Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 28
og Vestur-Virginíu var leyft aö
selja veik vín og bjór í vissum
matvörubúöum. Vísindmennirnir
fylgdust með áhrifunum af því.
Niðurstaðan var sú að ekki
einungis víndrykkjan jókst heldur
og heildarneysla áfengis. í
Vestur-Virginíu jókst víndrykkja
um 48% og í lowa um 93%.
(Heimildir: Alkoholpolitik nr. 3.1990,
Socialt perspektiv 1.90.)
Fréttatilkynning frá
Tölvumiðstöð fatlaðra
í lögum Tölvumiðstöðvar
fatlaðra, segir að markmið
hennar sé söfnun upplýsinga um
vélbúnað og hugbúnað, sem
nýtist fötluðu fólki í sambandi
við tölvur til atvinnu, náms og
tómstundastarfs; þróun slíks
búnaðar og aðhaefing að
íslenskum aðstæðum; dreifing
slíks búnaðar og skráning
upplýsinga um ráðstefnur og
námskeið á þessu sviði.
Til þess að folvumiðstöðin
geti þjónað tilgangi sínum sem
best þarf hún að komast i
samband við þá einstaklinga,
fyrirtæki, félög eða stofnanir
sem hafa innsýn í þessi mál; þ.e.
þá sem hafa hannað, unnið að
uppsetningu, eða á annan hátt
hafa þekkingu á viðkomandi
búnaði. Einnig þarf að komast í
samband við fagfólk og aðra
aðila sem hafa leiðbeint við
notkun á ofangreindum búnaði.
Nú stendur yfir söfnun
upplýsinga um ofangreinda
tengiliði, þann búnað sem fyrir
er í landinu og þær lausnir sem
unnið er að.
Ef þeir sem sjá eða heyra um
þessa fréttatilkynningu vita um
slíka aðila, eða hafa spurnir af
þeim, er nauðsynlegt að
Tölvumiðstöð fái sem gleggstar
upplýsingar um þá, þannig að
sem flestir fatlaðir geti notið
góðs af kunnáttu þeirra í
framtíðinni.
Vinsamlega hafið samband
við:
Tölvumiðstöð fatlaðra,
Hátúni 12,
105 Reykjavík.
eða miðlið upplýsingum til
Sigurjóns Einarssonar í símum
91-629494 eða með faxi í nr.
91-623522.
Heitir eftir gömlum sjó-
manni fyrir norðan.
Einn af hinum smærri fiskibát-
um sem í dag setja æ meir mark
sitt á fiskiflota landsmanna, er
Kári Jóhannesson KE 72. Hann
er heitinn eftir gömlum og góð-
um sjómanni frá Arskógsströnd.
Eigandi og jafnframt skipstjóri á
þeim bát er Magnús Bjarnason í
Keflavík. Báturinn er smíðaður úr
trefjaplasti hjá norsku skipa-
smíðastöðinni Libra-Plast A/S.
Hefur báturinn reynst ágætlega,
en Magnús hefur gert á honum
nokkrar breytingar til að bæta
sjóhæfni hans. Meðfylgjandi
myndir voru teknar, þegar
Magnús var að koma í land með
um fimm tonn af ágætum fiski.
Nýjar bandarískar
rannsóknir:
Hækkun lögaldurs
til áfengiskaupa gefur
góða raun
Svo sem kunnugt er hækkuðu
Bandaríkjamenn lögaldur til
áfengiskaupa í 21 ár fyrir
nokkrum árum. Rannsóknir hafa
fyrir nokkru sýnt að táningum,
sem slasast í umferð, fækkaði
stórlega í kjölfar hækkunarinnar.
Nú hefur verið sýnt fram á fleiri
heillavænleg áhrif af þessari
ráðstöfun. A alþjóðlegri
ráðstefnu, sem haldin var í
Berlín í sumar, um áfengismála-
stefnu kom fram í erindum
bandarískra vísindamanna að
hækkun lögaldurs til áfengis-
kaupa hefur ekki einungis dregið
úr slysum á táningum vegna
þess að áfengisneysla þeirra
hefur minnkað heldur stuðlar
hún og að því að drykkja ungs
fólks, sem náð hefur lögaldri til
áfengiskaupa, er minni en áður
var.
(Heimild: Alkoholpolitik, nr. 3. 1990)
Nýjar bandarískar
rannsóknir:
Sala víns í
matvöruverslunum
stuðlar að aukinni
áfengisneyslu
Tveir bandarískir vísindamenn,
Wagenaar og Holder, benda á í
Journal of Studies in Alcohol að
sala veikra vína í matvörubúðum
auki áfengisneyslu.
í ýmsum ríkjum vestra er
einkasala á áfengi eins og á
Norðurlöndum, í nokkrum
fylkjum Kanada og víðar. í lowa
Leiðrétting
í 6. tbl. Faxa birtist grein um
Baðstofuna í Keflavík. Þar urðu
þau mistök, að Þórunn Guð-
mundsdóttir var sögð hafa hald-
ið málverkasýningu í Eden í
Hveragerði, en hið rétta var að
hún hélt ágæta sýningu í Sand-
gerði. Einnig féll niður í frásögn-
inni, að Sigríður Rósinkarsdóttir
hélt í ágúst 1990 sýningu í Eden.
Leiðréttist þetta hér með og eru
þær stöllur beðnar afsökunar á
þessum mistökum. HH.
28 FAXI