hafa einhverja
stjórn á þeirri uppbyggingu og móta
um leið framtíðarstefnu fyrir svæð-
ið.
Ég var beðinn að kynna hug-
myndir mínar þar að lútandi á aðal-
fundi Sambands Sveitarfélaga á
Suðurnesjum 28. október það ár og
virðast þær hugmyndir hafa fallið í
góðan jarðveg. Ég var svo ráðinn til
Árni Þorvaldur Jónsson kynnir
hugmyndir sínar á fundinum.
að útfæra þær hugmyndir og tengja
við gildandi aðalskipulag og eru
það þau drög sem hér eru kynnt al-
menningi.
Þegar unnið er að skipulagi þarf
fyrst að skilgreina markmið og vil
ég þakka gott samstarf við bæjarráð
Grindavíkur og samstöðu fleiri aðila
um þessi markmið.
Þau helstu eru þessi:
1. Að byggja upp örugga aðstöðu til
almennra baða.
2. Að byggja upp fullkomna læknis-
og meðferðaraðstöðu fyrir psori-
asis- og exemsjúklinga, auk með-
ferðaraðstöðu fyrir t.d. gigtar- og
astmasjúklinga.
3. Að þessi aðstaða uppfylli skilyrði
þau sem FITEC (alþjóðleg sam-
tök fyrir heilsuböð og lofslags-
meðferð) setur fyrir viðurkenn-
ingu slíkra heilsubaðsstöðva.
4. Að losa Hitaveitu Suðurnesja við
alls óskylda starfsemi úr bæjar-
hlaði hennar og gefa lóninu þar
með að fullu sitt upphaflega hlut-
verk að vera öryggisventill fyrir
varmaskiptin.
AÐALSTÖÐIN HF
SÍMI 11515
ÞJÓNUSTA ALLAN SÓLARHRINGINN
FAXI 7