Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 13

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 13
DOKTOR í SÁLARFRÆÐI Ungur Keflvíkingur, Guðfinna Sesselja Bjamadóttir, varði dokt- orsritgerð sína í sálarfræði við háskólann í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum 10. maí s.l. Ritgerðin ber heitið „Gerð kennsluefnis til endurskipulagn- ingar á vinnuaðferðum." (Pro- gramming training materials for work redesing problem solving). I fréttatilkynningu háskólans um doktorsvömina segir m.a.: „Guð- finna hannaði í samvinnu við dr. Jack Byrd, prófessor í verkfræði, kennsluaðferð og kennsluefni til nota við úrbætur á vinnuaðferðum og til endurskipulagningar á vinnu- stöðum. í doktorsritgerðinni greinir Guð- finna frá rannsókn sem hún gerði á gæðum kennsluefnisins. Niður- stöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að ofangreind kennsluaðferð var árangursríkari en aðrar aðferðir við að endurskipuleggja og bæta vinnuaðferðir. Alhæfingargildi kennsluefnisins reyndist gott, þar sem með notkun þess er unnt að hanna nýjar hagnýtar vinnuaðferð- ir, frábrugðnar þeim sem komu fyr- ir í kennsluefninu." Dr. Guðfinna er fædd í Keflavík 27. okt. 1957. Hún lauk stúd- entsprófi frá Kennaraháskóla Is- lands 1977. Síðan kenndi hún við Myllubakkaskóla í Keflavík 1978-82 og einnig síðar samhliða sálfræðinámi við Háskóla íslands en þaðan útskrifaðist hún með BA- próf 1986. Þá um haustið hélt hún svo til framhaldsnáms í Bandaríkj- unum. Dr. Guðfinna er elst fimm bama hjónanna Hólmfríðar Jónsdóttur og Bjarna Guðmundssonar rafvirkja- meistara í Keflavík. Eiginmaður hennar er Vilhjálmur Kristjánsson, sem ljúka mun meistaranámi í op- inberri stjómsýslu (public admin- istration) við háskólann í Vestur- Virginíu haustið 1992. Einkadóttir hjónanna er Hólmfríður, 14 ára gömul. í tilefni doktorsvamarinnar höfð- um við hjá FAXA símasamband við dr. Guðfinnu fyrir stuttu. Þar kom m.a. fram að hún stundar nú frekari rannsóknir við verkfræði- deild háskólans í Vestur-Virginíu. Einnig lét hún þess getið að heimþráin segði áberandi til sín og fjölskyldan hyggst koma heim í jólaleyfi í vetur. Síðan er það eindregið á döfinni að flytja heint svo fljótt er verða má eftir að húsbóndinn útskrifast úr sínu námi eftir unt það bil ár. FAXI endurtekur heillaóskir sín- ar til dr. Guðfinnu um leið og flutt- ar em kveðjur hennar til ættingja og vina. Ný þjónusta hjá Sparisjóðnum í Keflavík Liðveisla heitir ný þjónusta sem Sparisjóðurinn í Keflavík er að fara af stað með um þessar mundir og er hún sérstaklega ætluð námsmönnum. Sparisjóð- urinn vill með þessu móti tengjast betur ungu náms- fólki og veita því á ýmsan hátt fjárhagslega lið- veislu. Námsmenn geta gerst þátttakendur í Lið- veislu við 16 ára aldur. Á hverju ári leggur mikill fjöldi ungs fólks út á braut langskólanáms, bæði við Háskóla íslands og aðrar æðri menntastofnanir hér á landi, svo og til framhaldsnáms á erlendri gmnd. Þá bíður flestra mikið fjárhagslegt átak við að láta enda ná saman og því er mikilvægt að hafa traust og gott tak á fjármál- unum. Góð og ömgg bankaþjónusta er því mjög mikilvæg. Auk þess að veita nauðsynlega lánafyrirgreiðslu, þá sér sparisjóðurinn um yfirfærslur gegn lágmarks- gjaldi, veitir námsmönnum ráðgjöf og er tilbúinn til að aðstoða námsfólkið við að koma sér fyrir að námi loknu. Það sem ef til vill greinir Liðveislu Sparisjóðsins frá svipaðri þjónustu annarra við námsmenn er það, að árlega verða veittir nokkrir námsstyrkir til félaga í Liðveislu. Verður einn styrkurinn til handa nem- anda sern er að útskrifast frá Fljölbrautaskóla Suð- umesja. Þá verða veittir tveir styrkir til félaga í Lið- veislu sem em að ljúka framhaldsnámi á háskóla- eða tækniskólastigi. Þá fá félagar í Liðveislu 50 % afslátt á allar sýningar í Félagsbíói, ásamt því að fá boð á sérstaka úrvalsmynd einu sinni í mánuði. Það er Sæmundur Benediktsson, þjónustufulltrúi, sem hefur umsjón með þessari nýju þjónustu spari- sjóðsins. Með hinni nýju námsmannaþjónustu - Liðveislu - vill Sparisjóðurinn í Kefiavík m.a. ná til þeirra fjölmörgu sem stunda nám við Fjöibrautaskóla Suðurnesja. Ljósm. Heimir. Séra Ólafur Jónsson í ársleyfi Olafur Oddur Jónsson, sóknar- prestur Keflavíkursafnaðar, hefur fengið ársleyfi frá störfum. Hann hélt utan til Bandaríkjanna um mánaðamótin sept./okt. og mun stunda þar fram- haldsnám til ár- amóta. Síðan mun hann kenna við Háskóla íslands á vormisseri 1992. Séra Lárus Halldórsson, fyrr- verandi prestur í Breiðholtspresta- kalli í Reykjavík, hefur verið settur til að þjóna Kefla- víkurkirkju í leyfi sr. Ólafs Odds. Fjölskyldu- raðgjof a vegum kirkjunnar Eins og kunnugt er hefur sóknar- prestur Njarðvíkursafnaðar. séra Þorvaldur Karl Helgason, verið í leyfi að undan- fömu. Hann hefur í leyfinu verið að koma á laggimar samstarfsverkefni Kjalames-, Ámes- og Reykjavík- urprófastsdæma, „Fjölskylduráðgjöf kirkjunnar" með aðsetur í Reykjavík. Stofnunin á eins og nafnið bend- ir til að annast fjölskylduráðgjöf, ekki síst í hjúskaparvanda. í leyfi séra Þorvaldar Karls hafa Suðurnesjaprestar þjónað Njarðvík- ursöfnuðum. Núna framundir jól mun séra Jóna K. Þorvaldsdótt- ir, Grindavíkur- prestur, hafa þjón- ustuna á hendi. FAXI 149

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.