Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 11
hætti og Mb. Áfram. Siggi hafði
numið fræðin af Oskari og vel gekk
að fiska. En um haustið kom mikill
leki að bátnum þar sem þeir voru
að ftska suður af Hafnaleir. Hálf-
sokknum tókst þeim að komast á
bátnum til Keflavíkur hjálparlaust.
En á sjó fór hann ekki eftir það.
Árið eftir kaupa þeir Mb. Friðrik,
tíu tonna bát byggðan á Akureyri
1925.
Með harmakvælum tókst að gera
Mb. Friðrik út tvö sumur. Hann var
ónýtur.
Haustið 1948 kaupa þeir svilar
fimmtán tonna bát frá Vestmanna-
eyjum, Mb. Tjald byggðan 1919.
Þar með hófst frægðarferill Sigga.
Á þennan bát gekk vel.
Einkanlega á dragnótinni sem
Siggi náði mjög góðum tökum á.
Þar naut glöggskyggni hans sín
best. Hann þekkti allt svæðið frá
Reykjanesröst að Snæfellsnesi bet-
ur en flestir aðrir. Á því byggðist
allt, engin voru tækin.
1954 skiptu þeir um bát. Keyptu
24 tonna bát, Mb. Ægir, byggðan í
Fridriksund í Danmörku 1935.
Þeir gáfu honum einnig nafnið
Tjaldur. 1967 seldu þeir hann og
keyptu 30 tonna bát frá Stokkseyri
byggðan á sama stað 1956. Á þess-
um bátum voru stundaðar alls kon-
ar veiðar. Meðal annars veiddu þeir
loðnu á vertíðinni til beitu.
Alltaf gekk þeim með því besta
sem gerðist um hliðstæða báta.
Aldrei hlekktist Sigga á í neinu
alla sína skipstjómartíð. Aldrei
henti hið minnsta slys á mönnum
hjá honum á 30 ára skipstjóraferli
hans þótt fast væri sótt á smáum
fleytum, lengst af með fmmstæð-
um búnaði. Slíkt mun með ein-
dæmum og lýstir best árvekni hans
og frábærri sjómennsku.
1977 seldu þeir Tjaldinn. Siggi
var búinn að vera skipstjóri yfir 30
ár, þjáður af sjóveiki helminginn af
tímanum. Ungur vildi hann helst
verða smiður.
Hann fór að vinna í Gluggaverk-
smiðjunni Ramma. En hann undi
ekki í landi, sjórinn var orðinn hluti
af honum. Hann fékk sér trillu og
fór að róa á ný og gerir það enn, nú
einn á bát.
Kvótinn finnst honum knappur
og furðulega skipt, en lætur kyrrt
laus við allan skarkala þessa heims.
Hann hefir aldrei staðið í þrasi við
einn eða neinn.
Siggi er stálhraustur, aðeins far-
inn að missa heym. Ég held að það
bagi hann lítið. Hann fer hvort sem
er sínar leiðir hvað sem hver segir.
Ég á frænda mínum margt gott
upp að unna. Þegar hann átti í veik-
indum sínum, smíðaði hann fyrir
mig þann fallegasta bát sem nokkur
strákur hefir átt hér í Keflavík. Þeg-
ar hann fór að „dútla“ í Ramma
smíðaði hann „Breiðfirðing" með
seglum og reiða og gaf mér. Hann
er snillingur með vasahnífinn sinn,
sem er hans aðal „smíðatól". Vafa-
laust hefir Jóna saumað seglin.
réðist ég á Tjaldinn hjá honum og
var þar í rúmt ár.
Ég var að vísu búinn að vera á
sjó í 17 ár en mest á togurum. En til
þess að vera með bát taldi ég ráð-
legast að fara í skóla til frænda
míns.
Það reyndist vel ráðið því hjá
honum lærði ég margt af því sem
dugði mér best þegar ég varð
skipstjóri, og hafði ég þó verið með
góðum skipstjórum.
Það var vel að orði komist hjá
honum Sigga með „Vörina“, sem
lengi var með Sigga þegar hann
lýsti honum með þessum orðum:
„Hann sést ekki bærast, en er þessi
vargur." Siggi er einstaklega verk-
laginn á hverju sem hann tekur.
Skapgerðin er einstök. Aldrei
veit ég til að hann hafi skipt skapi
eða haft orðinu hærra á hvetju sem
gekk og er hann þó kappsfullur í
meira lagi.
1960 fluttu þau að Njarðargötu 3
á efstu hæðina, þar sem vel sér til
hafnarinnar. Þar hefir Jóna búið
þeim fagurt heimili.
Siggi og Jóna eignuðust fimm
böm, öll fyrirmyndarfólk. Elstur er
Einar Bragi þá Jóhanna, Ólafur,
Ágústa og yngst er Ásta. Ágústa
býr í Bandaríkjunum, hin öll í
Keflavík. Bamabömin em þrettán
og bamabamabömin þijú.
Góði frændi minn, að lokum vil
ég biðja þig að meðtáka síðbúnar
heillaóskir f tilefni af áttræðisaf-
mælinu. Guð og góðar vættir fylgi
þér.
Ólafur Björnsson.
liggja. En þessi uppáhalds frændi minn
Hann rær þegar gefur á trillu- hefir ekki aðeins glatt mig. Þegar
hominu sínu, einn með sjálfum sér ég fór að hugsa um að hefja útgerð
AÐALSAFNAÐARFUNDUR
KEFLAVÍKURSAFNAÐAR
Aðalsafnaðarfundur Keflavík-
ursóknar var haldinn sunnudag-
inn 28. apríl sl.
Auk venjulegra aðalfundar-
starfa lagði undirbúningsnefnd að
byggingu safnaðarheimilis fram
greinargerð varðandi málið og
hafði formaður nefndarinnar
Guðmundur Bjömsson orð fyrir
nefndinni.
Meginhugmynd nefndarinnar
er að byggt verði um það bil 700
fermetra safnaðarheimili á kirkju-
lóðinni norðan kirkjunnar og
byggingin tengist anddyri kirkj-
unnar með léttbyggðum gangi.
Var hugmyndum nefndarinnar
vel tekið og samþykkti fundurinn
fyrir sitt leyti, að mál þetta verði
áfram rekið á þeim forsendum
sem nefndin hefur mótað.
Kjörtímabil Bjama Jónssonar
formanns sóknamefndar, Krist-
jáns A. Jónssonar gjaldkera og
Lúðvíks Jónssonar var nú útmnn-
ið og gáfu þeir ekki kost á sér til
endurkjörs.^ í þeirra stað hlutu
kosningu Ámi V. Ámason for-
maður, Sævar Reynisson gjald-
keri og Kristján Hansson.
Þá var Ragnar Snær Karlsson
kjörinn safnaðarfulltrúi til fjög-
urra ára, í stað Kristjáns A. Jóns-
sonar, sem ekki gaf kost á sér til
endurkjörs eftir að hafa lokið sínu
kjörtímabili. Elsa Kjartansdóttir
var kjörin varasafnaðarfulltrúi.
Nýir varafulltrúar í sóknar-
nefnd em Ragnheiður Skúladótt-
ir, Sverrir Guðmundsson, Kjartan
Ásmundsson og Herbert F. Áma-
son.
Fundarstjóri var Sveinn Er-
lingsson, en hann og Helga Gunn-
laugsdóttir hverfa nú úr varasókn-
amefnd að eigin ósk eftir að kjör-
tímabili þeirra var útmnnið.
Að lokum má svo geta þess hér
að sóknarprestur og kór Borgar-
neskirkju syngja messu í Kefla-
víkurkirkju ásamt heimafólki 12.
maí nk. og endurgjalda þar með
heimsókn Keflvíkinga frá liðnu
hausti.
Árni V. Árnason
nýkjörinn formaður
sóknarnefndar.
FAXI 79