Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 19
Ægir Sigurdsson, ad-
slodarskólameislari í
rœduslól t>id skólaslit-
in.
Ljósmynd: Heimir.
SKOLASJ.IT a
HAUSTONN 1990
Ciestir, heimámenn, útskriftaraðall!
Viú brautskráningu hefur sú hefú
skapast að fluttur er annáll annar-
innar. I honum er gerð grein fyrir
því helsta í skólastarfinu svo sem
breytingum á starfsliði, nemenda-
fjölda, einstaka uppákomum og nýj-
ungum í starfseminni. Pistill þessi
hefur þótt þurr og leiðinlegur og
mun ég að sjálfsögðu halda þeim
sið.
Boðað var til kennarafundar 28.
ágúst.
28. og 30. ágúst voru vinnufundir,
þar sem starf annarinnar var skipu-
lagt, þrátt fyrir ágreining um vinnu-
skyldu kennara í ágúst. Ágreiningur
þessi reis vegna þeirra ólaga sem
sett voru á kjarasamninga BHMR fé-
laganna. Pess gætir.nokkuð í skóla-
starfinu að þungt er í kennurum og
að þeir eru orðnir langþreyttir á því
að viðsemjendur þeirra fyrr og nú,
virðist gjörsamlega fyrirmunað að
standa við gerða samninga og hvað
þá gefin loforö.
Kennsla hófst samkvæmt stunda-
skrá 4. sept., prófin hófust 3. desem-
ber og þeim lauk þann 14. desem-
ber.
Prófsýni og valdagur verða 18.
desember eöa 2 dögum eftir út-
skrift. Litlar breytingar uröu á
starfsliðinu, eins og undanfarin ár,
en það leiöir til aukinnar festu í
skólastarfinu.
Tveir nýir kennarar hófu störf í
byrjun annar. Gunnlaugur Jónsson
dönskukennari, sem kom í stað Al-
dísar Sigurðardóttur sem nú kennir
við Háskóla Islands.
Jón Kr. Gíslason íþróttakennari,
sem leysir af Guöna Kjartansson,
sem er í framhaldsnámi við virtasta
íþróttaskóla Kvrópu í Köln í Þýska-
landi.
í nóvember var Björn Bjarnason,
ráðinn til að undirbúa kennslu á iðn-
braut netageröar. Brautin tekur til
starfa á vorönninni og verður fyrir
allt landið þ.e.a.s. einungis verður
hægt að taka sérgreinar hennar við
FS. Þórunn Friöriksdóttir kom aftur
til starfa í haust að loknu fæðingar-
orlofi.
í byrjun annar endurheimtum við,
eftir eins árs fjarveru, skólameistara
okkar Hjálmar Árnason. Síðast lið-
inn vetur, dvaldi hann ásamt fjöl-
skyldu sinni í Kanödu, þar sem hann
lagöi stund á framhaldsnám í skóla-
stjórn. Af miklu haröfylgi lauk hann
masterprófi í greininni á þessum
eina vetri. (Þess má geta að hann
sérhæfði sig í skólun indíána því
þá taldi hann einna líkasta Suð-
urnesjamönnum til orðs og æð-
is).
Nám Hjálmars hefur þegar skilaö
sér í ýmsum nýjungum í skólastarf-
inu.
Magnús Ó. Ingvarsson tók við
áfangastjórastarfinu af Gísla Torfa-
syni sem gegndi því með miklum
ágætum um 1. árs skeið.
Skólinn fékk nýja skólanefnd í
kjölfari sveita- og bæjarstjórnakosn-
inga. í henni sitja: Sigríður Jóhann-
esdóttir, skipuð af menntamálaráð-
herra en hún er jafnframt formaður.
Tilnefnd af sveitarstjórnum eru.
Guðbjörg Ingimundardóttir varafor-
maður, Kristbjörn Albertsson og
Guöjón Kristjánsson. Kosnir af
starfsmönnum: Gísli Torfason og
Magnús Ó. lngvarsson og tilnefndur
af nemendafélaginu Jón Páll Eyj-
ólfsson.
Fjöldi nemenda á önninni var eft-
irfarandi: í dagskóla 581, í öldunga-
deild 130, á flugliðabraut 16 en
brautin er útibú okkar á Reykjavík-
urflugvelli og starfar á Háskólastigi.
í námsflokkum voru um 80 nem-
endur.
Af einstökum atburðum annar-
innar má nefna að sendur var út
kynningarbæklingur til foreldra
með almennum upplýsingum um
skólann og um ástundun nemenda.
En sumir nemendur okkar stunda
nám sitt illa og höfum viö af því
þungar áhyggjur. Hvernig á þessu
stendur og hvernig bæta megi úr,
verður að vera viðfangsefni skólans
og forráðamanna viðkomandi nem-
enda svo og nemenda sjálfra.
Þann 19. nóvember stóðu nokkrir
nemendur skólans fyrir glæsilegri
tölvusýningu.
22. nóvember voru nokkrir nem-
endur, sem valdir voru af handa-
hófi, boðaðir á óformlegan „spjall-
fund" um líðan þeirra í skólanum.
Fund um skólasálina. Öllum leið
þeim með ágætum í skólanum og
lýstu yfir sérstakri ánægju með stoð-
kerfið og þeim breytingum. Eftir
nokkrar umræður komu fram þess-
ar ábendingar. Fjölga þyrfti ferðum
til og frá skólanum í önnur byggðar-
lög á Suðurnesjum og að nemendur
bæru engan kostnað af þeim. Bæta
þyrfti félagsstöðu nemenda, mötu-
neytisaðstaðan yrði bætt og matur-
inn niöurgreiddur og að fjölga þyrfti
stoðtímann í ákveðnum áföngum.
Frá Iðnsveinafélagi Suðurnesja
barst ósk um samstarf við að koma
á fót eftirmenntunarnámskeiðum
fyrir iðnaðarmenn. Að öllu óbreyttu
hefjast námskeiðin á næstu vorönn.
Breytingar í skólastarfinu eru
nokkrar. Má þar m.a. nefna að hefja
stoðið strax í 2. viku í stað þeirrar 4.
eins og veriö hefur frá upphafi.
Breytingin virðist hafa verið til góðs
því nemendur hafa nýtt sér kerfið
mun betur á þessari önn en þeim
fyrri. Ekki hefur þó tekist að koma
í veg fyrir að ásókn nemenda í suma
áfanga er mun meiri en kennarar
ráða við meðan aðrir stoðtímar eru
vannýttir. Einnig er nýtingin lítil eft-
ir kl. 4.
Áfram er haldið með tilrauna-
kennslu í samfélagsgreinum með
starfsbraut (atvinnulífsbraut). Lofa
þessar tilraunir góðu og æ fleiri
skólar taka þetta nám upp. 1 sálar-
fræði er verið að gera tilraun með
gítarnám með hjálp undraforritsins
LXR. Og í efstu áföngunum í ensku
er verið að gera tilraunir með ýmsar
nýjungar.
Á önninni hefur einnig tekist að
auka mjög virkni og sjálfstæði fag-
og deildarstjórakerfisins.
í lok annar var tekin sú ákvörðun
að bæta við öðru tölvuveri m.a.
vegna vaxandi tölvunotkunar í
ýmsum áföngum, eins og t.d. tækni-
teiknun, iðnteikningu, vélritun og
stærðfræði. Hið nýja tölvuver sem
verður í vélritunarstofunni verður
væntanlega tilbúið í byrjun næstu
annar.
Frá velunnurum skólans hafa bor-
ist margar góðar gjafir og færum við
eftirtöldum hinar bestu þakkir fyrir
velvildina: Hitaveita Suðurnesja,
Heklu hf., Apóteki Keflavíkur og
Verslunarmannafélagi Suðurnesja.
Eftir 4 ára umþóttunartíma hefur
stjórn SSS mótað stefnu í framtíðar-
húsnæðismálum skólans. Leggur
hún til að byggt verði við núverandi
bóknámshús við Sunnubraut með
það í huga að flytja alla starfsemi
skólans á einn stað.
Það var löngu orðið aðkallandi að
höggva á þennan hnút þvi í dag
vantar tilfinnanlega rými fyrir al-
menna kennslu, sérstofur, félags-
aðstöðu, bókasafn, verknámið,
mötuneyti og fl. og fl.
Nú er beðið eftir að sveitarstjórnir
á Suðurnesjum staðfesti þessa lausn
svo hefjast megi handa sem allra
fyrst og byggja til framtíðar fyrir
Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Að lokum vil ég nota tækifærið og
þakka aðlinum fyrir samstarfið og
óska honum alls hins besta í framtíð-
inni.
Ægir Sigurðsson
aðstoðarskólameistari.
FAXI 19