Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 18
:ötai'f-ið
þ
J. orst
Fimmtán ára gamall Keflvíkingur, Kristín María Gunnars-
dóttir lenti nýlega í fyrsta sæti í smásögukeppni Æskunnar.
Undirrituð fór á stúfana og ræddi við þennan upprennandi
rithöfund.
,,Kristín, twcid otli því ad þú tókst
þátt í þessari kepprti?"
„Fyrir rúmu ári var smásögugerð
verkefni í skólanum, og þar sem ég
átti smásögu síðan þá, datt mér í
hug að senda hana.“
,,Hefuröu ádur tekid þátt í keppni
sem þessari?"
„Þegar ég var tólf ára tók ég þátt
í þessari sömu keppni."
„Hefurdu gert mikid af því um |
œvina, ad semja sögur?"
„Nei, ég skrifa nú ekki mikið, en
stundum þegar mér dettur eitthvað
í hug, skrifa ég stuttar sögur.“
Eg bid Kristínu ad segja adeins frá
verdlaunasögunni.
„Sagan heitir „Kvalir á Norður- §
slóðum". Hún er um ríka stúlku og §
hugsanir hennar eitt sinn er hún var |
að lesa blað á veitingahúsi. Hún |
hneykslast á vitleysingunum á ís- |
landi sem veiða hvali, og vill reyna |
að gera eitthvað í málinu. Svo kem-
ur í Ijós að hún er í minkapels og að
borða hreindýrakjöt."
„Hver eru svo verdlaunin?"
„Þau eru ferð til Washington. |
Þangað mun ég fara ásamt verð- §
launahafa í getraun sem Æskan stóð |
einnig fyrir, og eflaust fara einhverj-
ir fullorðnir með okkur."
,, Kristín, hefur þú hugsad þér ad |
starfa sem rithöfundur í náinni |
framtíd?"
„í hreinskilni sagt þá veit ég það
ekki. Ég er enn ekki búin að ákveða §§
við hvað ég ætla að starfa á kom- §§
andi árum."
Eg þakka Kristínu Maríu fyrir við- i
talið og óska henni góðrar ferðar. |
Hrund.
orsteinn Jóhannesson á Reynistaö í Gardi á, sem mörgum er kunnugt, ad baki langan
og farsœlan skipstjórnar- og útgeröarferil. llla kann hann því aö hafa ekkert fyrir stafni, ná
þegar hinum formlega starfsdegi má heita lokid. Hann kann þó ráö við því. Þorsteinn er
annálaður hagleiks- og hirðumaöur. Hann hefur í tímans rás verið áskrifandi að tímaritum
um sjávarútvegsmál og málefni heimahéraðs. Því var það, þegar nú gafst tími til, að Þor-
steinn varð sér áti um nauösynlegustu bókbandsgögn ásamt leiðbeiningum. Hefur hann nú
hafist handa við að binda inn þessi tímarit.
Fyrir skömmu leit tíðindarmaður Faxa viö hjá Þorsteini og fekk hann með fortölum til að
samþykkja að meðfylgjandi mynd yrði tekin. Eins og myndin ber með sér, þá fœst Þorsteinn
nú m.a. við að binda inn Faxa og ber handbragðið hagleiksmanninum fagurt vitni.
Ljósmynd K.A.J.
18 FAXI