Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 10

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 10
AFMÆLISKVEÐJA Sigupöur Breiðljörð Olafsson attræður Þann 8. mars síðastliðinn varð Sigurður Breiðfjörð Ólafsson, Njarðargötu 3, í Keflavík 80 ára. Hann var fæddur í Akureyjum á Breiðafirði 1911. Foreldrar hans voru hjónin Ágústa Sigurðardóttir og Olafur Sturlaugsson. Sigurður var næst yngstur fjög- urra systkina, sem öll eru á lífi. I Eyjunum sem vfðar byijuðu böm snemma að vinna. Með þrotlausri vinnu tókst að hafa nægan og góð- an mat. Þar var aldrei sultur. En einangrun var mikil. í þessum smáu samfélögum varð fólk að bjarga sér sjálft á hveiju sem gekk. Útsjónarsemi seigla og þraut- seigja var Eyjamönnum í blóð bor- in. Þessum kostum er „Siggi á Tjaldinum", eins og hann hefir lengst af verið kallaður hér, ríku- lega búinn. 1927 keypti Ólafur faðir hans jörðina Ögur við Stykkishólm og flutti þangað með ljölskyldu sína. 1930 kom Siggi fyrst á vertíð til Keflavíkur og var landmaður við Mb. Gullfoss, sem þeir bræður Ingiber og Guðmundur Helgi áttu og gerðu út. Siggi kom áfram á vertíð til þeirra bræðra, en þeir áttu nokkra báta. Vertfðarmenn héldu til í „Brögg- um“. Siggi lenti í Bragga þar sem SERLEYFISBIFREIPIR KEFLAVIKUR Oft getur það verið betri kostur að ferðast með okkur. Við byggjum á langri reynslu og veitum farþe og þægindi. r oryggi Allar upplýsingar í afgreiöslu okkar aö Hafnargötu 12 í Keflavík SIMINN ER 92-15551 Jónína Einarsdóttir var ráðskona. Vel hefir honum litist á ráðskonuna og henni á hann því 1934 giftu þau sig. Fljótlega keyptu þau lítið en snoturt hús að Vallargötu 4, þar sem Jónína bjó þeim heimili af sinni stöku snyrtimennsku. En stuttu seinna veiktist Siggi af bijósthimnubólgu og var lengi frá vinnu. Tryggingar voru þá engar. Marga neyddu slíkar aðstæður til að segja sig til sveitar eins og það var svo smekklega orðað. Vinir og góðir grannar reyndu þó oft að forða slíku. Og slíka höfðu þau Jóna og Siggi eignast, enda bæði þeirrar gerðar að vera fús til hjálpar þeim sem þurftu. Eftir miklar þrengingar tókst þeim að „baslast" í gegnum þessa erfiðleika og halda húsinu sínu. En ég held að þetta tímabil hafi sett sitt mark á bæði. Þar kom að Siggi hresstist og hefur vart orðið misdægurt síðan. Ekki var um annað að ræða en taka tíl þar sem frá var horfið. Sjórinn og störf honum tengd voru eina vinnan sem bauðst hér um slóðir á þeim tíma. Reyndar fengu færri en vildu vinnu nema á vertíðinni. Svo kom stríðið með öllum sín- um umbyltingum, þá réðst Siggi í að kaupa níu tonna súðbirðing, Mb. Áfram, með Óskari Einarssyni sem var annálaður dragnótamaður. Þeir fiskuðu með dragnót frá þvf á vorin og fram á haust og gekk vel. Yfir veturinn lögðu þeir bátnum, enda var hann tæpast til að róa hon- um yfir veturinn, Siggi var þá í landi við ýmsa báta, meðal annars Mb. Svan, sem Jóhann á Vatnsnesi átti, og þótti góð útgerð. 1946 kaupir hann bát með Lárusi Sumarliðasyni svila sínum, Mb. Leif heppna, átta tonna súðbyrðing byggðan 1915. Hann hafði legið uppi á grænum grösum í Garðinum um hríð. Þar hóf Siggi sinn skipstjóraferil. Þeir gerðu hann út með sama 78 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.