Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 20
MINNING
Jakob Indriðason
kaupmaður
Fæddur 11. nóvember 1918 - Dáinn 29. mars 1991
Kveðja frá Faxafélögum
Veturinn hefur verið mildur og
hlýr. Veðráttan hefur verið mjög
óvenjuleg. Á erfíðleikatímum í
sögu íslensku þjóðarinnar hlýtur
slíkur vetur að vera mikil himna-
sending fyrir bændur og búalið.
Slíkir vetur hafa létt mörgum bónd-
anum búsáhyggjumar og gert hann
bjartsýnni á framtíðina í okkar fal-
lega landi. Þessar hugleiðingar
komu í hug mér er ég minntist vin-
ar míns Jakobs Indriðasonar. Því
áhugi hans á landinu, fegurð þess
og gæðum komu svo vel fram í tali
hans og hugsun.
Jakob er fæddur í Ásatúni í
Hrunamannahreppi, sonur hjón-
anna Gróu Magnúsdóttur og Indr-
iða Grímssonar, bónda í Ásatúni.
Hann missti föður sinn ungur, en
ólst upp í föðurhúsum til tvítugs-
aldurs við öll venjuleg sveitastörf.
Kynni okkar Jakobs hófust um
það leiti er ég flutti til Keflavíkur
1949. Hann starfaði þá hjá tengda-
föður sínum, Ingimundi Jónssyni
kaupmanni. Ingimundur var sér-
stakur öðlingsmaður. Jakob kom
oft í kaupfélagið. Sótti þangað
mjólk fyrir skip og báta sem versl-
uðu við Ingimundarbúð. Við tók-
um þá oft tal saman um landsins
gagn og nauðsynjar. Jakob var vel
greindur og hafði góða frásagn-
argáfu. Hann var mildur í tali en
hélt vel á sínum málstað, án öfga
eða yfirlætis. Tal hans var eins og
fallegur fjallalækur. En hann gat
verið fastur fyrir og byrst sig, ef
honum þótti sér misboðið en gerði
það á þann hátt að engan særði, því
glettið kímnisbros fylgdi oft með
til áréttingar.
Ingimundur Jónsson var félagi í
Málfundafélaginu Faxa. Við lát
hans 1965 var sæti hans laust. Fax-
afélagar buðu þá Jakobi að taka
sæti hans sem hann þáði. Hann var
síðan formaður Faxa árið 1967 til
1968 og Faxafélagi þar til 1971 er
þann hætti í Faxa. Ástæður fyrir
því voru mikil vinna og svo tóku
önnur félagsstörf mikinn tíma. Þar
má nefna Karlakór Keflavíkur og
Ámesingafélag Suðumesja þar
sem hann var formaður í 20 ár.
Áhugamál hans vom mörg, þar á
meðal hestar og hestamennska. Það
áhugamál tók mikinn tíma en þess
naut hann í ríkum mæli í skauti ís-
lenskrar náttúm.
Jakob var góður Faxafélagi.
Hann naut sín vel við að ræða á-
hugamál sín og halda um þau fram-
sögu.
Hann var einnig góður ferðafél-
agi. Ég minnist sérstaklega ferða-
lags Faxafélaga þar sem farið var
um Suðurland, æskustöðvar Jak-
obs. Þar var hann leiðsögumaður
og lék á alls oddi, sagði frá kenni-
leitum og lýsti landslagi, sem hann
kryddaði með skemmtilegum sög-
um. Tekið var lagið með undirleik
Kristins Reyrs á dragspil. Það verð-
ur lengi minnisstætt ferðalag.
Hjónaband Jakobs var mjög far-
sælt, en hann kvæntist Ingibjörgu
dóttur Ingimundar Jónssonar 1948.
Þau eignuðust sjö mannvænleg
böm, fímm dætur og tvo syni. Eins
og flestum mun kunnugt halda
Faxafélagar fundi sína á heimilum
hvers annars. Við það skapast
kunningsskapur milli íjölskyldna
þeirra. Faxafélagar áttu margar
ánægjulegar stundir á heimili Jak-
obs og Ingibjargar yfir kaffibolla
og gómsætum pönnukökum, og
umræðum um mörg vandamál
heimsbyggðarinnar.
Jakob var jarðsettur frá Keflavík-
urkirkju þann 6. apríl í fellegu vor-
veðri. Það var ánægjulegt að sjá
hvemig félagar úr Karlakór Kefla-
víkur kvöddu hinn látna félaga sinn
með fallegum söng, og eigi síður
var fagurt að sjá hesta og hesta-
menn mynda heiðursvörð framan
við kirkjuna til virðingar við hinn
látna heiðursmann.
Gamlir og nýir Faxafélagar
kveðja látinn félaga og þakka hon-
um að leiðarlokum samfylgdina
þann tíma sem hann var með okk-
ur. Þeir senda eiginkonu, bömum
og bamabömum innilegar samúð-
arkveðjur.
Gunnar Sveinsson.
Ég lieyri álengdar hófadyninn
Ég horfi langt á eftir þér.
Og bjart er alltafum besta vininn
og blítt er nafn hans á vörum mér.
D. Stefánss.
_ Þegar ég frétti lát vinar míns og
söngfélaga, í tugi ára, brá mér ó-
neitanlega, þótt ég vissi að hann
gekk ekki heill til skógar. Við vit-
um aldrei hvenær kallið kemur.
Fyrir hálfum mánuði var Jakob
leiðsögumaður í söngferðalagi um
Ámesþing, þegar Karlakór og
Kvennakór Keflavíkur heimsóttu
m.a. æskustöðvar Jakobs. Það var
auðheyrt að hann var kominn á
kærar slóðir. Hann virtist yngjast
um mörg ár, samhliða glöggum
lýsingum á mönnum og málefnum,
kryddaði hann frásagnir sínar með
meinlausum en hnittnum gaman-
yrðum frá löngu liðnum dögum.
Þegar leiðir skilja og löngu og
viðburðaríku ferðalagi er lokið er
margs að minnast.
Fyrstu kynni mín af Jakobi vom
fyrir um það bil 35 ámm þegar ég
var starfsmaður Kaupfélags Suður-
nesja, Hafnargötu 30. í þá daga var
það stærsta matvöm- og klæða-
verslun bæjarins, og ég afgreiddi
m.a. kjammiklar landbúnaðaraf-
urðir yfir búðarborðið, þar sem í
dag flýtur bjórinn og brennivínið
yfir barborðið.
Jakob var þá afgreiðslumaður
hjá tengdaföður sínum í Ingimund-
arbúð við Hafnargötu. Þá kom fyr-
ir að þegar mikil sala var t.d. í
mjólkurvömm að Jakob kom í
Kaupfélagið til að sækja það sem á
vantaði fyrir viðskiptavinina. Á
þessum ámm átti Jakob gott með
að snúa sér við og það var auðséð
að það var engin lognmolla í kring-
um hann.
Einhverju sinni tókum við tal
saman þegar hann var í þessum
sendiferðum, það var auðheyrt að
hann kunni skil á mörgu og hafði
sínar sjálfstæðu skoðanir á hlutun-
um, vildi ógjarna fara troðnar slóð-
ir. Þá fann ég að hjartað sló f sveit-
inni. Við áttum því auðvelt með að
skilja hvor annan.
Ég er viss um að ef forlögin
hefðu hagað því þannig að hann
hefði helgað krafta sína fóstur-
moldinni hefði landbúnaðurinn átt
þar góðan Hauk í homi.
Síðar lágu leiðir okkar saman í
Karlakór Keflavíkur um 30 ára
skeið.
Á þessum ámm fór Karlakórinn í
margar lengri og skemmri ferðir
um landið og einnig út fyrir land-
steinana. í öllum þessum ferðum
var Jakob hrókur alls fagnaðar!
margt af þessu lifir í minnum
manna. Þá má ekki gleyma öllum
tækifærisræðunum á árshátíðum og
skemmtikvöldum. Hann hafði ætíð
orðgnátt á hraðbergi, sem hittu áv-
allt f mark.
Hestar og hestamennska vom
hans annað áhugamál. Hann átti
marga góða gæðinga um dagana,
sem hann naut í ríkum mæli á
88 FAXI