Faxi

Árgangur

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 30

Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 30
Sú skemmtilega staða er nú í Úr- valsdeildinni í körfuknattleik, að Suðurnesjaliðin eru í efstu sætun- um. Njarðvík leiðir A riðilinn með 30 stig eftir 19 leiki og Kefalvík leið- ir B riðilinn með 30 stig eftir 19 leiki. Þá er Grindavík í þriðja sæti í sínum riðli. Keppnin í vetur hefur ekki verið frábrugðin fyrri vetrum, hvað það snertir, að fljótlega skáru nokkur lið sig úr og skildu keppinauta sína eftir svo að segja í starthoiunum. Fimm lið eru í hvorum riðli og eftir að riðlakeppninni lýkur fara tvö lið í úr- slitakeppnina. í A riðli tók Njarðvík strax forystuna og hefur aðeins tap- -að fjórum leikjum, en KR og Haukar hafa barist um annað sætið. Stendur KR þó betur að vígi með 22 stig á móti 18 stigum Hauka. Allt getur þó gerst í þeim leikjum sem eftir eru og treysti ég mér ekki til að spá í þau úr- slit. í B riðlinum hefur keppnin verið enn harðari. Tindastóll hefur verið það lið sem mest hefur komið á óvart í vetur. Snemma vetrar gekk Pétur Guðmundsson fil liðs við liðið, ásamt ágætum.tékkneskum leik- manni og einnig Einari Einarssyni frá Keflavík. Liðið fékk fljúgandi start og trónaði á toppi riðilsins um áramót. Keflavík og Grindavík fylgdu þó fast á eftir. í fyrstu leikjunum eftir áramótin komu alvarlegir brestir í leik Tinda- stóls, þegar Pétur gat ekki leikið með í nokkrum leikjum vegna meiðsla. Kom þá í ljós, að hann leik- ur það mikilvægt hlutverk í liðinu, að það er enginn sem getur komið í hans stað. Á sama tíma náði Jón Kr. Gíslason, þjálfari ÍBK frábærum ár- angri með lið sitt og hefur það unnið síðustu fimm leiki. Grindvíkingar hafa staðið sig vel í vetur og undir stjórn Gunnars Þorvarðarsonar eru þeir líklegir til að komast í úrslita- keppnina. Jóhannes Kristbjörnsson gekk til liðs við liðið í vetur og hefur það haft mikið að segja. Hér verður ekki tíundaðaður ár- angur einstakra leikmanna, það verður látið bíða, þar til úrslita- keppnin hefur farið fram. Rétt er að nota þetta tækifæri til að hvetja fólk til að mæta á þá leiki sem eftir eru í vetur, því oft á tíðum má sjá góðan körfuknattleik og í flestum tilfellum eru leikirnir gífurlega spennandi. HH. 30 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.