Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 13
sem flutningsþörf verður og bíllinn getur við
komið.
Til fundarins hafði verið boðaður Þórður
Bjamason sem talað hafði verið við um að
verða bflstjóri og hluthafi ef um semdist. Þeg-
ar til kom vildi Þórður ekki við þetta eiga. Ák-
veðið var að tala við Þorberg Sigurðsson
bílstjóra í Hafnarfirði þessu viðvíkjandi.“
En hann átti þá þegar vörubfl. Þorbergur var
síðar í mánuðinum ráðinn bflstjóri og seldi hann
3/4 hluta í bfl sínum Bifreiðafélagi Vatnsleysu-
strandar er þá hafði verið stofnað að tilhlutan
Mjólkurfélags Vatnsleysustrandar.
„Hinn 23. september er fundur haldinn í
Mjólkurfélagi Vatnsleysustrandarhrepps í
fundarhúsi hreppsins og hafði verið til hans
boðað með fundarboði um allan hreppinn.
Fundarstjóri var kosinn Stefán Sigurfinnsson
hreppstjóri.
Var fyrst til umræðu bílakaup og stofnun
Mjólkurfélags yfir allan hreppinn, og var það
þegar stofnað umræðulaust með öllum greidd-
um atkvæðum. Næst var bflamálið rætt af ým-
sum fram og aftur og kom að síðustu tillaga
frá Áma Th. Péturssyni svohljóðandi:
Allir mjólkurfélagar em skyldir til að eiga
hlutabréf í bfl þeim er félagið kaupir, fyrir ák-
veðna tölu kúa þeirra er þeir flytja mjólk úr á
árinu (til dæmis 1 hlut fyrir hverja kú). En
bflstjórinn skal eiga minnst 1/4 hlut í bflnum
en mest 1/3 hluta hans.“
Var tillagan rædd á ýmsa vegu og var síðan
samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. -
Var þá gengið til stjómarkosninga.
Mjólkurfélagsstjómin var endurkosin með
ölium greiddum atkvæðum og em þeir því í
henni:
Sveinn Pálsson, bóndi, Landakoti
Guðmundur Jóhannesson, bóndi, Flekkuvík
Erlendur Magnússon, bóndi, Kálfatjöm
Ólafur Pétursson, bóndi, Knarramesi
Sigurjón J. Waage, bóndi, Stóru Vogum
Tillaga kom frá Áma Th. Péturssyni um að 5
menn yrðu einnig í bflstjóminni og var hún
studd og samþykkt. í bflstjóm vom kosnir:
Bjami Stefánsson, bóndi, Stóru Vatnsleysu
Eyjólfitr Jónsson, bóndi, Þómstöðum
Sigurjón J. Waage bóndi, Stóm Vogum
Klemens Hallgrtmsson, Austurkoti
Stefán Siguifinnsson, bóndi, Auðnum
Einnig felur fundurinn bflstjóminni allar frek-
ari framkvæmdir í öllu er bflnum tilheyrir.“
Má segja að hér hafi verið stofnað hlutafélag
af sömu bændum og vom í Mjólkurfélagi Vatns-
leysustrandar, en það félag var rekið í sam-
vinnufélagsformi. Þessi tilhögun reyndist hin
farsælasta.
Á þessum fundi vom einnig borin upp og
samþykkt lög fyrir mjólkurfélagið, en það nefn-
ist upp frá þessu Mjólkurfélag Vatnsleysu-
strandar (ekki hrepps). Lög þessi vom mjög ítar-
leg (alls 20 gr.) og tóku á öllu er viðkom með-
ferð og flutningi mjólkur meðal annars.
Mjólkurfélag Vatnsleysustrandar hafði áfram
á hendi mjólkursöluna úr hreppnum, hafði einn
og stundum tvo útsölustaði í Hafnarfirði, rak
mjólkurbúð á eigin vegum í Reykjavík og seldi
auk þess f búðir þar. Helst sú tilhögun fram í
ágúst 1926 er samið var við Mjólkurfélag
Reykjavíkur að það tæki að sér söluna.
Þegar líða tók á árið 1927 kom í ljós að Mjólk-
urfélag Reykjavíkur vildi ekki framlengja samn-
ing félaganna frá fyrra ári á þeim gmndvelli er
verið hafði, en gerði Mjólkurfélagi Vatnsleysu-
strandar það tilboð að gerast fullgildur félagi í
Mjólkurfélagi Reykjavíkur og mynda deild í
því. Það er svo á almennum fundi í Mjólkurfél-
agi Vatnsleysustrandar 3. des. 1927 að sam-
þykkt er að ganga að þessu tilboði M.R. Kosnir
vom 2 fulltrúar til að mæta á aðalfundi þess. 14.
febrúar 1928 gekk Mjólkurfélag Vatnsleysu-
strandar formlega í Mjólkurfélag Reykjavíkur
og er eftir það Vatnsleysustrandardeild þess fél-
ags.
8.APRIL
opnaði Landsbanki íslands
útibú í Miðbæ Keflavíkur
í framhaldi af kaupum Landsbankans á Samvinnubankanum
hefur útibúi Samvinnubankans verið breytt í
Landsbankaútibú sem opnaði formlega þann 8. aprfl.
Landsbankinn býður viðskiptavini velkomna í hið nýja útibú
og óskar starfsfólki velfamaðar undir nýju merki.
Afgreiðslutími útibúsins að Hafnargötu 57 er alla virka daga
frá kl. 9:15 - 16:00. Síminn er 92-1 12 88
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
FAXI 81