Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 18

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 18
l | .. í íÆF a- 'B f’í |-| - Æ-Æwm 1 /1Wf ' 1 i.*ntett. / • i ' j 'vTÆi 1:11 S8s~5?WÍCl Dagana 22. - 27. júlí 1991 var haldið í Keflavík vinabæjamót með þátttöku vinabæja Keflavíkur, þ.e. Hjörring, Kerava, Kristiansand og Trollhattan. Er þetta í fyrsta sinn sem golfið er á dagskrá vinabæja- móta, en Keflavík kom með tillögu um það fyrir nokkuð mörgum árum og tók það vissulega nokkur ár að vinna þeirri tillögu fylgi. íþróttaráð Keflavíkur skipaði á síðasta hausti þá Helga Hólm, Jón Ólaf Jónsson og Jón Jóhannsson í nefnd til að undirbúa og standa fyr- ir mótinu. Golfklúbbur Suðumesja tók að sér að sjá um framkvæmd sjálfrar golfkeppninnar og var það Unglinganefnd GS sem sá um alla þá framkvæmd af hálfu golfklúbbs- ins. Gestunum var búin gisting í Holtaskóla og þar sem bæði íþróttahús og sundlaug er þar við hendina, þá væsti ekki um þá þar. Einn stærsti þátturinn í móttöku á svo stórum hópi sem þessum er án efa fæði gestanna. Það var Veislu- þjónustan hf. sem sá um að tilreiða morgunmat í Holtaskóla og kvöld- mat flest kvöldin á Glóðinni, en Skúli Sigurðsson og Hlíf Matthfas- dóttir í veitingasölu golfskálans í Leiru sáu um hádegismat flesta daga. Stóðu þessir aðilar sig með mikilli prýði og kunnu gestimir greinilega vel að meta þann góða viðurgeming. Dagskrá mótsins var með nokk- uð hefðbundnu sniði, þó að eðli málsins samkvæmt hafi golfið ver- ið í fyrirrúmi. Samt tókst þó að koma fyrir á dagskránni ferðalagi um Reykjanes með viðkomu í Bláa lóninu, heimsókn fararstjóra á bæj- arskrifstofur Keflavíkur, skotferð til Reykjavíkur, púttkeppni við Púttklúbb Suðurnesja á Mánaflöt, svo eitthvað sé tilnefnt. GOLFKEPPNIN Sjálf golfkeppnin fór fram á Hólmsvelli dagana 25. og 26. júní. Unglinganefnd GS ásamt Kristjáni Einarssyni fundaði með þjálfurum allra liða og þar voru samþykktar þær keppnisreglur er gilda skyldu um mót þetta. Jafnframt vartilnefnt í mótsnefnd og var Hjörtur W. Kristjánsson kjörinn formaður hennar. Ekki fékk nefndin nein kærumál til úrlausnar á meðan mótið stóð yfir. Keppnin fór þannig fram, að leiknar voru 36 holur og keppt í sveitum stúlkna og pilta. Keppni varð spennandi og mjög skemmtileg. Létu gestirnir vel af vellinum sem þeim þótti vera opinn og skemmtilegur, enda flestir vanir þröngum skógarvöllum. Piltamir LIÐ KEFLAVÍKLR í VÍVIB I JIMÓ/IVÍ Karen Sævarsdóttir, Rakel Þorsteinsdóttir, Þóranna Jónsdóttir, Rut Þorsteinsdóttir og Erla Þorsteinsdóttir. Kjartan Kristjánsson, Guðmundur Sigurðsson, Rúnar Hallgrímsson, Helgi Þórissin, Kristinn Gunnarsson, Gunnlaugur Kárason. Davíð Jónsson, Stefán Guðjónsson, Öm Hjartarson, Steinar Stefánsson. Ungllnganefnd Golfklúbbs Suðurnesja: Hjörtur Kristjánsson, Þorsteinn Geirharðsson, Jóhann Gunnarsson. Framhald á bls. 160

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.