Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 27

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 27
Keflavíkurflugvelli, og síðar inn- fluttir frá framleiðanda.voru það Ford- og Willys-jeppar. Höfðu bænd- ur forkaupsrétt á þessum nýju tækj- um sem komu í staðinn fyrir dráttar- hesta og einnig að nokkru leyti fyrir traktora. Var þetta gjörbylting hjá bændum vegna margs konar sam- gangna og annarra nota. Var marg- ur gangur á því á skömmtunartíma- bilinu, hverjir fengu jeppa og ekki jeppa. Voru ýmis brögð notuð við að afla sér slíks byltingartæki bæði við búskap og samgöngur. Allir voru þessir bílar með blæjuyfirbyggingu í byrjun en fljótt var farið að smíða hús á þá og gerðu það margir eftir sínu höfði um notagildið. 1923 mun ég hafa séð tvo bíla í fyrsta og síðasta sinn og gleymi aldr- ei, það voru vörubílar. Önnur teg- undin hét Overland sem ekki var annað sérstakt við en að hún var á „massífum" hjólbörðum sem munu hafa verið á einhvern máta soðin á „pottsteyptum" felgum stórum og klunnalegum. Hinn bíllinn hét Max- vell og var stýrispípan lóðrétt upp úr gólfinu á milli fóta bílstjórans og stýrishjólið því lárétt, líkt og nú er á sumum strætisvögnum eða öllum. Rútur 1928 sé ég fyrst langferðabíl (rútu- bíl). Það voru fullyfirbyggðir bílar með tréhúsum, er kölluð voru fulln- ingarhús, eða líkt og spjaldhurðir eru nú kallaðar. Tveir bílar voru úr Gerðahreppi og tveir úr Keflavík og óku eigendurnir sjálfir. Þetta voru áætlunarbílar fjórtán farþega. Nokkuð var um að áætlanir stóðust ekki vegna tíðra bilana. Sumir þess- ir bílstjórar og þar á meðal undirrit- aður höfðu sérhöfuðfat, kallað „kastskeyti", með svörtum kolli á vetrurna og hvítum á sumrin, og framan á voru sum með skjaldarlag- að merki eða silfurskeifu með öku- skírteinisnúmerinu í, hafði ég skeif- unælu með GK-77 þvert inn í skeif- unni. FRAMHALD í NÆSTA BLAÐI Hér sést hinn glæsilegi mjólkurbíil er Gudmundur Björgvin var bílstjóri á. Takid eftir hinu sérbyggða farþegarými. Þótti það hið glæsilegasta og margur farþeginn þáði þar sæti. TÍMARIT Schabúi HefifaVíkur DAGLEGA I LEIÐINNI SAMABYRGÐ ISLANDS Á FISKISKIPUM LÁGMÚLA 9 SÍMI 81400 P.O. BOX 5213 STOFNSETT 1909 SAMÁBYRGÐIN TEKST Á HENDUR EFTIRFARANDI: Slysatryggingar Afla- og veiðarfæratryggingar Ábyrgðartrygging útgerðarmanna og skipshafna Farangurstrygging fískiskipa Endurtrygging fiskiskipa undir 100 smálestum Trygging skipa yfir 100 smál. Aldurslagasjóður fiskiskipa Nýsmíðatryggingar og ábyrgðartryggingar fyrir skipasmíðastöðvar Skrifstofa Samábyrgðarinnar og eftirtaldir umboðsmenn vorir veita allar nauðsynlegar upplýsingar varðandi tryggingar þessar og taka á móti tryggingarbeiðnum: VÉLBÁTAFÉLAGIÐ GRÓTTA, REYKJAVÍK BÁTATRYGGING BREIÐAFJARÐAR VÉLBÁTAÁBYRGÐARFÉLAG ÍSFIRÐINGA VÉLBÁTATRYGGING EYJAFJARÐAR, AKUREYRI SKIPATRYGGING AUSTFJARÐA, HÖFN VÉLBÁTATRYGGING REYKJANESS, KEFLAVÍK FAXI 27

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.