Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 5
samninga Sunnuhlíðarsamtakanna
við Búnaðarbankann í Kópavogi
um framkvæmdalán til bygginga á
vegum Sunnuhlíðarsamtakanna,
sem hann hafði áður sagt mér laus-
lega frá. Það fyrirkomulag er ein-
stakt hér á landi og þótt víðar væri
leitað. Með þá samninga að fyrir-
mynd fórum við svo til forráða-
manna Sparisjóðsins í Keflavík og
spurðum hvort til greina kæmi að
fá hliðstæða fyrirgreiðslu hjá
þeim. Þeir tóku málaleitan okkar
strax með miklum áhuga. Sögðu
eldri borgara sína bestu viðskipta-
menn og þeim vildu þeir þjóna sem
best. Þeir létu Elías Jóhannsson
strax fara í að kynna sér málið.
í byrjun mars fengum við svar
um að þeir væru reiðubúnir til þess
að veita okkur svipaða þjónustu.
Við það hafa þeir staðið og vel
það. Þeir buðu einnig upp á fjár-
hagsráðgjöf fyrir væntanlega kaup-
endur.
10. mars héldum við fund. Þar
var samþykkt að ganga til samn-
inga við Sparisjóðinn um fram-
kvæmdalán til byggingarinnar.
Ennfremur að ganga til samninga
við Húsanes hf. um framkvæmdir
og Eignamiðlun Suðumesja um að
sjá um upplýsingar og sölumál.
16. mars voru svo undirritaðir
samningar við Sparisjóðinn um
framkvæmdalán og fjármálaráð-
gjöf við væntanlega kaupendur.
Að því loknu voru samningar við
Húsanes hf. um að byggja húsið
undirritaðir. Síðan var haldið hing-
að á lóðina og fyrsta skóflustungan
tekin.
3. júlí 1991, afgreiddi húsnæðis-
stofnun umsókn okkar á þann veg
að ekki væri til fé til þess að lána
okkur. Samkvæmt kerfinu ættum
við ekki að vera byijuð að byggja
Húsanes-menn hafa borið hitann
og þungann af framkvæmdum hér.
En að sjálfsögðu hafa margir fleiri
lagt hönd á plóginn eins og Halldór
lýsti hér áðan. Eg ætla ekki að end-
urtaka þá upptalningu.
Fyrir hönd okkar allra, leyft ég
mér að flytja öllum sem lagt hafa
hug eða hönd að því að reisa þessa
byggingu, alúðarþakkir fyrir vel
unnin störf og ánægjuleg samskipti
í einu og öllu. Einnig vil ég færa
Sigurði Ragnarssyni bestu þakkir
fyrir hans störf. Þessum sal átti að
skila óinnréttuðum, en Húsanes-
menn ákváðu að skila honum
innréttuðum og Ingólfur Bárðarson
lagði til raflögn og ljósastæði. Við
þökkum innilega þennan höfðings-
skap þeirra.
En ekkert af þessu hefði gengið
upp ef við hefðum ekki notið fráb-
ærrar fyrirgreiðslu Sparisjóðsins,
sem veitt hefur verið eins og hún
væri sjálfsagður hlutur í stóru sem
smáu. Þar hefur engin orð þurft um
að hafa. Og þeir ætla að halda áfr-
am. Þegar hafa þeir stuðlað ræki-
lega að næstu byggingu af þessu
tagi. Gamla Sparisjóðshúsið verður
aðaluppistaðan. Það höfum við
fengið hjá þeim á vildarkjörum og
sömu fyrirgreiðslu hafa þeir heitið
við þá byggingu og veitt hefur ver-
ið til þessa.
Við höfum sannreynt að Spari-
sjóðurinn sér um sína.
Eg ítreka þakkir til ykkar allra,
verkamanna til bankastjóra, sem
þátt hafið átt í að þetta glæsilega
hús er nú risið og fullbúið úti sem
inni. Að lokum þakka ég Ásgeiri
Jóhannessyni fyrir hans ómetan-
legu leiðsögn.
Ég óska öllum langra og ljúfra
lífdaga hér í Hombjargi.
enn í dag. Við hljótum því að end-
urskoða samþykktir félags okkar
og sníða þær að raunveruleikanum
við fyrstu hentugleika.
Um síðustu áramót réði stjómin
Sturlaug Ólafsson til þess að vera
eftirlitsmaður með byggingunni.
Væntanlegum kaupendum gekk
hægt að ákveða sig og það var ekki
fyrr en 19. janúar í ár, að okkur
þótti tímabært að kalla saman fund
kaupenda til þess að kjósa bygg-
ingamefnd úr sínum hópi. í hana
völdust Hermann Helgason og Sig-
urður Halldórsson ásamt mér. Á
þessum fundi var einnig samþykkt
að kaupa og setja upp ýmsan auk-
abúnað, s.s. skermi til gervihnatt-
amóttöku, forhitara fyrir miðstöðv-
arkerfið o.fl.
Byggingarsöguna ætla ég ekki
að rekja hér. Flest okkar hafa átt
þess kost að fylgjast með henni og
gert það því meira sem á hefur lið-
ið. Allt hefur gengið snurðulaust
fram á þennan dag. Réttum 18
mánuðum eftir að skóflustungan
var tekin, er húsinu og öllu um-
hvefi skilað með þeim glæsibrag
sem okkur gefst nú á að líta. Það
eina sem ekki er komið eru neyðar-
hnappamir sem koma í næsta mán-
uði.
Það er engin tilviljun að almenn-
ingur fór að kalla húsið Hombjarg.
Hombjarg er tignarlegt og það er
þetta hús líka. Við ákváðum að
taka þessari góðu tillögu og sam-
þykktum að Hombjarg skyldi húsið
heita.
A myndinni ma sjá m.a. Drífu Sigfúsdóttur, forseta
bæjarstjómar, fulltrúa Sparísjóðsins og Húsaness-
menn ásamt nokkrum íbúum hússins.
Húsanes afhenti íbúum Hombjargs málverk að ;
eftir listakonuna Erlu Sigurbergsdóttur. Hér hengir [
Margeir Þorgeirsson myndina upp í anddyri hússins.
FAXI 141