Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 4

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 4
Laugardaginn 14. september s.l. afhenti verktakafyrirtækið Húsanes nýbygginguna á homi Kirkjuvegs og Tjamagötu. Við það tækifæri vom samankomnir væntanlegir íbúar hússins ásamt fjölda gesta. Fór fram stutt og Iátlaus athöfn þar sem Ólafur Bjömsson rakti þá sögu er þessu húsi tilheyrir. íbúum húss- ins bámst við þetta tækifæri góðar gjafir, m.a. gaf Sparisjóðurinn í Keflavík mjög gott sjónvarp til að hafa í sal á efstu hæð, er íbúamir hafa til sameiginlegra nota. Eign- amilun Suðumesja gaf málverk og Keflavíkurbær fallega blómakörfu. Þá gaf Húsanes málverk af húsinu sem máluð er af listakonunni Erlu Sigurbergsdóttur. En við skulum nú gefa Ólafi Bjömssyni orðið: Ágæta samkoma! Byggingamenn, væntanlegt sambýlisfólk og góðir gestir. Mér er það sönn ánægja að taka á móti þessu glæsilega húsi fyrir hönd félags okkar og þó fyrst og fremst fyrir hönd okkar sem hér ætlum að búa. Bygging þessa húss markar nokkur tímamót f byggingamálum aldraðra hér um slóðir. Þau hús sem áður hafa risið hér í þessum til- gangi hafa verið byggð að frum- kvæði þess opinbera og mikilli fyr- irgreiðslu þess. Hér hefur slíkt ekki komið til. Fmmkvæðið að byggingu þessa húss áttu Húsanesmenn. Þeir ásamt Eignamiðlun Suðumesja boðuðu eldri borgbara til fundar á Glóðinni þann 3. júlí 1989 til að kynna mál- ið. Húsfyllir var á fundinum. Páll Bjamason arkitekt kynnti fmm- teikningar af húsinu og fulltrúi frá Húsnæðisstofnun ríkisins kynnti lög og reglur um Byggingasam- vinnufélög aldraðra. Sérstaklega ræddi hann að slík félög ættu rétt á að fá framkvæmdalán til þess að byggja fyrir þá sem ættu eignir sem dygðu að miklu eða öllu leyti til kaupa á íbúðum í svona húsum, meðan þau em í býggingu. Fundarmenn virtust almennt hrifnir af þessum hugmyndum og í framhaldi af þessum fundi var boð- að til stofnfundar Byggingasam- vinnufélags aldraðra á Suðumesj- um, þann 27. júlí. Þar mættu 54 og gerðust flestir stofnfélagar. Kosin var stjóm fyrir félagið og í hana kjömir: Eggert Jónsson, Guðbergur Ingólfsson, Hermann Helgason og sá sem hér talar og stjómin valdi formann. Byija varð á að gera samþykktir fyrir félagið. Þrátt fyrir að fyrir- mynd að þeim væri fengin hjá Hús- næðisstofnuninni reyndist það ekki passa ráðuneytinu. Eftir sendingar fram og til baka vom samþykktirn- ar loksins staðfestir af félagsmál- aráðuneytinu, þann 8. nóvember. Ólafur Björnsson, formaður Bygg- ingasamvinnufélags aldraðra, á rek- ur byggingasögu Hornbjargsins. Strax eftir stofnun félagsins var sótt um framkvæmdalán til þess að byggja 26 íbúðir. Lokið var við teikningar af húsi í samræmi yið kröfur Tæknideildar Húsnæðis- stofnunar um byggingar fyrir aldr- aða. í viðtölum var búið að taka mjög jákvætt í að við fengjum fram- kvæmdalán. Bæjarráð Keflavíkur samþykkti að fella niður hluta af gjöldum við bygginguna, alls að upphæð kr. 3,3 milljónir, vegna kaupa á húseign- unum við Kirkjuveg 1 og Tjarnar- götu 18. Það dróst að svör fengjust um framkvæmdalánið frá Húsnæðis- stofnun. Fljótlega eftir að ég tók að mér formennsku í þessu félagi fór ég á fund vinar míns, Ásgeirs Jóh- annessonar, formanns og aðal- skipuleggjanda Sunnuhlíðarsam- takanna í Kópavogi. Þau samtök hafa unnið merkt brautryðjenda- starf. Ásgeir sagði strax að ég skyldi ekki mikið treysta Húsnæð- isstjóm. Hans reynsla væri sú að það væri aðeins tímasóun að eltast við þá skriffinna. Upp úr áramótum var ég kominn á sömu skoðun og hann um það. Ég fór því á fund Ásgeirs og fékk hjá honum allar upplýsingar um t t 140 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.