Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 19

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 19
í kennslustund með Línu langsokk. Hún kann vfst ekki að vera f skóla, enda alin upp um borð í sjóræningjaskipi. Frá vinstri: Þórólfur Þórsson, Burkni Birgisson, Guðfinnur Sigurvinsson, Sara Lind Guðmundsdóttir, Vigdís Jóhannsdóttir og Kamilla Ingibergsdóttir. af. Hún gengur til verks af öryggi - hreyfingar og fas allt hið trúverðugasta. Og hún syngur ágætlega. Það er einnig gaman að sjá til þeirra Kamillu Ingibergsdóttur og Þórólfs Inga Þórssonar, en þau leika Önnu og Tomma, og þar eru á ferðinni framtíðarleikarar LK. Önnur böm skila sínum hlutverkum ágætlega. Fullorðnu fólki í bamaleikritum er oftast ætlað að vera eiiítið hjákátlegt og það er óspart gert gys að því. Þetta gerir Lindgren á meistaralegan hátt. Mamma Tomma og Önnu og kaffivinkonur hennar fá sinn skerf og ná leikarar ágætum tökum á þeim persónum öllum. í mínum huga er Langsokkur skipstjóri stór og feitur sjóræningi og Lína sýndi hversu sterk hún er, er hún lyfti pabba sínum upp. Ég hugsa að Þór Helgason hefði passað betur í hlutverk Langsokks en að sjálfsögðu bregst Ámi Ólafsson ekki frekar en fyrri daginn. Hulda leikstjóri tók upp á því, að skjóta nokkmm aðskotaatriðum inn í leikritið um hana Línu. Þama komu ræningjamir úr Kardimommubænum og Soffía frænka. Flækingamir Ari og Kári koma í heimsókn til Línu. Hugsuðu þeir gott til glóðarinnar, þegar þeir sáu vamarlaust stúlkubamið vera að leika sér að glás af gullpeningum. En eins og allir vita, þá er ekki sopið kálið þó í ausuna sé komið, og fór Lína létt með að yfirbuga þá þokkapilta. Mér er næst að halda, að þeir Ómar Ólafsson og Guðbrandur Sigurðsson sem fóm með hlutverk þjófanna hafi að öðmm ólöstuðum verið bestu leikarar sýningarinnar. Hlakka ég til að sjá meira til þeirra í framtíðinni. Umgjörð leikritsins, svo sem búningar, leikmynd og hljómlistarflutningur, svo og frammistaða annarra leikara, en þeirra sem hér vom nefndir að framan var með miklum ágætum. Má Leikfélag Keflavíkur vel við una. GJALDHEIMTA SUÐURNESJA Opinber gjöld Gjaldendur í Keflavík, Njarðvík, Grindavík, Sandgerði og Gullbringusýslu eru minntir á greiðslu opinberra gjalda utan staðgreiðslu (þinggjöld og s veitarsjóðsgjöld). Lögtök vegna vangreiddra gjalda eru hafin. Gjaldheimta Suðurnesja FAXI 87

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.