Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 6
Eftirfarandi ritgerð
skrifaði Skúli Magnús-
son í íslands- og Norð-
urlandasögu, á haust-
misseri 1990,
í Háskóla íslands.
Fjallaði námskeiðið um
tímabilið 1550-1830.
Kennarinn, dr. Gísli
Gunnarsson, sagði m.a. í
umsögn sinni um rit-
gerðina:
„Mjög svo óvenjuleg
ritgerð! Ber vitni mik-
illar vinnu, vel unnið
úr heimildum og sann-
arlega er heimildanotk-
un viðamikil
Skúli Magnússon:
HÍBÝLI Á
SUÐURNESJUM
FYRR A TID
Hér á eftir mun verða brugðið nokkru Ijósi á híbýli Suðurnesjamanna á 18.
og 19. öld, eftir því sem aðgengilegar heimildir leyfa. Reynt hefur verið að
leita í gögn samtímamanna og sjónarvotta, stuðst við lýsingar þeirra. Heim-
ildimar mega þvíyfirleitt teljast trúverðugar. Að vísu rituðu þrfr sögumenn
frásagnir sínar á gamals aldri en ekki er þó ástœða til að rengja þœr að svo
komnu.
Þessir menn voru: Finnur Jónsson frá Kjörseyri (1842-1924), Kristleifur
Þorsteinsson frá Stóra-Kroppi (1861-1952) og Agúst Guðmundsson frá Hala-
koti (f. 1869, álífi 1941).
Sjálfri ritgerðinni er skipt í tvo megin þætti. Sá fyrrifjallar nokkuð um toif-
bœi og þurrabúðir á 18. öld. Síðari hlutinn segir einkum frá upphafi timb-
urhúsa og lítillega er minnst á steinhús á 19. öld. Kirkjum er sleppt. Ein-
göngu verðurfjallað um híbýli til fbiiðar.
Heimildir og tilvísanir eru samrœmdar í skrá aftan við ritgerðina.
Keflavík á árunum 1877-1881. Myndina tók Sigfús Eymundsson á s.n. Háa-Bergi ofan við Grófina. Húsin eru talin f.v.: Verslunarhús Knudtzons: Það var rifið 1888
og hafði þá staðið mjög lengi. líklega í ein 80 ár. Sama ár var Ungó byggt á sömu slóðum, þó örlítið norðar og ofar. Verslunarhús Fischers: Fischer hóf þarna verslun
1876. Miðpakkhúsið fylgdi með í kaupunum, reist 1871. Búðin er hægra megin við það. lágt hús. gamalt. trúlega reist snemma á 19. öld. Rifið 1881 og örlítið norðar. í
sömu línu, var sama ár reist tvflyft hús, sem nú hýsir skrifstofur Keflavíkur hf. Þegar Hafnargatan var malbikuð 1971 var Miðpakkhúsið rifið. Borðin í þaki þess báru þess
glögg merki að vera úr eldra húsi. Verslunarhús Duus: Stóra húsið á miðri mynd er Bryggjuhúsið. Reist 1877. Það stendur enn. Bak við það sér m.a. í Gömlu Duss-búð,
sem reist var 1871. Húsið þar fyrir utan, með fjórum hítum gluggum, var s.k. Brugghús, e.t.v. reist 1870-77. þar var m.a. bryggað öl fyrir kaupmannsheimilið. Húsin hjá
Duus eru augljóslega yngri en hjá hinum kaupmönnunum. Myndin sýnig glöggt að Bryggjuhúsið var þá eina (og fyrsta) tvflyfta húsið í Keflavík. Stærri var timburhúsa-
byggðin ekki ef frá eru talin láreist hús á Náströnd sem ekki sjást. Viðir Bryggjuhússins bera þess enn merki að vera úr eldra húsi eða húsum. Líklega úr húsum frá einok-
unartíma. fyrir 1787, eða húsum sem reist voru snemma á 19. öld. Þau stóðu á sömu slóðum og Bryggjuhúsið.
142 FAXI