Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 23
Eins og kunnugt er, þá er þetta fé-
lagsskapur fólks sem er svona held-
ur í eldra lagi, því aldurstakmarkið
er 55 ár fyrir karlmenn, en 50 ár hjá
konunum. Nú síðan er salurinn op-
inn fyrir almenning frá kl. 16—19.
Þá eru það félagarnir í púttklúbbn-
um sem sjá um að hafa opið og að-
stoða þá sem þangað koma. Þá er
aðgangseyrir kr. 200 og það er hægt
að fá lánaða púttara á staðnum. Á
næstunni verður gerð tilraun með
að hafa opið nokkur kvöld og á
laugardögum. Einnig er mögulegt
fyrir hópa að komast hérna að á
þeim tímum sem ekki er opið.“
— Og hvernig er svo aðsóknin?
„Salurinn hefur aðeins verið op-
inn í stuttan tíma, en við höfum
samt orðið varir við mikinn áhuga
hjá almenningi. Einnig hefur sjálfur
púttklúbburinn vaxið hröðum skref-
um. Sérstaklega hefur verið
ánægjulegt að sjá fjölgunina hjá
hendur, s.s. að ganga í fjörunni í
Leirunni o.fl.
Eftir að Rastarmenn hættu útgerð
og fiskvinnslu fyrir nokkrum árum,
þá hafa húsakynni þar verið leigð út
undir ýmsa starfsemi. Þó var eftir í
húsinu aðgerðarloft á annari hæð í
öðrum enda hússins. Var reyndar
alls ekki búið að fullganga frá þessu
plássi. Margeir sá því fyrir sér þann
möguleika að setja þarna upp að-
stöðu fyrir púttklúbbinn að vetrin-
um til. Er ekki að orðlengja það, að
hann fékk í lið með sér Jónas Gunn-
ar Ingimundarson, en hann sér að
öðru leiti um viðhald á húsinu. Þá
fékk hann mikla hjálp frá þeim
Henning Kjartanssyni og Ingólfi
Falssyni.
Eins og áður sagði er púttsalurinn
á annarri hæð Rastarinnar og er
sjálfur púttvöllurinn með sínum 18
holum alls 210 m2 að stærð. Hann er
lagður grænu grasteppi og holurnar
eru boraðar í gólfið. Töluvert mis-
rennsli er á gólfinu, því þarna voru
niðurföll og hafa misfellurnar i gólf-
inu verið látnar halda sér — það ger-
ir púttbrautirnar skemmtilegri.
Hægt er að leggja völlinn á ýmsan
hátt, þannig að ekki er leikið á sömu
holuna á sama hátt lengi í einu.
Framan við púttvöllinn er síðan um
80 m2 svæði, þar sem eru borð, stól-
ar og bekkir, þar sem hægt er að
tylla sér til að fá sér hressingu, en
mjög góð kaffiaðstaða er á staðn-
um. Gott er að hafa með sér inniskó,
því allir verða að fara úr útiskóm,
áður en komið er inn í salinn.
Við spurðum Margeir, hvernig
staðurinn verði rekinn.
„Alla virka daga, milli kl. 13 og 16
eru hér félagar í púttklúbbnum.
Hér má sjá hluta þeirra sem fylgdust með Rastarmótinu. Eins og myndin ber með sér, þá er ágæt aðstaða fyrir
gesti að tylla sér á milli þess sem verið er að pútta á vellinum. Ljósm. HH.
Verðlaunahafar í keppninni um Rastarskjöldinn. Frá vinstri eru Lúðvík Jónsson, Henning Kjartansson, Jó-
hann R. Benediktsson, Margeir Jónsson og Jóhanna Dagbjartsdóttir, Erlendsína Sigurjónsdóttir, Valdís Val-
geirsdóttir og Lórý Erlingsdóttir.
konunum, en þar hefur hún Lórý
Erlingsdóttir verið mjög dugleg.
Einnig vil ég láta þess getið, að án
áhuga frá félögunum í púttklúbbn-
um, þá væri þetta framtak ekki orð-
ið að veruleika."
Ég finn það, þegar líða fer á spjall-
rð, að Margeir hefur velt golfinu
mikið fyrir sér og ekki síst púttinu.
Hann sagði m.a.:
„Það sem vakti allan tímann fyrir
mér var, að með þessum innivelli
væri hægt að auka hæfnina, ekki
eingöngu hjá okkur, heldur einnig
hjá hinum almenna golfleikara, sem
fengi tækifæri til að æfa sig áður en
snjóa leysti af útivöllunum með vor-
inu. Ég er alveg sannfærður um það,
að það er ákaflega mikilvægt i pútt-
inu að fá tilfinningu fyrir réttri lengd
í högginu. Menn geta nefnilega við
þær aðstæður sem eru hér inni æft
tilfinninguna fyrir lengdinni í pútt-
unum, en hitt atriðið — stefnan
ræðst hverju sinni eftir aðstæðum.
Ég er sannfærðum um, að þetta er
mjög mikilvægt í golfinu.”
Það er alltaf gaman að ráðast á
vegginn, þar sem hann er hæstur og
því lýk ég þessu spjalli með því að
skora á Margeir í einn hring. Það
verður spennandi að sjá, hvernig
manni vegnar á móti nýbökuðum
handhafa Rastarskjaldarins. Leikar
fóru þannig, að eftir 18 holur, vorum
við báðir á parinu og sættumst á
jafntefli. Við Ijúkum svo þessari frá-
sögn á því að óska Margeiri og hans
fólki til hamingju með þetta ágæta
framtak, jafnframt því sem við
hvetjum íbúa Suðurnesja til að
kynnast þessari nýjustu viðbót við
íþróttahús svæðisins.
HH.
FAXI 23