Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 26
var meðal farþega og „brjóstbirta"
látin ganga, að bjóða ekki bílstjór-
anum fyrst. Þessirsvokölluðu landa-
miðlarar voru gjarnan leystir út með
,,ábót“ fyrir viðskiptin við fyrirtæk-
ið.
Líkbílar
Meðan lítið var um bílakost voru
þeir notaðir til margra hluta s.s. að
aka fólki á skemmtistaði, í berja-
ferðir, til kirkju og með lík við jarð-
arfarir, þar til sérbyggðir líkbílar
komu til þeirra hluta. Þegar líkbíll
kom til Hafnarfjarðar vildi þannig
til að eigandinn átti ekki annan bíl.
Trúði hann mér fyrir því hversu
freistandi var að nota bílinn til fleirri
GÓÐAR BÆKUR FRÁ
LANDSBANKANUM
LAMDSBÓK
er ný verðtryggð 15 mánaða bók, sem ber
5.75% vexti og tryggir því mjög góða raun-
ávöxtun sparifjár. Allir íslendingar ættu að
eignast LANDSBÖK, - því fyrr, því betra.
KJÖRBÓK
er mjög góð bók, alltaf laus og því tilvalin
fyrir þá sem vilja ekki festa sparifé sitt
í lengri tíma en fá þó góða ávöxtun.
KJÖRBÖK ber 2.84%raunávöxtun
KJÖRBÖK 1. þrep 4.13% raunávöxtun
KJÖRBÖK 2. þrep 4.69% raunávöxtun
L
Landsbanki
íslands
Banki aJlra landsmanna
Leifsstöö - Sandgeröi - Grindavik
hluta en líkflutninga, því var það að
þegar hann fór með fjölskylduna til
berja notaði hann sérútbúna yfir-
breiðslu sem hann lét yfir bílinn ef
hann lagði honum nálægt alfaraleið
svo minna bæri á að líkbíll væri not-
aður i skemmtiferðir fjölskyldunnar
því allir vissu hver ætti slíkan bíl
þegareinungisvarumeinnaðræða ^
í Reykjavík og annan í Hafnarfirði.
í mörg ár var mjólkurbíllinn í mín-
um hrepp notaður fyrir líkbíl, svo
mun og hafa verið annarsstaðar.
Það kom fyrir að ég fengi vítur fyrir
að aka of hratt með líkkistu til
kirkju, en þá voru líkmenn með og
stóðu aftaná beggja vegna kistunn-
ar og ef hægt var farið varð þeim
kalt, og ef langt var að aka var löng
bílalest á eftir og vegurinn það mjór
að þaö varð að fara út á klappir til að
víkja, svo best var að fylgja venju-
legum hraða.
Fólksbílar
Fyrsti fólksbíll sem í hreppinn
kom, um 1950, var Teroplain sex
manna, keyptur notaður úr Reykja-
vík. Eigandi Guðmundur Kortsson
frá Bræðraparti í Vogum. Á þeim
tíma var stíf skömmtun á flestum
innfluttum vörum, sem dæmi var,
að illa gekk eiganda fólksbílsins að
fá hjólbarða vegna þess að þetta var
einkabíll en ekki atvinnutæki. Tók
eigandinn þá það ráð að fá undir-
skrift nokkurra aðila um, að bíllinn ^
hefði verið keyptur í þeim tilgangi
að vera til staðar í hreppnum ef slys
yrði eða ef flytja þyrfti sængurkonu
á spítala, sækja lækni eða Ijósmóð-
ur, því þetta væri eini bíllinn í
hreppnum. Út á þessa pappíra feng-
ust dekkin, en hvort bíllinn var not-
aður til þess sem í bréfinu stóð var
fljótlega aukaatriði. Stuttu síðar
komu fleiri einkafólksbílar, en leigu-
bílar hafa aldrei verið í þessum
hrepp, en vörubílar hafa löngum
verið til reiðu í hverskonar flutning-
um, og reyndar stofnað félag vöru-
bílaeigenda 1948 en aflagt 1972,
voru þrettán einstaklingar í félag-
inu, sem varð til vegna hafnargerð-
ar í Vogum.
Túni og „Heims um ból"
Vörubílar hafa ekki fengið sérstök
nöfn utan tveir. Annan átti Útgerð-
arfélag Vatnsleysustrandar, sem
stofnað var 1930. Átti það einn
vörubíl er kallaður var, Heims um
ból, því hann var GK-82. Var það
sálmanúmerið er þeirri nafnbót
réði. Hinn bílinn átti bóndi en sá bíll
var aflagður og afskráður vegna elli,
en notaður nokkur ár á túni bónd-
ans innan girðingar, númerslaus og
ótryggður og þar af leiðandi kallað-
ur Túni. Endaði hann sína ævi á tún-
inu.
Jeppar og furðubílar
Jeppar komu um 1942. Fyrst voru
það notaðir jeppar frá setuliðinu á
26 FAXI