Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 23
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Útskrift af netagerðarbraut
Þann 20. mars sl. fór fram í húsakvnnum Hampiðjunnar í Reykjavík
útskrift 13 nema úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem lokið höfðu sérgreinum á netagerðarbraut.
Þeir fengu þá afhentar einkunnir og viðurkenningar við iok áfangans.
Yið þetta tækifæri voru m.a. flutt eftirfarandi ávörp og er fróðlegt fvrir lesendur Faxa að
kvnnast lítillega bessari nviung í hinu f|ölbrevtilega starfi Fiölbrautaskólans.
Fvrst flutti ávarp Biörn Bjarnason. sem hefur verið aðalkennari brautarinnar.
Ágætu gestgjafar, kennarar og
nemendur:
Það er mér sönn ánægja að áv-
arpa ykkur á þessum tímamótum í
sögu íslenskrar netagerðar og veið-
arfæra hönnunar. Þessi iðngrein,
sem óneitanlega hefur legið í lág-
inni að undanfömu skal nú upp-
hafjast og henni sá sómi sýndur
sem sæmir einni háþróuðustu fisk-
veiðiþjóð heims. Orðin netagerð
og netagerðarmaður eða kona eru
enn í heiðri höfð, þó til sanns vegar
megi færa að þau heyri sögunni til,
en sú saga væri að vísu vel þess
virði að skráð væri ýtarlega. Sú
nýútfærða námsskrá sem hér skilar
sínum fyrstu nemendum, hefur að
mínu mati alls ekki gengið of langt
í kröfu sinni til þeirra sem í fram-
tíðinni koma til með að eiga stóran
þátt í veiðarfæratækni þróun þjóð-
ar, sem á mest allt sitt undir fisk-
veiðum komið. Hitt er svo annað
mál og rétt að margt þarf að bæta
og endurskipuleggja tif. að auð-
velda námið, og á ég þar við fyrst
og framst kennslubækur fyrir hvert
fag og fullan kennslutíma. Sú
þróun fiskveiða sem hér hefur átt
sér stað á þessari öld er alveg stór-
kostleg, og þó segja megi að hún sé
að mestu leyti af erlendum upp-
runa, þá breytir það ekki þeirri
staðreynd að við Islendingar höf-
um átt þar stóran hlut að máli. Síð-
astliðinn áratug hafa margskonar
rannsóknir á veiðum og veiðarfær-
um okkar verið framkvæmdar með
mjög góðum árangri og til hagræð-
ingar og hagsmuna þeirra sem
sjóinn stunda og skipin reka. Og
það vill einmitt svo til að við erum
gestir þeirrar einkastofnunar sem
ásamt fleiri góðum einkaaðilum.
hafa hvað mest af mörkum lagt til
þessara rannsókna. Það vill einnig
svo til, þó ekki sé þar um neina til-
viljun að ræða, að helsti kennarinn
ykkar í vetur, er einmitt sá maður,
sem þessum tilraunum hefur að
mestu stjómað og sem að hefur á
undanfömum áratugum verið helsti
fmmkvöðull og framkvæmdamað-
ur við tækniþróun fiskveiða og
veiðarfæra þessa lands. Mikilvægi
þessara rannsókna ætti að vera ljóst
hverjum þeim íslendingi sem við
sjávarútveg starfar og verkefnin á
þessu sviði em óendanleg. Þetta
FAXI 91