Faxi - 01.01.1991, Blaðsíða 31
A-sveitin — Taiið frá vinstri: Sigurður Albertsson, Jóhann Benediktsson,
Gísli Sigurðsson, Pétur Antonsson, Karl Hólm og Þorbjörn Kjærbo.
Eldri kylfingar
gera það gott
Nú í sumar mun LEK (Landssam-
band eldri kylfinga) standa fyrir
Evrópumóti hér á landi. Er hér um
mjög stórt mót að ræða og mun
keppni fara fram bæði á Hólmsvelli
í Leiru og á golfvellinum í Grafar-
holti í Reykjavík. Það er Hörður
Guðmundsson, fyrrverandi formað-
ur GS sem er formaður LEK og mun
Faxi fá hann síðar til viðtals um
þetta mikla mót.
Góð frammistaða í Austurríki
Síðsumars í fyrra voru fjórir eldri
kylfingar af Suðurnesjum valdir í
landslið sem fór til keppni á Evrópu-
mótinu í sveitakeppni sem þá fór
fram í Austurríki. Þetta voru þeir
Þorbjörn Kjærbo, Jóhann Bene-
diktsson og Sigurður Albertsson úr
Golfklúbbi Suðurnesja og Pétur An-
tonsson úr Golfklúbbi Grindavíkur.
A-sveit:
Þorbjörn Kjærbo
Gísli Sigurðsson
Sigurður Albertsson
Jóhann Benediktsson
Karl Hólm
Pétur Antonsson
B-sveit (nettó högg):
Sveinbjörn Jónsson
Guðm. Valdemarsson
Alfreð Viktorsson
Birgir Sigurðsson
Olafur A. Olafsson
Guðjón Jónsson
(Eldri kylfingar eru þeir sem náð
hafa 55 ára aldri).
Til mótsins voru sendar tvær
sveitir, því keppninni er tvískipt.
Keppti önnur sveitin án forgjafar í
Meistarakeppninni svonefndu, en
hin með forgjöf um Evrópubikarinn.
Auk Suðurnesjakylfinganna voru
það Gísli Sigurðsson og Karl Hólm
úr Golfklúbbi Hafnarfjarðar sem
skipuðu sveitina sem keppti í Meist-
arakeppninni. Keppt var á golfvöll-
um við Zell Am See og Brandlhof,
mjög góðum og nokkuð erfiðum
völlum.
Sveitirnar sem kepptu í mótinu
voru frá 15 löndum og urðu báðar ís-
lensku sveitirnar í 8. sæti. Verður
það að teljast ágætur árangur. Best-
um árangri náði hinn eitilharði Þor-
björn Kjærbo, en hann hefur sem
kunnugt er margoft orðið Islands-
meistari. Annars varð árangur
keppenda sem hér segir:
79 83 84 alls 246 högg
83 83 82 - 248 —
82 85 89 - 256 —
87 87 88 - 262 —
90 89 90 - 269 —
92 94 99 - 285 —
73 74 76 alls 223 högg
78 80 70 - 228 —
77 82 74 - 233 —
80 79 75 - 234 —
80 80 77 - 237 —
78 82 84 - 244 —
Eins og áður sagði, þá mun Faxi nokkur vafi á því, að þar verður um
segja meir frá Evrópumótinu sem mjög skemmtilegt mót að ræða.
hér verður haldi í vor, en það er ekki HH.
MUNIÐ
ORKU-
REIKNINGANA
Eindagi orkureikninga er
15. hvers mánadar.
Látið orkureikninginn
hafa forgang
Hitaveita
Suðurnesja
BÆJAR- OG HERAÐSBÓKASAFNIÐ
Mánagötu 7 í Keflavík
Sími: 15155
Mikill fjöldi nýrra bóka,
geisladiskar og myndbönd.
Safnið er opið sem hér segir:
Mánudaga og miðvikudaga
kl. 15.00-22.00
Þriðjudaga — fimmtudaga
kl. 15.00-19.00
Föstudaga
kl. 15.00-20.00
FAXI 31