Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 11

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 11
Enn er að ráði fiskifræðinga stórlega niðurskorið aflamark helstu nytjafiska við kvótaúthlut- un vegna næsta fiskveiðiárs, sem nú telst hefjast 1. september. Um fátt er að sjálfsögðu meira rætt og ritað en það sem upp er komið þrátt fyrir eða vegna þeirr- ar fiskveiðistefnu, sem við lýði hefur verið að stærstum hluta ób- reytt frá 1984, þegar fyrst var upp tekið kvótakerfi hér. Að sjálfsögðu þarf tæpast að draga í efa að valdhöfum og öðr- um forystumönnum í sjávarút- vegi hafi gengið gott eitt til og þjóðamauðsyn að stemma stigu við rányrkju á fiskimiðunum við strendur landsins og á landgrunn- inu. Hefðu aðgerðimar 1984 og síð- an verið rétt grundaðar hefði tæp- ast þurft að grípa til þess nú enn einu sinni að minnka leyfilegt ár- saflamark. Kjami málsins hlýtur því að vera sá, að þrátt fyrir björt fyrirheit og góðan ásetning hefur meginmarkmiðinu með veiðistýr- ingu undanfarin ár ekki verið náð miklu fremur en hitt að ástand sjávar sé óhagstætt uppbyggingu nytjastofnanna nú um árabil. I þessi samhengi er ekki úr vegi að minnast höfuðraka okkar fyrir óskomðum yfirráðarétti okkar yf- ir 200 mílna fiskveiðilögsögu við landið. - Nei það em svo sannar- lega ekki útlendir síðutogarar með „hlægilega" litla toggetu og lítilmótleg troll miðað við það sem nú tíðkast sem rányrkja mið okkar nú. - En hugsast gæti að skipa gæti verið helst um að hinum síafkastameiri íslenska kennar. skuttogaraflota og annarra tog- Þessu líkt ætti maður samt síst Þcir voru að greiða niður þorskanetin (steina niður, hét það að vísu áður en blýt- einninn kom til sögu) strákamir á Hafborgu KR-12, þcgar myndasmiðinn bar að við Keflavíkurhöfn á blíðviðrismorgni í byrjun september. Aðspurðir sögðust þeir hafa verið með rækjutroll í sumar og veiðin hefði verið góð einkum fyrir hluta sumrs. - Könnun rækjustofnsins þar leiddi reyndar til að kvóti var að ráði fiskifærðinga aukinn miðað við fyrri ákvörðun. Netavciðin lagðist svona þokka- lega í þá. Bátar í þeirra stærðarflokki hefðu verið að fá upp í þrjú tonn eftir nótt- ina en stærri netabátarnir fiskuðu vel á djúpmiðum suð-vestur af Eldey. af öllu að láta sér til hugar koma því að togskip taka ár frá ári hærra hlutfall til sín af því sem til skipta kemur. Samkvæmt því hlýtur að mega álíta að það sé ráðamönnum að skapi. Ef fram haldur sem horfir er ekki sýnna en hratt stefni í að þorskveiðar smærri og lítilla báta heyri brátt sögunni til ef fram heldur sem horfir með veiðiheim- ildir - og kvótafyrirkomulag það sem nú rikir. Einstaka málsmetandi menn hafa lagt því lið á prenti að nauð- synlegt sé að friða mun stærri hryggningar- og uppeldisstöðvar en nú er gert, en svo virðist sem þeir tali fyrir sljóum eyrum. Aðrir fullyrða beinlínis að auð- velt sé að rækta upp stórum stærri nytjastofna en nú eru á ísland- smiðum, sé rétt að verki staðið. Vonandi að svo sé og óskandi að heilbrigð skynsemi fái að ráða ferðinni í sjávarútvegi lands- manna á komandi tíð. Getur það hugsanlega verið að á skorti að fyrir liggi sæmilega haldbær úttekt á þeirri breytingu sem orðin er á „veiðimunstrum“ og afkastagetu flotans frá því t.d. að við öðluðumst full yfirráð yfir 200 mfina fiskveiðilögsögunni. Hafi þá verið um stórfellda rán- yrkju á íslandsmiðum að ræða eins og rök voru þá færð að hvert væri þá réttnefnið yfir þau ósköp, sem á miðunum eiga sér stað nú? Spyr sá sem ekki veit. K.AJ. BYGGT VIÐ GERÐASKÓLA Föstudaginn 6. sept. s.l. var tekin í notkun fyrsti áfangi í viðbyggingu við Gerðaskóla, en gert er ráð fyrir að öll viðbyggingin verði um 1247 fermetrar. Bygging þessa áfanga hófst árið 1989 og hefur henni mið- að vel áfram. Hér er um að ræða alls um 500 fermetra byggingu og í henni eru tvær almennar kennslu- stofur, ein stofa fyrir raungreinar, ein sérkennslustofa og kennslueld- hús. Auk þessa er síðan góð að- staða fyrir nemendur, húsvörð og ræstingafólk. Hönnuðir húsnæðisins eru arki- tektamir Valdimar Harðarson, Ámi Friðriksson og Páll Gunnlaugsson. Handbragð þeirra er vandað og þar er bryddað á nokkmm nýjungum. Sérstaklega er athyglisvert að sjá, hvernig hið almenna kennslurými er aukið með svonefndu hópher- bergi sem er á milli kennslustof- anna. Þá er sömuleiðis góð náms- gagnageymsla við kennslustofurn- ar. Það er og hátt til lofts í stofun- um sem gerir þær bjartar og hlýleg- ar. Verktakar við bygginguna hafa verið sem hér segir: 1. áfangi, sökkull Bragi Guðmundsson. 2. áfangi, gera fokhelt Pálmi Einarsson. 3. áfangi, ljúka við bygginguna Sigurður Ingvarsson. Er ekki annað að sjá en að bygg- ingin sé vönduð og frágangur góð- ur og góð samvinna ríkti milli verktaka og hönnuða. Gerðahreppur bauð íbúum til kaffisamsætis þegar húsið var tekið í notkun og var mikill fjöldi við- staddur athöfnina. Meðal gesta var menntamálaráðherra, Ólafur G. Einarsson. Faxi vill hér með óska íbúum Gerðahrepps til hamingju með þennan áfanga og nemendum og kennurum góðs árangurs í starfi. HH. Gestir þiggja veitingar að vígslu lokinni. FAXI 147

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.