Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 18

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 18
Vigdís Jóhannsdóttir í hlutverki Línu langsokks. Á sjálfan kosningadaginn 20. apríl s.l. tók Leikfélag Kefla- víkur til sýningar barnaleikrítið góðkunna - Línu langsokk. Undirrítaður brá sér á sýningu á sumardaginn fyrsta og fylgdist með í félagi við álitlegan hóp ungra barna og margra for- eldra. Hafði ég hina bestu skemmtan af þeirri leikför. Höfundur sögunnar um hana Línu langsokk er sænski bamahöfundur- inn Astrid Lindgren sem hefur á löngum ferli sfnum skrifað margar perlur. Nægir þar að nefna söguna um hann Emil í Kattholti. Astrid er það lagið sem öðrum góðum húm- oristum, að þótt skopið og spaugið gangi út yftr öll venjuleg mörk, þá glittir berlega í gæskuna og kær- leikann. Sagan af Línu langsokk segir frá undarlegu stúlkubami sem kemur í sveitina til að búa á Sjónarhóli. Hún hefur með sér apann sinn hann herra Níels og einnig hestinn sinn. Hún hefur ekki með sér neina foreldra, því mamma hennar er engill á himnum, og það sem hún sá síðast til pabba síns var þegar hann féll fyrir borð á sjóræningja- skipinu sínu. Hún veit því ekki hvar Langsokkur sjóræningjaskip- stjóri er niður kominn, en er þess handviss að honum hafi skolað á land og hann muni fljótlega koma að ná í hana. Næstu nágrannar Línu eru sóma- bömin Tommi og Anna. Þau hafa aldrei kynnst þvílíkum félaga. Lína reynist þeim vel, hún er skemmti- leg og hún er líka sterkasta stúlkan 1 heiminum. Lögreglumenn sveit- arinnar vilja koma henni á barna- heimili fyrir munaðarlaus börn en hafa ekki erindi sem erfiði við að koma henni þangað. Það verður þó ekki sagt um Línu, að hún sé auðveld í umgengni, því bæði hleypir hún upp kaffiboðinu fyrir fínu frúmar hjá mömmu þeirra Tomma og Önnu, heldur er kennar- inn þeirri stundu fegnastur er Lína samþykkir að koma ekki aftur í skólann fyrr en hún hefur þroskast meira. Þetta lætur Lína sér vel lynda, hún ætlaði hvort eð er aðeins í skólann til að fá jólafrí. Það er vel til fallið af LK að taka þetta ágæta bamaleikrit til sýninga. Bæði eru bömin þakklátir leikhús- gestir og svo er það í svona verkum að efnilegir leikarar líta dagsins ljós. Það er Hulda Ólafsdóttir sem leikstýrir Línu langsokk og er ekki annað að sjá, en að henni hafi tekist bærilega upp. Hið Iitla leiksvið í Félagsbíói setur leikstjóranum ör- ugglega nokkrar skorður, en mér sýndist plássið vera vel nýtt. Hulda hefur fengið í hendur fjölda óreyndra leikara og nýtir hún þann efnivið vel. Eins og að líkum lætur, þá er Lína aðalpersónan allt leikritið út í gegn. Það er nýlega fermdur unglingur í Keflavík, Vigdís Jóhannsdóttir, sem fer með hlutverk Línu, og var fengin í hlutverkið með stuttum fyrirvara. Er skemmst frá því að segja, að Vigdfs stendur sig með mikilli prýði. Höfuðkostur hennar er sá, að hún skilar textanum frá sér svo skilmerkilega að hrein unun er 86 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.