Faxi

Árgangur

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 31

Faxi - 01.04.1991, Blaðsíða 31
ERU í KÖRFUBOLTA !!! Það er víst engum blöðum um það að fletta, að það eru liðin á Suðurnesjum sem eru best á Is- landi í dag. Og þetta á ekki að- eins við um meistaraflokk karla, því eins og meðfylgjandi skrá sýnir, þá urðu Suðurnesjalið meistarar í öllum flokkum utan þremur, og þar af fór aðeins einn út fyrir Reykjanesið. I dag eru nær fjörutíu ár frá því að íþróttafélag Keflavíkurflugvall- ar með þá Boga Þorsteinsson og Inga Gunnarsson í fararbroddi hóf að leika og keppa í körfu- bolta. Var þar vagga íþróttarinn- ar. Fljótlega varð mikill áhugi fyrir fþróttinni í Reykjavík og urðu Körfuknattleiksfélag Reykjavíkur, KR og ÍR stórveldi á árunum milli 1960 - 1980. Árið 1969 var stofnuð körfuboltadeild hjá UMFN og voru IKF félagar uppistaðan í henni. Hefur síðan verið þróttmikið starf í deildinni og margir sigrar unnist. Fyrsti meistaratitillinn í karlaflokki vannst síðan 1981 og hefur UMFN nær haft einkarétt á titlinum fram til ársins 1989. í Keflavík hóf íþróttafélag Keflavíkur formlega iðkun körfu- boltans árið 1971. Var frá upphafi og eftir því sem aðstaða hefur bátn- að í bænum verið lögð mikil áhersla á þjálfun hinna yngri flokka og hefur það bonð ríkulegan ávöxt. Hefur ekkert annað félag á landinu náð jafngóðum árangri, jafnt hjá stúlkum og drengjum, og IBK. Fé- •agið hefur átt Islandsmeistara í kvennaflokki þijú síðustu ár og ár- ið 1989 varð karlaflokkurinn meistari. I Grindavík hefur verið ágætur áhugi fyrir körfubolta allt frá árinu 1957, en við það, að nýtt og glæsi- legt íþróttahús var tekið í notkun árið 1985 má segja, að um spreng- ingu hafi verið að ræða. Fjölmargir flokkar frá Grindavík hafa náð góðum árangri og heimaleikir UMFG í úrvalsdeildinni eru þeir fjörugustu sem um getur. I Sandgerði hefur gengið einna verst að viðhalda áhuganum, en þó náði lið Reynis þeim ágæta árangri árið 1989-1990 að leika í úrvals- deildinni. Ekki tókst þeim að halda sæti sínu þar, en vonandi tekst þeim að glæða körfuboltann nýju lífi í framtíðinni. Af því sem hér hefur verið sagt má auðveldlega skilja, að í dag eru Suðumesin öflugasta körfubolta- svæði landsins. Verður nú lítillega vikið að lokaúrslitum vetrarins: * Urslitakeppnin í úrvalsdeild Aldrei hefur þessi keppni verið jafn skemmtilega og jafn spenn- andi. Eins og sagt var frá í síðasta blaði komust KR og ÍBK í úrslit úr B riðli og UMFN og UMFG úr A riðli. Viðureign UMFN og UMFG náði aldrei að verða verulega spennandi og vann UMFN tvo fyrstu leikina og voru þar með komnir í úrslit. ÍBK átti fyrsta leikinn heima gegn KR. KR var þá tiltölulega ný- lega búið að vinna IBK í bikarúr- slitaleiknum og áttu því heima- menn harma að hefna. Er skemmst frá því að segja, að aldrei komust þeir verulega í gang í leiknum og fór KR með sigur af hólmi, skor- uðu 84 stig móti 71 stigi ÍBK. Ann- ar leikurinn fór sfðan fram f Laug- ardalshöllinni. Var nú ekki um ann- að að ræða fyrir Keflvíkinga en að duga eða drepast. Þeir dugðu, þvf þrátt fyrir lélega byijun, þá gjör- sigruðu þeir með 92 stigum gegn 75. Þriðji leikurinn í Keflavík end- aði síðan með sigri ÍBK, 86 - 80. Voru þar með komin þau úrslit sem Suðumesjamenn höfðu dreymt um lengi: UMFN - ÍBK. Hafi undanúrslitin verið spenn- andi, þá urðu úrslitaleikimir ekki síðri. Mikill og almennur áhugi var um allt land fyrir úrslitunum og var bæði útvarpað og sjónvarpað frá flestum leikjunum. UMFN átti fyrst heimaleik og fór hann fram þriðjudaginn 2. aprfl. Fyrir fullu húsi léku þeir eins og sannir meist- arar og unnu stóran sigur. Skomðu þeir 96 stig á móti 59 stigum ÍBK. Staðan 1-0. Annar leikurinn fór fram í íþróttahúsinu í Keflavík og í stórkostlegum leik sigmðu heima- menn með 75 stigum á móti 73. Staðan 1-1. Á báðum þessum leikj- um vom húsin troðfull. Þriðji leik- urinn fór sfðan fram í Njarðvík og þá gerðist hið óvænta: ÍBK vann á heimavelli UMFN í fyrsta sinn í ís- landsmóti í nærri áratug. Stigin 82 gegn 78. Staðan 1-2. Hafi áhugi fyrir körfubolta verið mikill fram að þessu, þá óx hann um allan helming við þessi úrslit. Rúmum klukkutíma fyrir leik var hvert sæti skipað í íþróttahúsinu og skömmu síðar komu miðar á úti- hurðir, þar sem á stóð: UPPSELT. Vom þá tæplega 1500 áhorfendur komnir í húsið og út um allt land sat fólk eins og límt við sjónvarps- skjáinn. Hvað myndi nú gerast. Nú átti ÍBK tækifæri á að gera út um slaginn og hampa bikamum að leik loknum. En það fór á annan veg. Eftir mjög skemmtilegan leik stóðu þessi úrslit á töflunni: UMFN 91. IBK81. Staðan 2-2. Lokaleikurinn fór fram í Njarð- vík þann 11. april. Um miðjan dag voru allir miðar uppseldir. í Iþróttahúsi Keflavíkur var komið fyrir stóm sýningartjaldi og þar vom tæpir 600 áhorfendur sem fylgdust með leikum í beinni út- sendingu. Lifðu þeir sig svo inn í leikinn, að þeir vom að kalla hvatn- ingarorð til leikmanna og skamma dómara allan tímann. I leiknum sýndu bæði liðin frábæran körfu- bolta. Liðin léku stífar vamir og vom lykilmanna beggja liðanna í strangri gæslu. Njarðvíkingar áttu þá því láni að fagna, að ungur pilt- ur, Gunnar Örlygsson, átti stjömu- leik og var frammistaða hans sennilega það sem úrslitum réði. Leiknum lauk sem sagt með sigri Njarðvíkinga sem skomðu 84 stig gegn 75 stigum ÍBK. Lokastaðan UMFN 3, ÍBK 2. Faxi óskar sigurveguranum til hamingju með sigurinn og einnig ÍBK með sína góðu frammistöðu. Þessar vikur sem úrslitakeppnin stóð yfir munu lengi standa mönn- um ljóslifandi fyrir sjónum. Þá er ekki úr vegi að nefna alla þá er við sögu komu við þessa miklu körfu- boltaveislu. Starfsfólk íþróttahús- anna á miklar þakkir skildar fyrir mikið starf, svo og forsvarsmenn félaganna og allt það fólk sem stuðlaði að framgangi mála. Starfs- fólk Qölmiðla átti líka sinn þátt í að gera stóran hluta þjóðarinnar virka þátttakendur og síðast en ekki síst ber að nefna hina dyggu áhorfend- ur sem í raun leggja hvað þyngst lóð á vogaskálar körfuboltans. Veturinn að öðru leiti Eins og áður sagði, þá áttu Suð- umesjaliðin góðu gengi að fagna í vetur. FAXI 99

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.