Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 3

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 3
Ferðamálasamtök Suðumesja vom stofnuð 1984. Síðan þá hefur mikið vatn til sjávar mnnið. Ferð- amálasamtökin hafa séð margvís- lega þróun renna upp og nú er meiningin að taka málin föstum tökum. Tvær ágætis kannanir hafa verið gerðar á stöðu ferðaþjónustu á Suðumesjum. Sú síðari á síðast- liðnu ári. I framhaldi af umræðu innan ferðamálasamtakanna og á vettvangi sveitarstjómarmála var ákveðið að stefna á ráðningu starfs- manns til að vinna að þessum mál- um á Suðumesjum. Með fyrstu verkefnum Ferð- amálasamtakanna í sumar var að undirbúa móttöku ferðafólks sem hér kynni að verja einhveijum dög- um. Var það gert með t.d. að vinna að vali á tjaldstæði fyrir Keflavík og Njarðvík með ferðamálanefnd- um staðanna. Er það mikið ánægju- efni fyrir samtökin hvað góður ár- angur fékkst af samstarfi með nefndunum og væntum við mikils af sameiginlegum vettvangi þess- ara nefnda. Jafnframt vom famar vettvangsferðir um Suðumes og kannaðir ferðamannastaðir og um- hverfí. Ljóst er að víða þarf að hyggja að umhverfismálum. Gömul bílhræ og vélahlutir liggja út um víðan völl. Er þar gamli vegurinn milli Hafna og Reykjaness skýrt dæmi um hug- myndaflug manna um hvemig eigi að „týna“ gömlum bílum. Hér er þörf átaks í hreinsunarmálum. Ekki eingöngu á þessum vegi heldur má nefna önnur svæði eins og undir Reykjanes tá, við Stóm-Sandvík, umhverfi athafnasvæða, sem þó hefur stór lagast, svo eitthvað sé nefnt. Þá má minnast á vegagerð nokkmm orðum en varla er hægt að segja að vel fært sé um Reykja- nes. Ef einhver ferðalög eiga að eiga sér stað þá þarf að bæta nokk- uð úr og á ég þá sérstaklega við slóðina frá Höfnum að Reykjane- svita og þaðan langleiðina til Grindavíkur. Sama vandamálið er frá Grindavik austur til Þorláks- hafnar. Víst er að ef þessum vegum væri haldið í viðunandi ástandi væri auðveldara að bjóða ferð- afólki að heimsækja okkur og njóta góðrar útiveru og ferðalaga í fjöl- breyttu og fallegu umhverfi. Ferðamálasamtök Suðumesja sækja nú fram til átaks í góðri ferðaþjónustu á Suðumesjum. Betri meðvitan ferðamanna um fjölbreytni í landslagi og góðri kynningu á ferðamöguleikum um svæðið. Skiptir þar einu um hvort ferðast er um í hópferðum eða á eigin vegum. Á bflaleigubíl eða hjólandi. í langferðabfl eða fót- gangandi. Fyrir hendi em nú nokk- ur fjöldi tjaldstæða. Góð nýting hefur verið á þeim bæði í Grinda- vík og í Njarðvík. Svefnpokapláss var opið í Njarðvík í sumar og gef- ur aðsóknin þar ástæðu til að ætla að nýting geti orðið betri og ömgg- ari næsta sumar. Vekja þarf athygli þeirra aðila innlendra sem erlendra. er skipu- leggja ferðir um landið, á þeim val- kostum sem hér em boðnir í ferða- þjónustu. Við þurfum að vera reiðubúnir að veita þá þjónustu sem nauðsyn- leg er fyrir það ferðafólk sem hing- að vill koma. Þjónusta þarf að vera til reiðu alla daga vikunnar hvort um er að ræða verslun eða aðra þjónustu svo sem bifreiðaþjónustu. Enn er það víða svo að á mörgum frídögum er lokað og almenn ferðaþjónusta ekki í böði þegar ætla má að ferðafólk þurfi á þjón- ustu að halda. Ferðamálasamtökin stóðu fyrir rekstri á upplýsingamiðstöð í Leifsstöð í sumar. Árangur af því framtaki gefur ríka ástæðu til að stefna að slíkum rekstri á næsta ári. í fyrsta lagi er það sérstakt að ferð- afólk sem kemur til landsins fá ekki fyrstu upplýsingar við komu til landsins. Engin aðstoð hefur verið skipulögð við ferðamenn sem heimsækja landið í Leifsstöð fram að þessu. Sá fjöldi aðila sem sóttu upplýsingar og fengu aðstoð frá upplýsingamiðstöðinni segir okkur svo ekki sé um að villast, að nauð- synlegt er að halda þessum rekstri áfram. Upplýsingamiðstöð verður rekin í Umferðamiðstöð SBK að Hafnar- götu 12 í Keflavík, þegar hún opn- ar í haust og verður opin allt árið. Ferðamálasamtök Suðumesja eru opin samtök þeirra sem starfa að ferðaþjónustu og annarra sem áhuga hafa á framgangi hennar. Víst er að hér eru miklir möguleik- ar fyrir hendi og vænta má að hér sé um helsta vaxtarbrodd í íslensku atvinnulífi að ræða. Ferðamála- samtökin vilja hvetja áhugasama um að hafa samband ef þeir vilja koma ábendingum og góðum hug- myndum á framfæri. Það er von okkar að með sam- stilltu árataki megi ná góðum ár- angri í að auka verulega þann fjölda ferðamanna, innlendra sem erlendra sem heimsækja Suður- nes. Keflavík 10. september 1991 Jóhann D. Jónsson Ferðaþjónasta ó Suðumesjum vægur þáttur í starfinu. Hér sést for- síða bæklings um Suðurncsjasvæðið. FAXI 139

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.