Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 14
1
Ólafur Oddur Jónsson:
Safnaðarheimili við
Ke£laví kurkir kj u
Ágæta safnaðarfolk, það ætti
ekki að koma okkur á óvart að
kristin trú, sem hefur manndóms-
gjörning Guðs að megin inntaki,
leggi mikið upp úr góðri aðstöðu
til guðsþjónustuhalds og safnað-
arlífs. Kristur kom ekki aðeins inn
í tímann, heldur dvaldi hann
manna á meðal a' ákveðnum stað
á jörðinni. Nýja testamentið er
fullt af staðarnöf num: Jesús var í
Jerúsalem, Betaníu, við Galileu-
vatn og ána Jórdan o.s.frv., en alla
þessa staði sóttum við heim á
ferðalagi okkar til ísraels 1985.
Sama má segja um hjálpræðis-
söguna, Guð Gyðinga og kristinna
manna er kunngjörður í atburð-
um sem áttu sér stað meðal karla
og kvenna, en ekki á Olympsfjalli
eða í Valhöll.
Staðir hjálpræðisatburðanna
eru helgaðir, ekki vegna þeirra
sjálfra, heldur vegna þess sem
Guð gerir þar fyrir menn. I
Bibliunni áttu hjálpræðisatburðir
sér stað á venjulegum akri, við
brunn eða þorpsgötu, á stöðum
sem eru eins algengir og
verslunarmiðstöðvar samtímans.
Staðurinn skiptir sem, sé ekki
máli, það er engi nn staður helgari
en annar, samkvæmt afstöðu
mótmælenda, heldur er það sem
þar gerist mjög mikilvægt. Allt frá
því atburðurinn gerðist, sem
Séra Ólafur Oddur Jónsson.
tengist staðnum, fylgir honum
ákveðin merking.
í lexíu dagsins segir frá því er
Jakob vaknaði af draumi sínum
og mælti: „Sannlega er Drottinn á
þessum stað og ég vissi það ekki.“
Og ótta sló á hann og hann sagði:
,,Hér er vissulega Guðs hús, og
hér er hlið himins!" Og Jakob reis
árla um morguninn og tók stein-
inn, sem hann hafði haft undir
höfðinu, og reisti hann upp til
merkis og hann nefndi þennan
stað Bethel, sem þýðir Guðs hús,
svo allir mættu verða vitni að
þessum atburði. Allt frá fjórðu öld
hefur þeim atburðum, sem áttu
sér stað í lífi Jesú, dagana áður en
Verklýðs-
og sjómannafélag
Keflavíkur
og nágrennis
Skrifstofur félagsins eru að Hafnargötu 80
Síminn er 15777.
Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 9—17.
Föstudaga kl. 9—3.
MUNIÐ
ORKU-
REIKNINGANA
Eindagi orkureikninga er
15. hvers mánadar.
Látid orkureikninginn
hafa forgang
Hitaveita
Suðurnesja
82 FAXI