Faxi

Árgangur

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 31

Faxi - 01.09.1991, Blaðsíða 31
þar var, og svo er enn. Þar er gott til bjargar á sjó og landi, og sjaldan þarf að gefa þar fullorðnu fé. Ég hefi nú verið nokkuð fjölorð- ur um útgerðina í Vogunum og þama suður á Tanganum. Mun ég því verða fáorðari um Vatnsleysu- ströndina, því að þar var atvinnu- rekstur með líkum hætti og í Vog- unum, nema þar var vanalega sótt á annan sjó, og miklu meira langræði að jafnaði, að minnsta kosti hjá sumum, sem höfðu stór og vönduð skip og alla útgerð í mjög góðu lagi. Sóttu þeir því fiskinn þangað, sem hann var að hafa, hvort sem það var langt frá landi eða á grunn- miðum, allt eftir ástæðum, og höfðu því sumir Strandaringar vanalega bestan hlut. Formenn voru þar margir stórmiklir sjómenn og j>óðir aflamenn. Eg hef áður minnst á Jón Jónsson Breiðfjörð á meðan hann var á Hól- manum, en lítið eftir að hann kom að Brunnastöðum. Þar bjó hann stórbúi með miklum framkvæmd- um, gerði árlega út 2 til 4 skip og var sjálfur formaður á stórum átt- ræðingi og aflaði vel. Hann var tal- inn mjög snjall formaður. Sömu- leiðis átti hann þilbát stóran, sem hann hélt lengi út á vorin og sumr- in. Hann verslaði um nokkur ár og byggði tvö stór timburhús á Brunnastöðum og stór sjávarhús. - Hann átti árlega 60-80 kindur, tvær kýr og góða hesta. Stóð bú hans með rausn um þessar mundir, en varð að engu eftir það, að togaram- ir komu hér. Jón dó 1901. Þá tók við hreppstjóminni sonur hans, Jón Gestur, en hann lést síðasta mars 1903. Öll hús á Brunnastöðum brunnu til ösku á góunni 1905. A neðri Bmnnastöðum bjó Guð- mundur ívarsson. Hann var talinn mestur aflamaður og bestur for- maður hér í sveit og víðar, enda átti hann stærsta róðrarskipið, sem þá gekk við Faxaflóa og var formaður á því frá 1868 til 1890. Skipið smíðaði Kristinn í Engey við Reykjavík. Það var 42 fet á milli stafna, bar 11 hundmð af netfiski og var með gaffalsiglingu. í segl- unum vom 155 álnir af álnarbreið- um stiga. Það var mjög gott skip. Hann mun hafa lagt fyrstur þorska- net í Garðsjó og fékk þá á góunni 10 til 11 hundmð fiska í 12 þorska- net- - Hann hafði svokölluð helm- ■ngaskipti, sem var svo háttað, að hann lagði til öll netin sjálfur og tók helminginn af fiskinum fyrir skip, net og duflfæri, en hinn helm- ■nginn fengu mennimir. - Nú var hann með 11 menn, var því skipt í 22 staði úr netunum, - en hann lagði árlega til með skipinu 24 til 30 þorskanet. - Hann skaraði líka æðilangt fram úr öllum með aflann árlega. Hann hafði úrvalsmenn, sem sumir vom hjá honum yfir 20 ár. - Þijá hluti tók hann af fæmm, alveg eins og áttæringamir. Það vom kallaðir „dauðir hlutir", sem skipið fékk. Hann var jafnheppinn að afla í netin, á færin og lóðina. Hann sótti sjó manna mest og oft langt, ef með þurfti, en varð aldrei neitt að á sjónum. Hann var djarfur, aðgætinn og veðurglöggur. „afger- andi“ og ákveðinn. Þess vegna var hann líka, víst með réttu. talinn mesti og besti formaður, sem þá þekktist, enda var hann víða kunn- ur sem yfirburðamaður. Hann byijaði formennsku 18 ára og gerði út árlega 2-7 skip á vetrar- vertíðinni og eitt haust og vor. Hann átti öll þessi skip sjálfur, en Kristinn í Engey smíðaði þau. Sex manna farið kostaði með seglum og ámm 400 krónur og skip það, er hann reri á, var dýrt. Framhald í næsta blaði 8JVPRIL opnaði Landsbanki íslands útibú í Miðbæ Keflavíkur I framhaldi af kaupum Landsbankans á Samvinnubankanum hefur útibúi Samvinnubankans verið breytt í Landsbankaútibú sem opnaði formlega þann 8. apríl. Landsbankinn býður viðskiptavini veikomna í hið nýja útibú og óskar starfsfólki velfamaðar undir nýju merki. Afgreiðslutími útibúsins að Hafnargötu 57 er alla virka daga frá kl. 9:15 - 16:00. Síminn er 92-1 12 88 L Landsbanki Islands Banki allra landsmanna FAXI 167

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.