Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 28
Evrópumeistaramót eldri kylfinga ígolfi
FRÁBÆR ÁRANGUR
OKKAR MANNA
Jóhann Benediktsson hafnaði í priðja sæti með forgjöf og Þorbjöm
Kjærbo varð í sjöunda án forgjafar
Dagana 14.-16. ágúst sl. fór
fram á golfvöllunum í Leiru og í
Grafarholti Evrópumeistaramót
eldri kylfinga í karlaflokki (55
ára og eldri). Þetta var fyrsta
mót sinnar tegundar sem haldið
hefur verið hér á landi og tókst
það í alla staði mjög vel. Hafði
undirbúningur staðið í langan
tíma undir forystu Harðar Guð-
mundssonar, forseta landssam-
bands eldri kylfinga.
Eins og áður sagði fór mótið
fram á tveimur völlum, því keppn-
in var tvískipt sveitakeppni.
A Grafarholtsvelli var leikið án
forgjafar en með forgjöf í Leiru. í
hverri sveit eru sex menn og voru
það keppendur frá ellefu þjóðum
sem léku á Hólmsvelli, en það var
keppt um svonefndan Evrópubik-
ar.
Árangur íslendinga fór fram úr
bestu vonum, því sveitin lenti í
þriðja sæti hér suður frá og í fjórða
sæti í Reykjavík og er það besti ár-
angur til þessa í Evrópukeppni.
I B-sveit Islands voru þeir Jó-
hann Benediktsson, Alferð Vikt-
orsson, Ragnar Jónsson, Svein-
bjöm Jónsson, Birgir Bjömsson og
Olafur Gunnarsson.
í A-sveit voru Þorbjöm Kjærbo,
Sigurður Albertsson, Pétur Antons-
son, Karl Hólm, Gísli Sigurðsson
og Gunnar Júlíusson.
Náðu þeir Jóhann og Þorbjöm
mjög góðum árangri í einstaklings-
keppninni, því Jóhann varð í 3. sæti
með forgjöf og Þorbjöm í 7. sæti án
forgjafar.
Keppnin um Evróubikarinn var
ákaflega spennandi. Fyrirkomulag
keppninnar er þannig, að leikinn er
höggleikur í þrjá daga, 18 holur á
dag og árangur fjögurra bestu
hvem dag er talinn.
Sænska sveitin tók forystu á
fyrsta degi en Islendingar voru að-
eins tveimur höggum á eftir í öðm
sæti:
Svíþjóð 267 högg
ísland 269 högg
Austurríki 281 högg
Noregur 283 högg
Spánn 285 högg
Finnland 287 högg
Næsta dag juku Svíar á forskot
sitt og íslenska sveitin hélt sínu
sæti og Spánn var í því þriðja, en
Austurríkismenn féllu í það sjötta:
Svíþjóð 553 högg
Island 559 högg
Spánn 564 högg
Noregur 567 högg
Þýskaland 569 högg
Austurríki 571 högg
Síðasti daguri nn bauð upp á
mikla spennu - skyldi okkar mönn-
um takast að lenda í verðlaunasæti
í fyrsta skipti. Þrátt fyrir að sveitin
í heild léki frekar illa þennan dag,
þá höfnuðu þeir að lokum í þriðja
sæti.
Austurríkismenn og Finnar Iéku
allra best og náðu fyrsta og öðru
sæti.
Einstaklingskeppnin
Eins og áður sagði náði Jóhann
Benediktsson þeim ágæta árangri
að verða þriðji í keppni einstak-
Lokastaðan varð sem hér segir:
1 Austurríki 1. dagur 281 2. dagur 290 3. dagur 275 Alls 846
2 Finnland 287 287 274 848
3 ísland 279 281 295 855
4 Svíþjóð 267 286 304 857
5 Spánn 285 279 294 858
6 Noregur 283 284 295 862
7 Þvskaland 292 277 294 863
8 Belgía 299 290 304 893
9 Sviss 291 297 313 901
10 Lúxemboru 287 295 319 901
H Danmörk 316 3.1.5... 320 251
164 FAXI