Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 4
Á miðri mynd: Söngvaramir Jóhann Smári Sævarsson, Bjami Thor Kristinsson, Steinn Erlingsson og Hlíf Káradóttir. í bakgrunni hin 28 manna hljómsveit.
Stjómandinn er Öm Óskarsson. Ljósmyndir tók Reynir Sigurðsson.
TONLEIKAR,
SÖNGVARA A
SUÐURNESIUM
Föstudagskvöldið hinn 26. apríl
síðastliðinn hélt undirritaður til
Ytri-Njarðvíkurkirkju. Erindið var
að hlýða á tónleika þá, sem upphaf-
lega fæddust sem hugmynd fyrst,
en höfðu orðið að veruleika þann
24. apríl einnig í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju.
Er inn kom var húsið þegar þétt
setið. Eftirvæntingin lá í loftinu,
enda sjaldgæft að fólki gefist kostur
á slíkum tónleikum þar sem þeim er
haldið uppi af heimamönnum ein-
göngu og flestir tónleikagesta
þekkja persónulega til hvers og eins
af flytjendum. Það felur í sér mikið
álag fyrir flytjendur, því að mun
meiri ástæða er að standa sig á
heimaslóð, þar eru þó ákveðnir
möguleikar á tækifærum við að
koma fram t.d. við árshátíðir þar
sem samkeppni er mikil við krafta
innan af Reykjavíkursvæðinu og
sumstaðar þykir „fínna“ að fá miðl-
ungsgóðan söngvara þaðan heldur
72 FAXI
en að nota góða söngvara af heima-
slóð. Gott væri nú að þeir sem
standa fyrir skemmtunum og öðru
slíku, athuguðu hvað þeir hafa við
bæjardymar áður en leitað er fanga
annars staðar frá.
En aftur að tónleikunum. Meðan
fólkið kemur sér fyrir skulum við
renna augunum yfir efnisskrána,
mjög smekklega og að mínu viti
passlega stóra. Þar eru flytjendur
(söngvarar) kynntir með nokkrum
orðum og kannski heldur smáum
ljósmyndum fyrir mín augu.
Söngvarar kvöldsins voru: Bjami
Thor Kristinsson, nemandi Ragn-
heiðar Guðmundsdóttur í Tónlist-
arskóla Njarðvíkur, Guðmundur
Sigurðsson, velþekktur söngvari
hér á Spðumesjum, fyrrverandi
nemandi Ragnheiðar Guð-
mundsdóttur, núverandi nemandi
Áma Sighvatssonar, Helgi Brynjar
Maronsson, einnig velþekktur, fyrr-
verandi nemandi Ragnheiðar Guð-
mundsdóttur, hefur m.a. sungið
með Sinfóníuhljómsveit íslands,
Hlíf Káradóttir, velþekkt hér, lauk
einsöngvaraprófi frá Tónlistarskóla
Reykjavíkur, ein af fáum er hafa
flutt Wiesend Ijóð R. Wagners hér á
landi ásamt hljómsveit, Jóhann
Smári Sævarsson, áður nemandi
við Tónlistarskóla Keflavfkur, nú
nemandi Sigurðar Dements Frans-
sonar við Nýja Tónlistarskólann,
María Guðmundsdóttir, velþekkt,
áður nemandi Guðrúnar Á. Símon-
ar, stefnir nú að lokaprófi frá Tón-
listarskóla Keflavíkur hjá Áma Sig-
hvatssyni, Sigurður Sævarsson
bróðir Jóhanns Smára, áður nem-
andi við Tónlistarskóla Keflavíkur,
núverandi nemandi Sigurðar De-
ments í nýja Tónlistarskólanum,
Steinn Erlingsson, mjög þekktur,
lauk einsöngvaraprófi frá Tónlist-
arskóla Garðabæjar hjá Snæbjörgu
Snæbjamardóttur, komið víða fram
heima og heiman.
Nú gengur hljómsveitin í salinn.
Hún telur 28 manns. Hljómsveitar-
stjórinn Öm Óskarsson er fyrrver-
andi skólastjóri Tónlistarskóla
Njarðvíkur og hélt til fram-
haldsnáms í hljómsveitarstjóm til
nokkurra ára bæði til Evrópu og
Ameríkur og starfaði sem hljóm-
sveitarstjóri í Mexfkó. Eftir drykk-
langa stillingu hljómsveitarinnar
gekk kórinn ásamt hljómsveitar-
stjóra í salinn, en auk einsöngvar-
anna sungu þær Gróa Hreinsdóttur,
Ingunn Sigurðardóttir, Margrét
Hreggviðsdóttir og Soffía Pét-
ursdóttir með kórnum en þær
stunda allar söngnám.
Tónleikamir upphófust með því
að kórinn söng hið fallega verk
Mozarts, Ave vemm corpus. Kven-
raddimar komu mjög vel út en ó-
jafnvægis gætti í karlaröddunum.
Helst til var „tempóið" of hægt sem
bitnar á uppbyggingum í styrk, því
að samkvæmt þvf sem næst verður