Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 21
mörgum ferðalögum um víðáttu ör-
æfanna, þar sem hann gat teygað að
sér hreina fjallaloftið og notið ör-
æfakyrrðarinnar með góðum félög-
um, ftillviss um að „knapi á hesti er
kóngur um stund kórónulaus á
hann riki og álfur“.
Jakob var fæddur í Asatúni í
Hrunamannahreppi, sonur hjón-
anna Gróu Magnúsdóttur og Indr-
iða Grímssonar, sem eignuðust 10
böm. Veraldlegur auður var ekki
mikill, en þeim mun ríkara af anda-
giftinni. Ungur missti hann föður
sinn, þurfti snemma að taka til
hendi við margvísleg sveitastörf.
Þegar hann var um tvftugt
hleypti hann heimdraganum og
réði sig sem kaupamann að Græna-
vatni í Mývatnssveit hjá Páli
bónda, sem var afi Páls Þorgeirs-
sonar læknis sem starfað hefur við
Sjúkrahús Keflavíkur. Jakob naut
verunnar vel fyrir norðan, þrátt fyr-
ir langan vinnudag og bar hlýjan
hug til fólksins, sem var margt því
það var þríbýli á jörðinni. Páll og
faðir minn vom góðir vinir, t.d.
skiptu þeir stundum á kynbótahrút-
um, en þeir voru báðir miklir ljár-
ræktarmenn.
Á árunum 1939-41 stundaði Jak-
ob nám við Héraðsskólann á Laug-
arvatni hjá Bjama skólastjóra,
þeim mikla skóla- og menningar-
frömuði.
Árið 1943 má segja að örlög
hans hafi verið ráðin. Hann réðist
til starfa hjá Ingimundi Jónssyni,
kaupmanni í Keflavík.
Þama kynntist hann dóttur Ingi-
mundar, Ingibjörgu, og gengu þau í
hjónaband á sumardaginn fyrsta
1948. Þau eignuðust sjö böm,
fimm dætur og tvo syni, þau misstu
dóttur á fyrsta ári.
Hann vann hjá tengdaföður sín-
um í 20 ár, þá stofnaði hann sína
eigin verslun við Tjamargötu sem
hann nefndi Brekkubúð. Það var
mjög heimilislegt að koma í þá búð
því ef tóm gafst til voru daglegu
málin rædd. Hann rak þama versl-
un í 20 ár.
Átthagatryggðin var alltaf ofar-
lega hjá honum. Hann var einn af
stofnendum Ámesingafélags Suð-
umesja og formaður þess í 20 ár.
Laugardaginn 6. apríl var hann
jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
að viðstöddu miklu fjölmenni.
Ég votta eiginkonu, bömum og
bamabömum samúð. Minningin
lifir um góðan félaga.
Páll Þór Jónsson
GÓÐAR BÆKUR FRÁ
LANDSBANKANUM
LAIMDSBOK
er ný verðtryggð 15 mánaða bók, sem ber
5.75% vexti og tryggir því mjög góða raun-
ávöxtun sparifjár. Allir íslendingar ættu að
eignast LANDSBÓK, - því fyrr, því betra.
KJÖRBÓK
er mjög góð bók, alltaf laus og því tilvalin
fyrir þá sem vilja ekki festa sparifé sitt
í lengri tíma en fá þó góða ávöxtun.
KJÖRBÓK ber 2.84%raunávöxtun
KJÖRBÓK 1. þrep 4.13% raunávöxtun
KJÖRBÓK 2. þrep 4.69% raunávöxtun
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
Leilsstöð - Sandgeröi • Grindavik
FAXI 89