Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 20

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 20
Þættir af S uðume sj um ÁGÚST GUÐMUNDSSON - ENDURMINNINGAR En af því að ég hef verið við for- mennsku á milli 50 og 60 ár, lengi vel allt árið, og alltaf verið að reikna út, hvar fiskurinn væri mest- ur, þá hef ég dálitla reynslu fyrir, að mönnum gekk það misjafnt. En svo var það kölluð heppni, og þann samanburð læt ég liggja á milli hluta. En mér fannnst oft árvekni, útsjón og hyggjuvit ráða mestu og máske heppni hafi verið þar með í verki, svo að allt gekk vel. En til þess að heita góður for- maður þurfti og þarf mikla athygli og útsjón, en því miður eru þeir alltof fáir, sem hafa það. Þess vegna verða slysin svo mörg og aflinn misjafn. Það er ekki rlóg að vera lærður af sjómannaskólanum, heldur þarf að vera lærður líka út úr sjólífsskólan- um, - og það er mikill lærdómur. sem of margan vantar til fulls. Það yrði of langt mál að telja upp alla þá formenn, sem voru þama suðurfrá í vjðlegu. Þess vegna sleppi ég því og nefni aðeins örfáa, - og þá fyrst hann Ólaf í Bygggarði af Seltjamamesi. Hann íá við á Kristjánstanga lengi. Hann var mætur og merkur formaður. Það var hann, sem stjómaði því á þrettándakvöld 1884, að skipið, sem hann var á í hákarlaróðri, komst upp í Seltjöm áður en mesta óveðrið skall á, en öll skipin, sem voru þá í hákarlaróðri, fórust. - Þá lá hann Magnús í Hrafnabjörgum á Hvalfjarðarströnd við á Hólman- um. Hann var merkur maður, tröll- duglegur og fór á bátnum sínum alla leið ofan frá Hrafnabjörgum og suður á Hólma. Einu sinni var hann að sigla suður úr Reykjavík. En þegar hann var kominn suður fyrir Gróttu, rann á með norðanstorm. Með honum var maður, seni Bene- dikt hér. Bensa var nóg um og var hann hálfhræddur, enda var hann unglingur og báturinn hlaðinn. Segir Magnús gamli þá við Bensa: Opnaðu skrínuna og skerðu úr henni kæfu og myldu á þóttunni skonrokið. Eg reyni að stýra og ausa, og nóg er eftir, ef við för- umst. - Magnús stýrði og annaðist austurinn, og hann sigldi bátnum heilum suður á Hólma tíðindalaust. Hann var talinn mikill matmaður, en tröllduglegur og vitmaður góð- ur. Hann bjó lengi á Bjamastöðum í Hvítársíðu og var hreppstjóri þar í 20 ár. - Þá voru þeir merkir bænd- ur, Ólafur í Bæ í Kjós, og Þórður Guðmundsson frá Laxámesi og síðar á Hálsi í Kjós. Ólafur lá lengi við á Klapparholti, aflaði vel og var talinn merkur bóndi. Þórður var einnig ágætur aflamaður og for- maður góður. Þá vom þeir á Bér- ingstanga Kolbeinn Eyjólfsson frá Kollafirði og Magnús bróðir hans frá Lykkju á Kjalamesi, Bjami Sig- urðsson frá Alfsnesi, síðar á Hofi á Kjalamesi, er fluttist að Brimils- völlum í Fróðársveit. - Þá var á Tanganum Guðni bröðir Bjarna. Hann var bóndi á Möðruvöllum í Kjós, merkur maður. og lá hann lengi við á Tanganum og víðar. Sömuleiðis Guðni sonur Þórðar frá Hálsi. - 1-Iann lá á Tanganum og var þar síðastur; einnig Magnús Torfa- son. Guðmundur Þórðarson fluttist síðar að Gerðum í Garði og var stórútgerðarmaður. Hann lést 1939. Hann var merkur maður. Sonur hans er Finnbogi í Gerðum. - Magnús Torfason gerði þarút mjög lengi sex manna far, en fyrir hann var formaður Vigfús Guðnason, báðir vora þeir úr Reykjavík. Magnús var mjög lengi saltmæl- ingarmaður, keypti gotu og blautan fisk, en seldi öngla. sökkur. brauð, tólg, kæfu og smér, - allt með sann- gjörnu verði. Hann var vel látinn. SERLEYFISBIFREIPIR KEFLAVIKUR Oft getur það yerið betri kostur að ferðast með okkur. Við byggjum á langri reynslu og vdtum farþegum okkar öryggi og þægindi. i ifiiiiHmmi r Akstu r er okkar - Allar upplýsingar í afgreiöslu okkar að Hafnargötu 12 í Keflavík SÍMINN ER 92-15551 156FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.