Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 25

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 25
Boddý-bílar og brúsahús Nokkuð var um að vörubílar voru notaðir til mannflutninga (hóp- ferða) og þá í lengri ferðir var sett „boddý" á bílpallinn í hvert sinn er ferð var farin. Boddý var hús úr timbri en enginn botn. Bílpallurinn var botninn en trébekkir þvert yfir pallinn og oft ein eða tvær rúður fyrir útsýnið. Hurð var á hliðinni, en ef boddýið var með bekkjum til beggja hliða var hurð að aftan og í báðum tilfellum notuð þriggja þrepa trapþa við inngang. Um 1930 voru vörubílar hér um slóðir notaðir til að flytja fiskvinnslu- fólk aö og frá vinnu og einnig að og frá vinnu í matartíma en þá voru venjulega aðeins notaðir bekkir þvert yfir pallinn en engin yfirbygg- ing. Þegar stuttar ferðir voru farnar svo sem til kirkju á skemmtanir, fundi, mannamót og berjaferðir voru oft aðeins notaöir bekkir. Allir bændur komu með mjólkina í mjólkurbrúsum aö þjóðveginum, ýmist á ákveðinn stað á klöpp eða þá í kofa sem ýmist voru gerðir úr torfi og grjóti. Þannig var þetta þar til skipað var að hafa brúsana ekki úti heldur þar sem sól kæmist ekki að þeim um sumartímann því þá vildi mjólkin súrna. Að því kom að sumir bændur sameinuðust um aþ steypa lítil hús þar sem líka væri unnt að láta inn matvæli svo snjór og regn yrði ekki til skaða. Ekki mátti koma með mjólkina að kvöldi aö þjóðveginum heldur geyma liana heima á köldum stað í vatns- bóli. Ekki voru brúsapallar i minni tíð en um þá frétti maður að þeir væru komnir til sveita þar sem mikil mjólkurframleiðsla var og þá oft notaðir 501 brúsar, en þegar tankbíl- ar komu til mjólkurflutninga varð á mikil breyting til bóta og þá um likt leyti kælitækin sem gerði mjólkina verðmeiri fyrir bændur. í minni mjólkurbílatíð var öll mjólk flutt frá búinu á Selfossi í 50 1 brúsum til samsölunnar í Reykjavík. Var nokkur eftirspurn eftir slíkum brúsum til landabruggunar sem í þá tíð var vítt og breytt um landið, þóttu svona stórir brúsar hentugir til að sjóða í eða eima gerjunarlög- inn. Kunna margir eldri bílstjórar ýmsar sögur frá viðskiptum sinum við bruggara og þá gjarnan í sam- bandi við ríkisembættismanninn Björn Blöndal, sem 1930-^40 var opinber starfsmaður dómsvalds Is- lands og var hans aðalverkefni að fara um allt Island til að hafa uppi á bruggurum og koma þeim í lögreglu eða sýslumannahendur. Var það fyrsti og síðasti embættismaður í slíku starfi, sem síðan færðist ein- göngu til lögreglunnar. Mætti margt skrifa um viðskipti Björns við bruggara á fjórða áratugnum. Þar voru bílstjórar, og sér í lagi mjólkur- bílstjórar hér á Suðvesturlandi, í stóru hlutverki. Þeir voru þó oft miðlarar („miðill") fyrir þá sem lítt þekktu framleiðendur, en allir græddu sinn með hverjum hætti. Það var talinn ókurteisi ef vínandi 0 SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. UMBOÐ ÚRVAL - ÚTSÝN HF. í KEFLAVÍK Oa NÁGRENNI Við veitum alla innlenda ferðaþjónustu innan lands sem utan SOLARLANDAFERÐIRNAR LANDSKUNNU EINSTAKLINGSFERÐIR SÉRSTAKAR HÓPFERDIR GOLF- OG ÍÞRÓTTAFERÐIR FERDARÁÐGJÖF ■/ HELGI Hafnargötu 79 - 230 Keflavik - Simi 92-15660 - Kennit. 18.03.41-5799 FAXI 25

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.