Faxi - 01.02.1993, Blaðsíða 24
Nýtt fétagsheimiti
Sátarrannsóknarfétags
Suhmesja
Sálarrannsóknarfélag Suðurnesja er í
dag eitt hið öflugasta félag sem hér starf-
ar. Almennir félagar eru um þrettán-
hundruð talsins og þeir starfa mjög ötullega
að sínum áhugamálum. Athygli hefur vakið
stórhugur félagsins varðandi nýyfirstaðin
kaup á félagsheimili að Víkurbraut 13 í Kefla-
vík og Fa\i hefur því hitt að máli Olaf Har-
aldsson núverandi formann og fengið hjá
honum eftirfarandi frásögn af húsnæðismál-
um félagsins.
Frá því að félagið var stofnað 29. maí 1969 fór
starfsemi þess fram í hinum ýmsu húsum sem í
boði voru á hverjum tíma svo sem Ungó, Aðal-
veri, Félagsbíói og húsi Framsóknarfélagsins svo
einhver séu nefnd. Arið 1975 var fengin aðstaða
að Tunguvegi 12 í Y-Njarðvík til fundarhalda
um tíma. I nóvember 1975 var samið um kaup á
neðri hæð Túngötu 22 í Keflavík þar sem félagið
hefur blómstrað síðan. Neðri hæð Túngötu 20
sem er samtengd Túngötu 22 var svo keypt í des-
ember 1980 og efri hæð Túngötu 22 um áramót-
in 88-89. Það sem næst gerist í húsæðismálum
félagsins er að félagið gerir Ramma hf tilboð um
makaskipti á Túngötunni og 1. og 2. hæð í Olíu-
samlagshúsinu við Víkurbraut 13 sem Rammi hf
hafði eignast eftir skipti við Frímúrararegluna.
Fyrsta tilboð gerði stjóm SRFS 29. september
1992 en það þótti ekki nægilega gott að mati
þeirra Einars Guðberg og Sigurþórs Stefánssonar
hjá Ramma hf. Eftir þetta fyrsta tilboð gengu síð-
an nokkur tilboð fram og til baka um hríð og
þreifingar í átt til samninga sem síðan eru undir-
ritaðir 2. nóvember 1992. Sigurður Ragnarssonar
hjá Eignamiðlun Suðumesja veitti góða aðstoð
við samningagerðina.
Endanleg afhending eða skipti áttu samkvæmt
samningi að fara fram þann 15. janúar 1993. Af
einstakri velvild eigenda Ramma hf fékk þó fé-
lagið að byrja á að aðlaga húsnæðið nýju hlut-
verki strax að samningum loknum. Þó svo að
húsnæðið væri að langmestu leiti tilbúið í megin
atriðum til notkunar sem félagsheimili þá var
Rammi hf þegar byrjaður á breytingum á gafli
hússins á annarri hæð þar sem settir voru gluggar
og aðalinngangur. Þetta verk varð að klára og sá
líka Sigurþór Stefánsson hjá Ramma hf til þess
ásamt Helga Olafssyni frá félaginu. Verkstjóm
og alla umsjón með breytingum höfðu þeir Helgi
Olafsson og Bjarni Kristjánsson sem einnig unnu
hvað mest. I smíðavinnu má helst nefna, ásamt
Helga og Bjama, Jón Halldór Sigurðsson og Sig-
urþór Stefánsson að öðrum ólöstuðum. Pípu-
lagnir annaðist Jónas Guðmundsson. Málningu
Rúnar Olafsson. Flísalögn Oskar Guðjónsson.
Raflagnir Raf-Rás. Gluggatjöld Gréta Þórðar-
dóltir. Við þrif, flutninga og margt fleira vann
fólk úr daglegu sjálfboðaliði félagsins ásamt
ýmsu utanfélagsfólki. Þess verður einnig að geta,
að fjöldi einstaklinga og fyrirtækja hafa styrkt fé-
lagið með margvíslegum hætti við að komast í
félagsheimilið.
Það var stór stund í sögu félagsins laugardag-
inn 16. janúar s.l., þegar hið nýja og glæsilega fé-
Hilmar Hafsteinsson Ingveldur Danivalsdóttir Ólafur Halldórsson og Jón Kristinsson
Ljósm. Víkurfréttir
lagsheimili var formlega tekið í notkun. Þá var
haldin kaffiveisla fyrir alla hina fjölmörgu sem
lagt hafa félaginu lið, bæði nú og síðastliðin 24
ár. í hófið var einnig boðið stjómum allra sálar-
rannsóknafélaga í landinu og einnig nokkrum
listamönnum af svæðinu, sem í tilefni opnunar-
innar hafði sett upp ágæta sölusýningu á staðn-
um. Höfðu mörg listaverkin verið gefin félaginu
og mun andvirði þeirra renna í húsbyggingar-
sjóðinn. Samkvæmt gestabók félagsins komu
yfir eitthundrað manns í veisluna. Húsið var vígt
með bæn og blessunarorðum miðilsins og spír-
itistaprestsins Clive Teal sem kominn var frá
Englandi í boði félagsins. Formaður félagsins
gerði Ingibjörgu Danivalsdóttur fyrsta formann
félagsins að fyrsta heiðursfélaga þess. Sunnu-
daginn 17. janúar var síðan eiginleg starfsemi
hafin af fullum krafti með málverkasýningu, áru-
myndatökum, miðilsfundum og kynningum á
margvíslegri starfsemi og að sjálfsögðu liinu
nýju félagsheimili Sálarrannsóknafélags Suður-
nesja.
56 FAXI