Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 2

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 2
 r . m . . r_ . Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Hönnun, setning og umbrot: Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 92-11114. Leturval sf. 1111! Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri, Filmu- og plötugerð: l \ ( \ Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri, Litróf hf. ** Birgir Guðnason, Vilhjálmur Þórhallsson Prentun: 3. TÖLUBLAÐ - 51. ÁRGANGUR og Hjálmar Stefánsson. Prentstofa G: Benediktssonar Meðal eínts UMFN Islandsmeistari í körjubolta Sigurður Breiðjjörð Ólafsson áttrœður Tónleikar söngvara á Suðurnesjum Helet Hólm: Vernd umhverfisins er í allra þágu Þegar litið er um öxl, þá kemur það í hugann, að fyrir nokkrum árum var orðið mengun óþekkt í daglegu máli. Nú býst ég við að flestir viti, hvað það þýðir. Umræðan um náttúru- og umhverfisvemd færist stöðugt í aukana og æ fleiri sannfærast um gildi þess að þeim málum öllum sé góður taumur gefinn. Hér í Faxa hafa umhverfismál oft verið tekin til um- fjöllunar og vill ritstjóm blaðsins hér með bjóða lesendum að leggja orð í belg. Munum við helga næsta tölublað umhverfismálum og væntum við þess að lesendur Faxa og annað áhu- gafólk sé tilbúið að leggja okkur til efni. Verkefnin blasa alls staðar við Fyrir ekki svo löngu voru samþykktar nýjar reglugerðir um skipulag frárennslismála. í reglum þessum eru gerðar verulega auknar kröfur um allan frágang. Og er óhætt að segja, að ekki hafí verið vanþörf á því. Allir sem um þessi mál fjalla verða í raun að fara að hugsa upp á nýtt. Sagt hefur verið, að miðað við þessar reglur, þá séu flestar frárennslislagnir í landinu ólöglegar. Hitt er annað, að fæstir gera sér víst grein fyrir því, hversu gífurlega fjárfrekar slíkar framkvæmdir em. Og þetta er ekki aðeins mál sem koma fáeinum sveitar- stjórnarmönnum við, hér erum við að tala um málefni sem skipta hvem og einn miklu máli. Hreint land er fagurt land. Sjónmengun er líka mengun Alþingiskosningarnar 1991 Utskrift af netagerðarbraut I síðasta blaði hvöttum við eigendur húsa að líta nú vel í kringum sig og athuga, hvort ekki væri ástæða til að taka til hendinni og fjarlægja eitthvað af því drasli sem mjög víða er að finna. Það er ástæða til að segja frá því, að þessi áskorun hefur þegar borið nokkum ár- angur. Við viljum halda því fram, að í þessu tilfelli, eins og í svo mörgum öðrum tilfellum, þá sé það fyrst og fremst spuming um hugarfar og vilja. Því ekki að byrja smátt og áður en við vitum af, þá verðum við farin að taka saman msl - hvar sem það verður á vegi okkar. Umhverflsráðuneyti hefur tekið til starfa Á síðasta kjörtímabili var stofnað til sérstaks ráðuneytis til að fara með umhverfismál á vegum þess opinbera. Það er mikilsvert, að umhverfisvemd sé viðhöfð við stjóm landsins og það gæti verið eitt af meginhlutverkum ráðuneytisins að fylgjast með því að við allar framkvæmdir á vegum þess opinbera sé umhverfisvemd gert hátt undir höfði. Þrátt fyrir að sveitarfélögin hér á Suðurnesjum séu farin að veita þessum málaflokki aukna athygli, þá má betur ef duga skal. Um þetta og margt annað varðandi þessi málefni munum við fjalla í næsta blaði. H.H. Forsíðumyndin Sigrún Eva og Telma^ Birgisdóttir unnu sér rétt til þátttöku í Feguröarsamkeppni íslands. Sigrún Eva lenti í öðru sœti um titilinn Fegurðardrotming íslands og Telma var kosin vinsœlasta stúlkan. Ljósm. Myndarfólk - Haukur íngi. 70 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.