Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 30

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 30
He/ga Óskarsdóttir: FAXI GEYMIR VALIÐ EFNI IAGÆTUM FRAGANGI Eftir að hafa lesið FAXA í gegnum árin, tel ég ástæðu til á tímamótum, þegar Faxafélagið er orðið hálfra alda gamalt svo og tímaritið FAXI 50 ára, að láta í ljós þakklæti til forráðamanna blaðsins fyrr og nú fyrir merki- legt framlag. Ég tel það virkilega þess virði að vera kaupandi að slíku blaði, sem hef- ur gildi. Blaðið geymir sögulegan fróðleik frá Suðumesjum ásamt mörgu öðru uppbyggilegu og forvitnilegu efni sem vert er að gefa gaum. Eflaust munu einhvetjir vera mér sammála um að sum tölublöð séu áhugaverðari en önn- ur, það fer eftir því hvað lesandinn er að leita eftir og hvaða kröfur hann gerir til ritaðs máls. Að fletta í gegnum gömul blöð FAXA og fram til dagsins í dag koma glögglega í ljós þær gífurlegu breytingar sem hafa orðið á kjörum og lífí fólks og um leið hvað tíðarandinn hefur breyst. FAXI er ágætis blað til að leita að heimildum í ritgerðarefni. Ég geta talað af eigin reynslu. Til þess að FAXI verði gott heimildablað fyrir Suðumesin verður ritnefndarfólk að vera vel vakandi nú sem áður fyrr. Ein af þeim stórkostlegu breytingum sem hafa orðið á Suðumesjum á síðari árum er tilkoma Fjölbrautaskóla Suðumesja. Innan veggja hans fer fram áhugaverður fróðleikur. Oft hef ég hugsað um hversu spennandi væri að birta einstakar ritgerðir nemenda en ég er sannfærð um að ýmislegt efni frá þessu unga skólafólki af Suðumesjum ætti virkilega erindi í FAXA. Ég tel ástæðu til að vekja athygli á þessum möguleika. Alltaf er eitthvað nýtt að gerast frá ári til árs. Ég sé FAXA fyrir mér með svipuðu sniði og verið hefur, vil leggja sérstaklega áherslu á góð tengsl við skólana, atvinnulífið, huga að tómstundum fólks. Þá hef ég í huga bæði þá sem yngri eru og eldri. Listsköpun hvers konar, t.d. tónlist, ljóðlist, mynd- list og byggingalist. Þá má nefna viðtöl við eldri borgara, margur maður- inn býr yfir dýrmætri reynslu og um leið fróðleik sem bagalegt er að glat- ist. Einnig er náttúm- og umhverfisvernd mjög áhugaverð efni í okkar ágæta blað FAXA svo sitthvað sé nefnt. Ágætu Faxafélagar, þakka samfylgdina gegnum árin og óska ykkur góðs gengis. Með vinsemd, Helga Óskarsdó KEFLAVÍK Gæsluvellir Gæsluvellir Keflavíkurbæjar við Mið- tún, Ásabraut og Heiðarból verða opnir á tímabilinu 2. maí til 15. sept- ember kl. 9-12 og 13-17 alla virka daga nema laugardaga. Börnum er heimilt að hafa með sér drykkjarföng, þó ekki gosdrykki. Félagsmálastofnun Keflavíkurbæjar 9Útivistasrtími barrta Samkvæmt lögum um útivistartíma barna á tímabilinu 1. maí til 1. september, er börnum 12 ára og yngri ekki leyfilegt að vera á almannafæri eftir kl. 22 nema í fylgd með fullorðnum. Sömuleiðis er börnum yngri en 15 ára óheimil útivist eftir kl. 23 nema í fylgd með fullorðnum eða á heimleið frá viðurkenndri æskulýðsstarfsemi. Félagsmálastofnun Keflavíkurbæjar 98 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.