Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 29
linga með forgjöf. Sex efstu menn
urðu sem hér segir og má sjá, að
keppnin hefur verið geysihörð.
1. Bucky Charan Noregur 205
2. Vicente Lacomba Spánn 207
3. Jóhann Ben. ísland 208
4. Pentti Kollonen Finnl. 209
5. Viktor Alferðsson ísland 209
6. Sven Bergström Svíþjóð 209
Við náðum tali af sigurvegaran-
um og ræddum við hann um
keppnina og dvölina á íslandi.
Við skulum gefa honum orðið.
Mig hefur lengi langað til að
koma til íslands og nú varð þessi
draumur minn að veruleika. Ég hef
svo sannarlega ekki orðið fyrir
vonbrigðum því dvölin hefur verið
sérstaklega ánægjuleg.
Golfvöllurinn í Leiru kom mér
verulega á óvart, sérstaklega gott
ásigkomulag með tilliti til veður-
fars hér. Völlurinn var einnig vel
hirtur. Golfskálinn og staðsetning
hans er frábær, hvemig maður get-
ur staðið á svölum hans og horft yf-
>r allan völlinn og hið fallega um-
hverfi hans.
Allir gerðu sitt besta til að auð-
velda okkur dvölina, jafnt starfs-
Henn sem félagar í golfklúbbnum.
^vað sjálfna mig snertir, þá fékk
ég mikinn stuðning frá heima-
> 'hönnum meðan á keppninni stóð.
^að hjálpaði mér að ná þeim ár-
^ngri að verða í fyrsta sæti. Þið get-
'ð rétt ímyndað ykkur hversu hrei-
kinn ég er af því. Ég hef eignast
•narga góða vini og ég tek með mér
góðar minningar frá íslandi, t.d.
mun ég varla gleyma Bláa lóninu.
Eg vil biðja Faxa að skila mínum
hestu kveðjum til allra sem ég
kynntist.
Öldungamót ífrjálsum íþróttum
VERÐ MEÐ
Á NÆSTA
MÓTI
EF HEILSAN
LEYFIR
segir Jóhann Jónssonf
hinn 73ja ára gamli
tþróttamaður úr Viði
Norðurlandamót öldunga í frjáls-
um íþróttum fór fram í Glostrup í
Kaupmannahöfn dagana 26.-30.
júní sl. og einnig fór heimsmeist-
aramót fram í Ábo í Finnlandi dag-
ana 18.-29. júlí. í Norðurlanda-
mótinu tóku þátt 15 íslendingar þar
á meðal Jóhann Jónsson úr Víði í
Garði. Á heimsmeistaramótinu
tóku þátt Finn íslendingar.
Faxi tók Jóhann tali og forvitn-
aðist nokkuð um ferðina.
Keppendur voru alls um tvö þús-
und en almennt eru það þetta marg-
ir sem taka þátt í þessum mótum
sem fram fara annað hvort ár.
Næsta mót verður síðan haldið í
Svíþjóð. Þátttaka héðan fer stöðugt
vaxandi og er ekki ólíklegt að mót-
ið verði haldið hér á landi í framtíð-
inni.
Árangur Islendinganna var mjög
góður. Þeir sem báru sigur úr být-
um í sínum flokki voru þeir Friðrik
Þór Óskarsson ÍR í þrístökki (35
ára), Kristján Gissurarson UMSE
(35 ára) í stangarstökki, Trausti
Sveinbjömsson FH (40 ára) í 400
m grind, Jóhann Jónsson Víðir (70
ára) í spjóti og langstökki og Ámi
Hreiðarsdóttir ÍBV (35 ára) í þrí-
stökki. Aðrir sem komust á verð-
launapall voru: Guðmundur Hall-
grímsson ÚÍA í 200 og 400 m
hlaupum, Jón H. Magnússon ÍR í
sleggjukasti, Ámý Hreiðarsdóttir í
langstökki og Elías Sveinsson (35
ára) í spjótkasti.
Meðan á mótinu stóð notuðu
keppendur tækifærið til að skoðal
sig um í borginni og var m.a. farið í
siglingu um sundin. Framkvæmd
mótsins var mjög góð og fengu
keppendur fljott og vel upplýsingar
um árangur og gengi í mótinu.
Þátttakendur í heimsmeistara-
mótinu vom rúm fimm þúsund og
hafa þeir aldrei verið fleiri. Fjöl-
mennastir voru heimamenn með
tæpa 1200 þátttakendur, Þjóðveijar
með um 650 og Sovétríkin tæp
600. Ekki vom íslendingamir fæst-
ir, þvf sumar þjóðir vom með einn
eða tvo þátttakendur.
Árangur okkar manna á þessu
móti var allgóður, því Unnur Stef-
ánsdóttir náði þriðja sæti í 800 m
hlaupi, Jóhann varð í fjórða sæti í
þrístökki með 9.27 m. Var hann í
örðu sæti allt fram í fimmtu um-
ferð. Sigurvegarinn Gudmund
Skrivervik frá Noregi setti í keppn-
inni heimsmet, erhann stökk 10,17
m.
Jóhann vann það þerkvirki á
mótinu að taka þátt í tugþraut í
fyrsta skipti. Hann náði 4929 stig
sem að sjálfsögðu er íslandsmet. í
400 m hlaupinu setti hann einnig
met á 82.39 mín. Síðasta keppnis-
daginn fór Jóhann í svokallaða
kastþraut, en þá kasta menn kúlu,
kringlu, spjóti, sleggju og lóði.
Náði hann 3139 stigum sem var
met.
Aðspurður kvaðst Jóhann ákveð-
inn að fara á næsta Norðurlanda-
mót ef heilsan leyfir, en þá keppir
hann í 75 ára flokki.
HH.
son, prímusmótor eldri frjálsíþróttamanna.
FAXI 165