Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 2
5. TÖLUBLAD - 51. ÁRGANGUR
Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík.
Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 92-11114.
Blaðstjórn: Helgi Hólm ritstjóri,
Kristján A. Jónsson aðstoðarritstjóri,
Birgir Guðnason, Vilhjálmur Þórhallsson
og Hjálmar Stefánsson.
Hönnun, setning og umbrot:
Leturval sf.
Filmu- og plötugerð:
Litróf hf.
Prentun:
Prentstofa G: Benediktssonar
Meðal eínis
Vinsælasta
útivistarsvœði
Keflavíkur
Rányrkja þá! Hvað
nú?
Dóra
Þœttir af Suðurnesjum
Vinabœjamót í golfi
Fjarlægjum grjótgarð-
ana við Flugstöðina.
Syrirmyndar
Við þekkjum öll mismunandi tíðaranda.
Við þekkjum tískusveiflur, sem koma og fara, og ýmis fyrirbrigði í listum, bókmennt-
um, klæðnaði og byggingum, og þannig mætti lengi telja.
Eitt af þessum fyrirbrigðum eru grjótgarðamir við Flugstöðina.
Hvemig gat mönnum dottið í hug að eyða milljóna tugum í grjótgarða við þessa bygg-
ingu?
A leiðinni til Reykjavíkur sjá ferðamenn eiginlega ekkert annað en hraungrjót og mosa
fyrir utan fjallasýnina. Það var því sfst þörf á meira grjóti eða að auka á hrjóstugleika
landsins með því að hrúga upp forljótum grjótgörðum umhverfis bygginguna.
Reynsla af görðunum undanfarin ár leiðir í ljós að garðamir safna snjó í skafla um-
hverfis Flugstöðina. Miklum erfiðleikum er háð að hreinsa snjó af svæðinu vegna garð-
anna, og þeir gera allar samgöngur á svæðinu erfiðari að vetrarlagi.
Forseti okkar hefst annað að.
Á ferðum sínum um landið er það eitt af hennar föstu verkum að planta trjám og ræða
um gróður landsins. Að græða landið skógi. Eðlilegra hefði verið að leggja það fé sem
fór í þessa grjótgarða í aukna grasrækt í nágrenni Flugstöðvarinnar, og svo í trjárækt
meðfram vegum og í næsta nágrenni.
En skaðinn er skeður en það þarf nauðsynlega að losna við þennan „uppmokstur“.
Spumingin í dag er því sú? Vantar ekki einhvem grjót í hafnargarð eða uppfyllingu.
Þannig að á ódýran hátt sé hægt að losna við þennan ófögnuð?
Síðasta erindið í kvæði Steins Steinarr um Hallgrímskirkju á hér vel við.
Híbýli á Suðurnesjum
fyrr á tíð
Húsameistari ríkisins
tók handfylli sína af leir
og Hallgrímur sálugi Pétursson
kom til hans og sagði
Húsameistari ríkisins
Ekki meir ekki meir.
Gunnar Sveinsson
138 FAXI