Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 12

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 12
GMiinar Erlendsson á liálfaljörn Vatnsleysnstrond? Ufki*i cLrol hfiáft Kikni 4:»«»m•*«1 i*án bi■ i SHMÍMl. 9"111 ðlitllllilf «1 M 111511 í 1. tölublaði 51. árgangs „Faxa“ er grein eftir Guðmund B. Jónsson er hann nefnir „Fyrstu bflar á Suðurnesjum“. Þar ræðir hann um fyrsta bfl í Vatnsleysustrandar- hreppi. Þar fullyrðir hann að mjólkursala hafi hafist úr hreppnum 21. mars 1920. Þetta er rangt, það var ári síðar 21. mars 1921. Þessu til sönnunar er fyrsta og eina funda- gerðarbók Mjólkurfélags Vatnsleysustrand- arhrepps. Fvrsta fundargerð orðrétt: Ár 1921 hinn 29. dag janúarmánaðar voru (að undangenginni auglýsingu frá hreppstjóra Stefáni Sigurfmnssyni bónda á Auðnum) samankomnir að Landakoti nokkrir bændur og var tilgangur samkomunnar sá að ræða um hvort ekki mundi tiltækilegt að koma á mjólk- ursölu héðan úr hreppnum. Fundarstjóri var kosinn hreppstjóri Stefán Sigurfmnsson bóndi á Auðnum og fundar- skrifari Erlendur Magnússon bóndi á Kálfa- tjöm. Var þá til umræðu stofnun félagsins og það stofnað með hér undirskrifuðum meðlim- um. Stefán Sigurfmnsson bóndi, Auðnum Sveinn Pálsson, Landakoti Steingrímur Jóhannsson, Flekkuvík Auðunn Sæmundsson, Minni-Vatnsleysu Bjöm Jónsson, Norðurkoti Davíð Stefánsson, Ásláksstöðum Erlendur Magnússon, Kálfatjörn Guðjón Jónsson, Hellukoti Bjami Stefánsson, Stóru-Vatnsleysu Þórarinn Einarsson, Bergskoti Gísli Sigurðsson, Minna-Knarramesi Benedikt Þorláksson, Höfða Sigurður Sœmundsson, Hvassahrauni Bjargmundur Guðmundsson, Bakka Var næst rætt um að reyna til að fá að komast í samband Mjólkurfélags Reykjavíkur og voru kosnir deildarfulltrúar til þeirrar ferðar á aðal- fund félagsins Sveinn Pálsson og Erlendur Magnússon og til vara Stefán Sigurfmnsson. Fleira var ekki til umræðu á fundi þessum og var því fundi slitið. Stefán Sigurfmnsson (sign) Erlendur Magnússson (fundarritari) (sign)“ Alls voru það 14 bændur sem þama stofnuðu til félagsskapar sem þeir litu á sem deild saman- ber „kosnir deildarfulltrúar" í fundargerð. Greinilega hafa menn gert sér góðar vonir um að fá inngöngu í Mjólkurfélag Reykjavíkur, en raunin varð önnur eins og fram kemur á næsta fundi og fundargerð ber vitni um. 2, fundur „Hinn 14. mars 1921 var fundur haldinn að Landakoti og skýrðu þeir deildarfulltrúi Er- lendur Magnússon og varafulltrúi Stefán Sig- urfmnsson er inneftir fóm á aðalfund Mjólk- urfélags Reykjavíkur frá því er þar gerðist þessu máli viðkomandi og það að Mjólkurfél- ag Reykjavíkur ekki sá sér fært að bæta þess- ari deild við sig var til umræðu tekin stofnun Mjólkurfélags Vatnsleysustrandarhrepps með neðantöldum og hér undirskrifuðum meðlim- um stofnað: Sigurður Sæmundsson, Hvassahrauni Bjami Stefánsson, Stóru-Vatnsleysu Guðmundur Jóhannesson, Flekkuvík Steingrímur Jóhannsson, Flekkuvík Erlendur Magnússon, Kálfatjöm Bjöm Jónsson, Norðurkoti Guðjón Jónsson, Hellukoti Sveinn Pálsson, Landakoti Þórarinn Einarsson, Höfða Stefán Sigutfinnsson, Auðnum Var síðan rætt um hvenær byrja skyldi að flytja mjólk til Hafnarijarðar og var ákveðið að byrja næsta mánudag 21. mars. Útsölukona nú fyrst um sinn er ráðin Jónína Þorkelsdóttir að útvegun Erlendar Magnússonar. Sveini Pálssyni var falið að kaupa þá mjólkurbrúsa er nægja muni nú fyrst og einnig að ráða mann til flutninga.“ „Hinn 5. apríl 1921 var fundur haldinn að Landakoti í Mjólkurfélagi Vatnsleysustrand- arhrepps. Var byijað að flytja mjólkina svo sem ákveðið var 21. mars og getið er um í síð- ustu fundargerð og réði Sveinn Pálsson til flutnings Jón Ólafsson á Bjargi hér í hreppi og er kaup hans kr. 175 og 3 krónur á dag í uppi- haldspeninga og að hlunnindum 3. potta flutn- ingur af mjólk daglega til Hafnaríjarðar. Komið var föstu skipulagi á félagið og kosnir í stjóm þess Erlendur Magnússon, Sveinn Pálsson og Guðmundur Jóhannesson.“ Eins og fram kemur í þessari fundargerð er Jón Ólafsson fyrstur til að flytja mjólk af Vatns- leysuströnd, en hann var ráðinn frá 21. mars til 11. maí. Þá tók við Bjöm Jónsson í Norðurkoti og var hann ráðinn til 30. september. Ekki mun hafa þótt gerlegt að flytja mjólk öllu lengur fram á haustið á hestvagni. Enda var stjóm félagsins farin að leita fyrir sér um bílakaup og ráðningu bflstjóra þegar í ágústmánuði. A fundi í félaginu 7. ágúst kemur fram að markaðurinn í Úafnar- firði er lítill og óábyggilegur. Er þá ákveðið að senda mann til Reykjavíkur og á hann að athuga möguleika á sölu mjólkur þangað. Til þess var kosinn Sveinn Pálsson. Enn er fundur í Mjólkurfélagi Vatnsleysu- strandarhrepps 22. ágúst. Sveinn Pálsson er kos- inn var á síðasta fúndi til að athuga möguleika á mjólkursölu í Reykjavík skýrði frá því að hann teldi líklegt að markaður væri nægur þar fyrir þá mjólk sem hér yrði framleidd fyrst um sinn. Rætt var um bílakaup og hvort bjóða skuli þeim sem ekki vom í mjólkursölunni að vera með ef að bfll væri keyptur og mjólk flutt til Reykjavík- ur. „26. ágúst var fundur haldinn í þinghúsi hreppsins með þeim er enn höfðu ekki hafið mjólkursölu. Þar mættu 2 fulltrúar frá Mjólk- urfélagi Vatnsleysustrandarhrepps. Þar óska 14 bændur eftir að gerast félagar í Mjólkurfél- agi Vatnsleysustrandarhrepps." Þar með em félagar orðnir 29 þar sem 5 félag- ar höfðu áður bæst við þá 10, er félagið stofnuðu í upphafi. Þama á fundinum er 2 mönnum bætt við í stjóm, þeir höfðu frá byijun verið 3. Kosn- ir vora Ólafúr Pétursson, Stóra Knarrarnesi og Sigurjón Waage, Stóm Vogum. Fyrir vom Sveinn Pálsson, formaður, Erlendur Magnús- son, ritari og Guðmundur Jóhannesson, gjald- keri. „9. september 1921 var fundur haldinn í Mjólkurfélagi Vatnsleysustrandarhrepps. Að- alefni fundarins var að ræða um bflakaup til mjólkurflutnings og annarra flutninga eftir því 80 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.