Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 3
Árið 1901 býr á Fitjum í
Kirkjubólshverfi Sveinn Ingi-
mundarson 60 ára og kona hans
Karítas Þorsteinsdóttir 49 ára.
Þessi hjón bjuggu áður að Efri-Ey í
Meðallandi í vestur Skafta-
fellssýslu. Þau voru þá búin að eiga
12 böm sín sem upp komust. Börn
þeirra skráð heima á Fitjum árið
1901 voru Þorsteinn Hermann 23
ára, Gestur 22 ára, Guðlaugur 20
ára, Karel 14 ára, Sveinbjörg dóttir
þeirra 12 ára, Olgeirsína dóttir
þeirra 9 ára, Gunnar 7 ára.
Ingimundur Sveinsson sem kall-
aður var fiðla var elstur sona
Sveins og Karítasar. Þegar Ingi-
mundur var við sjóróðra á Miðnesi
þá hafði hann góð samskipti við Ei-
rík Guðlaugsson sem þá bjó í
Garðhúsum í Garði enda var Eirík-
ur frá Presthólum í Prestbakk-
asókn. Árið 1921 býr Eiríkur Guð-
laugsson að Meiðastöðum í Garði
og kona hans Guðrún Bjamadóttir.
Þessi hjón áttu þrjá syni, Sumar-
liða, Guðlaug og Jón. Þessir bræð-
ur réru til fiskjar úr Meiðastaða-
vör. Snemma morguns í byijun maí
réru þeir með færi og fóstri minn
Ingimundur Jónsson frá Holti í
Garði réri með þeim. Þeir komu að
um miðjan dag með töluvert af
fiski. Það var gert að fiskinum niðri
í fjöm, hann hausaður á búkka og
flattur á borði og látinn í kar sem
sjór var settur í og fískurinn þveg-
inn upp úr, hann var látinn í kassa-
bömr sem tveir menn bám upp í
fiskhús og þar var hann saltaður.
Nú var farið að hvessa á norðaust-
an með töluverðu öldusogi ég und-
irritaður var að leika mér í fjömnni
að stinga gat á kúttmaga og ná úr
þeim sandsíli og henda til fugl-
anna. Það var mikið af ritu, máv og
æðarfugli, hann var farinn að para
sig með sínu voróhljóði.
Þar sem ég er að gefa fuglunum
sem görguðu mikið heyrði ég mik-
ið fuglagarg fyrir ofan mig í fjör-
unni, þá sá ég mann sitja á steini
með fiðlu. Nú fór hann að herma
eftir æðarfuglinum, hann tók öldu-
sogið inn á fiðluna, fuglinn fór að
hlusta og synti nær landi, nú heyrði
ég í kríunni. Ég vissi ekki að hún
væri komin, enda kom hljóðið frá
fiðlunni.
Ég gekk uppeftir til þessa manns
sem sat á steini. Það var Ingimund-
ur Sveinsson sem kallaður var
fiðla. Ingimundur var stór og
herðabreiður með stingandi skær
augu, hjá honum stóð kona bein-
asmá og grönn og veikluleg. Sig-
ríður hét hún, ættuð ofan af Mýr-
um, hún var ástkona Ingimundar.
Þá stendur Ingimundur upp og þá
lítur Sigríður út sem lftil rella fram-
an á maga Ingimundar. Sigríður
hafði sérstakt göngulag hún var
léttfætt eins og smá hreindýr hún
klæddist sterkum litklæðum. Nú
fóru þau að Meiðastöðum til Eiríks
og Guðrúnar. Ég settist á steininn
og horfði á þeftir þessum undra-
manni sem kunni fuglamál. Ég fór
að spyijast fyrir um þennan lista-
mann. Hann hafði verið í smátíma
austur á Eyrarbakka að læra tón-
fræði og að spila á orgel hjá Jóni
Pálssyni traustum merkismanni
sem hafði áhuga á tónlist. Nú fer
Ingimundur austur á Eskifjörð þar
er hann um skeið kirkjuorganisti og
kennir söng við bamaskólann og
gerist stjómandi söngkórs. Nú
eignaðist Ingimundur fiðlu og þá
kom förueðlið upp í honum, hann
fór að ferðast um Iandið og halda
konsert. Hann fór til Reykjavíkur
og hélt konsert í Bámnni hinu
gamla góða samkomuhúsi við
Tjömina. Það gekk ekki sem best
það vom nokkrir spjátmngar sem
fundu kvöt til að skopast að Ingi-
mundi þeir skildu ekki listamann-
inn. Nú fór síldarvertíð að byija, þá
fór Ingimundur til Siglufjarðar með
fiðluna sína. Það var hinn almenni
verkamaður og verkakona sem
kunni að meta hæfileika Ingimund-
ar fiðlu enda var hann.afar vinsæll
þetta sumar. Ef til vill er eitthvað af
síldarstúlkum sem þá vom á Siglu-
firði lifandi enn sem muna eftir
Ingimundi fiðlu sem spilaði á fiðl-
una sína það vantar tunnu og það
vantar salt. Ingimundur Sveinsson
var fæddur 1. september 1873 að
Efri-Ey í Meðallandi í vestur
Skaftafellssýslu hann andaðist í
Reykjavík í september 1926 aðeins
53 ára. Það má geta þess að Ingi-
mundur Sveinsson var albróðir
Jóhannesar Kjarval. Þessir bræður
vom fáum líkir þeir vom báðir
stórir álfar í mennheimum, Ingi-
mundur kunni fuglamál en Kjarval
sá það sem aðrir sáu ekki. Blessuð
sé minning þessara bræðra.
Garði 08.04.91
Njáll Benediktsson skráði.
FAXI 71