Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 25

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 25
net sín fyrir hvort annað og stund- um ánetjast þau. I sjómannablaðinu Víkingi (9-10. tbl. '88) er gerð nokkur grein fyrir fræðslumálum greinarinnar. Þar kemur fram, að árið 1927 hlaut netagerð löggild- ingu sem iðngrein, Nót, sveinafél- ag netagerðarmanna var stofnað 1938. Stofnfélagar voru 18, 11 konur og 7 karlar. í dag eru um 90 virkir félagar í Nót en af þeim er aðeins einn af „veikara" kyninu. Eitt af stærstu verkefnum félags- ins hefur verið að efla kennslu í greininni. Hjá Jóni Sigurðssyni, formanni Nótar, kemur fram að þeir sem unnið hafa í greininni í 10 ár hafa fengið að ganga undir sveinspróf „sem enginn hefur enn fallið á“. Og Jón heldur síðan á- fram. „Fólk hefur gengið meira og minna sjálfala í genum námið. Það er til námsskrá en hún hefur ekki verið notuð. Við höfum á undan- fömum árum efnt til tveggja nám- skeiða í samvinnu við Iðnskólann og það hefur sýnt sig að mikill áh- ugi er á þessu námi. Eftir nám- skeiðin fóru þó nokkrir á samning." Eins og sjá má er ekki von á miklum framförum þegar fræðslu- málum greinarinnar er háttað á þann veg sem hér er lýst. Þrátt fyrir að námskeiðin, sem voru undir stjóm Guðna Þorsteinssonar, hafi verið til mikilla bóta var þörf á enn frekari úrbótum. í febrúar 1985 kom út námskrá fyrir netagerð og studdist Guðni við hana á nám- skeiðum. En ljóst var að námskröf- ur í faggreinum voru ekki nægar og nokkur stutt námskeið duguðu hvergi. 29. mars 1988 var skipuð Námsnefnd sem setti fram tillögur um tilhögun námsins. í tillögunum var gert ráð fyrir einnar annar námi í sérgreinum og að nemendur alls staðar af landinu væri safnað sam- an á einn stað. Fjölbrautaskóli Suð- umesja hafði sýnt áhuga á að taka þetta nám að sér og varð hann því fyrir valinu. Um þetta fyrirkomu- lag sagði Guðni Þorsteinsson „góð- ar horfur eru á að komið verði upp alvöru kennslu í netagerð í eina önn sem væri mikil framför“. 14. des. 1988 fól síðan menntamál- aráðuneytið FS að annast kennslu í netagerð fyrir samningsbundna nema. Ekki vom allir á eitt sáttir um þetta fyrirkomulag.og ekki náð- ist í nægilega marga neinendur fyrr en á þessari önn. í nóvember síð- astliðnum var Bjöm Bjamason ráð- inn til að undirbúa og skipuleggja námið og kennsluna á iðnbraut netagerða. Bjöm sá svo um megnið af kennslunni, ásamt Guðna Þor- steinssyni og Lámsi Pálmasyni. Virðist vel hafa tekist til og þrátt fyrir að í upphafi annar hafi nokkr- um nemendum vaxið í augum það sem framundan var, em allir sælir og ánægðir að námslokum. Segja má að brotið hafi verið blað í sögu netagerðar með þessu námi. í fyrsta skipti hafa nemendur fengið vem- lega fræðslu í sérgreinum fagsins. Einnig hefur þetta fyrirkomulag verið prófsteinn á þá hugmynd að veita góða faglega menntun í fám- ennum iðngreinum með því að kenna sérgreinar hennar á einum stað og á einni önn. Þetta virðist hafa heppnast vel og má því búast við að fleiri iðngreinar fylgi í kjöl- farið. Að síðustu vil ég þakka Hamp- iðjunni og Kristjáni Skagfjörð fyrir þann velvilja sem þessi fyrirtæki hafa sýnt netagerðarbrautinni. Og þeim fyrmefndu fyrir þessar glæsi- legu móttökur. Kennumm brautar- innar færi ég og þakkir fyrir þeirra brautryðjendastarf. Nemendum óska ég alls hins besta og að ís- lenska þjóðin megi hagnast vel á verkum þeirra í framtíðinni. Ægir Sigurðsson flytur ávarp og hampar í leiðinni merki Fjölbrautaskólans. Björn Bjarnason afhendir Hermundi Pálssyni verð- laun fyrir frábæra ástund- un og góðan námsárangur. Hér hefur Guðmundur Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hampiðj- unnar, afhent viðurkenn- ingu fyrir góðan námsár- angur. Frá vinstri eru það Bergþór Bjarnason, Anton Nielsson og Húnbogi Vals- son sem fengu þessar við- urkenningar FAXI 93

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.