Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 17

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 17
anlegri og að virkari þátttakanda í helgihaldinu. Skírnarrýmið er í kringum skírnarfontinn. Það er allt of mikið um að skírnin sé einka- athöfn, stundum í fjarlægu horni kirknanna. Sérhver skírn er í rauninni verk alls safnaðarins, ekki aðeins vegna þess að skírnin bætir við tölu safnaðarmeðlima, heldur vegna þess að þeir sem hafa farið í gegnu m vatn dauða og upprisu i skírninni, eins og Páll postuli hefur dregið upp mynd af, eru sameinaðir Kristi. Helgirýmid er við altarið. Venjulega er þetta auðsjáanleg- asta rýmið í byggingunni og hlut- verk þess er að þjóna ekki að drottna og þar á fólk að geta safn- ast saman. Altarið er þjónustu- borð fyrst og fremst og á því eru efnin sem höfð eru um hönd í samfélaginu um Guðs borð, rétt eins og skírnarfonturinn hefur vatn að geyma og Biblían er þar til staðar eins og í prédikunarstóln- um. Það fyrsta sem ég myndi nefna í sambandi við byggingu nýs safn- aðarheimilis er að það komi að góðum notum við fjölþætt starf kirkjunnar og verði í góðum tengslum við guðsþjónusturými kirkjunnar og kapellunnar, sem þar verður staðsett og mætti vera stærri en fyrirhugað er. En við ætlum okkur að reisa þetta hús til þess að nýta það sem best, en ekki til að dáðst að því fyrst og fremst. I örðu lagi myndi ég nefna einfaldleikann. Aðeins ef við gerum okkur grein fyrir hvað ligg- ur til grundvallar helgihaldinu getum við mætt þeim þörfum sem eru til staðar í kirkju og safnaðar- heimili. Það er hægt að eyðileggja kirkjur og safnaðarheimili með því að eyða of miklum peningum í það sem ekki skiptir máli, en of litlu í það sem er grundvallar- atriði. Það þarf að huga að helgi- haldinu þegar verið er að tengja nýtt safnaðarheimili kirkjunni. Undirbúningsnefndir þurfa að vinna sína heimavinnu sem best, eins og sú nefnd hefur vissulega gert sem nú er að Ijúka störfum og kunnum við henni bestu þakkir fyrir. En án upplýsinga um helgi- haldið getur jafnvel ekki besti arkitekt teiknað þá byggingu sem er við hæfi. Á síðustu árum hafa menn einn- >g gert sér grein fyrir því að hafa þessar byggingar þannig, að það sé hægt að aðlaga þær breyttum aðstæðum. Þrátt fyrir stöðug- leikann í kristnu helgihaldi eru að verki mótandi öfl sem vilja breyta hinum ytri ramma í sum- um tilvikum. Helgihaldið á að ganga úr frá fjölbreytileika. Þau ummæli, að þegar við byggjum þá byggjum við til eilífðar heyra til liðinni tíð. Miklu nær væri að segja að þegar við byggjum eigum við ekki að binda hendur kom- andi kynslóða um of. Margt getur breyst á skömmum tíma. Ohreyf- anlegir bekkir, föst ræðupúlt óbreytanlegt svið, tilheyrir þeim tíma þegar menn gátu ekki hugs- að sér neinar breytingar. Og hið heimilislega andrúms- loft í Kirkjulundi ættum við að reyna að hafa með okkur yfir í nýja safnaðarheimilið. Frumkirkj- an þekkti slíkt andrúmsloft, sið- breytingin reyndi að endurvekja það og menn leita mjög eftir því nú á tímum, vegn a þess að kirkjan á ekki að vera hnakkasamfélag, þar sem horft er á hnakkann á ná- unganum. Safnaðarheimili á ekki að vera minnismerki, því bygging- arlistin á að þjóna fólki, en ekki að drottna yfir því. Sá sem kemur til guðsþjónustu á að fá það á til- finninguna að hann sé á sviðinu, sem virkur þátttakandi í helgi- haldinu, en ekki einmana áheyr- andi í fjöldanum. Við megum heldur ekki gleyma smekk og feg- urð. Kirkjulistin getur hjálpað nútímamanninum til þess að vera ekki eins upptekinn af sjálfum sér og vert er að leita til lista- manna um listaverk í safnaðar- heimilið. Þar kemur til greina kirkjuleg list í víðtækasta skiln- ingi. Nýtt safnaðarheimili getur átt stóran þátt í endurnýjun kirkjunn- ar. Aðdragandi þess að góður und- irbúningur er ekki síður mikil- vægur en byggingin sjálf. Mikið veltur þá á þeirri leiðsögn sem er veitt og þeim tíma sem tekinn er til undirbúnings. Því meir sem við hugleiðum helgihald kirkjunnar og safnaðarstarf, þeim mun betur verðum við í stakk búin til þess að mæta þörfum safnaðarins og byggja safnaðarheimili sam- kvæmt fyrirheiti Guðs um sem besta þjónustu við náungann. Flutt 28. apríl 1991 í Kefla- víkurkirkju í tilefni af því að undirbúningsn efnd lagði fram greinargerð um byggingu safnaðarheimilis við Keflavík- urkirkju. í Happaþrennu Háskóla Islands! SÖLUSTABIR í KEFLAVÍK: Verslunin Hornið, Ný-ung. BILAKRINGLAN GRÓFIN 7og8 ..11.11............. KEFLAVIK RAUTT RAUTT LJÓS ÍUMFERÐAR RÁÐ FAXI 85

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.