Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 7

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 7
ÞINGMENN REYKNESINGA - AF D-LISTA Salóme Þorkelsdóttir Árni Mathiesen Sigríður A. Þórðardóttir AF A-LISTA AF B-LISTA Jón Sigurðsson Karl Steinar Guðnason Rannveig Guðmundsdóttir Steingrímur Hermannsson AF G-LISTA AF V-LISTA Athyglisvert er, að tveir af for- mönnum fjögurra stærstu flokkanna, þeir Ólafur Ragn- ar Grímsson, Al- þýðubandalagi, og Steingrímur Her- mannsson, Fram- sóknarflokki, eru í framboði í þessu kjördæmi. Hafði Olafur verið ráð- herra án þess að sitja á þingi, en skipaði nú efsta sæti listans í stað Geirs Gunnars- sonar sem dró sig í hlé. Þá flutti Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra sig af Reykjavíkurlista Alþýðuflokksins í efsta sæti listans í Reykjanes- kjördæmi. Fyrir þessar sakir var baráttan í kjör- dæminu snarpari en víðast hvar annars staðar. Listi Sjálfstæðisflokksins hafði og tekið mikl- um stakkaskiptum og skipaði nú Olafur G. Ein- arsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, efsta sætið í stað Matthíasar Mathiesen sem lét nú af þingmannastarfi eftir að hafa setið á þingi í 32 ár. Anna Ólafsd. Björnsson Kosningaúrslit í kjördæminu urðu sem hér segir: D 15851 atkvæði og 5 menn kjöma, unnu 2. A 9025 atkvæði og 3 menn kjöma, unnu 1. B 5386 atkvæði og 1 mann kjörinn, missti 1. G 4459 atkvæði og 1 mann kjörinn, höfðu 1. V 2698 atkvæði og 1 mann kjörinn, höfðu 1. T 459 atkvæði og engan mann kjörinn. Þ 319 atkvæði og engan mann kjörinn. F 315 atkvæði og engan mann kjörinn. Z 112 atkvæði og engan mann kjörinn. E 99 atkvæði og engan mann kjörinn. H 88 atkvæði og engan mann kjörinn. Nýir þingmenn í Reykjaneskjördæmi em Ámi Mathiesen, Ámi Ragnar Ámason og Sig- ríður A. Þórðardóttir af D-lista og Ólafur Ragn- ar Grímsson af G-lista. Tveir þingmenn sem voru í framboði náðu ekki kjöri, þ.e. Jóhann Einvarðsson af B-lista og Júlíus Sólnes af F- lista. Kosningaúrslit á öliu landinu urðu sem hér segir: D 60826 atkvæði og 26 menn kjöma, unnu 8. B 29861 atkvæði og 13 menn, höfðu 13. A 24454 atkvæði og 10 menn, höfðu 10. G 22705 atkvæði og 9 menn höfðu 8. V 13068 atkvæði og 5 konur höfðu 6. Þ 2870 atkvæði og engan mann kjörinn. F 1927 atkvæði og engan mann kjörinn. H 975 atkvæði og engan mann kjörinn. T 459 atkvæði og engan mann kjörinn. Z 502 atkvæði og engan mann kjörinn. E 99 atkvæði og engan mann kjörinn. Sú einkennilaga staða kom upp, þegar úrslit lágu fyrir, að ríkisstjómin hafði 32 þingmenn á bak við sig og sá fjöldi hefði dugað, ef Alþingi væri nú þegar starfrækt í einni málstofu. Svo er nú ekki ennþá og hefur því stjómin ekki meiri- hluta í báðum þingdeildum. Þegar þessi orð em rituð hefur ríkisstjóm Steingríms Hermanns- sonar sagt af sér og f gangi em stjómarmyndun- arviðræður, þar sem allir þingflokkar era með stjómarsetu í huga. Ný ríkisstjórn Eftir nokkurra daga óformlegar viðræður for- ystumanna stjómmálaflokkanna fól forsetinn formanni Sjálfstæðisflokksins, Davíð Odds- syni, umboð til myndunnar meirihlutastjómar. Eins og legið hafði í loftinu hófust þá þegar stjómarmyndunarfundir þeirra Davíðs og Jóns Baldvins Hannibalssonar formanns Alþýðu- flokksins. Fóm fundir þeirra fram í Viðey. Eftir fjögurra daga viðræður tók síðan ríkis- stjóm Davíðs Oddssonar við völdum, þann 30. apríl. í hinni nýju ríkisstjóm em tíu ráðherrar, fimm frá hvomm flokki. Frá Sjálfstæðisflokki: Davíð Oddsson for- sætisráðherra og fer einnig með málefni Hag- stofunnar, Friðrik Sophusson fjármálaráðherra. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra og dóms- og kirkjumálaráðherra, Ólafur G. Einars- son menntamálaráðherra og Halldór Blöndal landbúnaðar- og samgönguráðherra. Frá Alþýðuflokki: Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra, Jón Sigurðsson iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir fél- agsmálaráðherra, Sighvatur Björgvinsson heil- brigðis- og tryggingamálaráðherra og Eiður Guðnason umhverfismálaráðherra. HH. FAXI 75

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.